Valsblaðið - 01.05.2012, Side 36

Valsblaðið - 01.05.2012, Side 36
36 Valsblaðið2012 Starfiðermargt Mestu framfarir: Orri Heiðarsson. Besta ástundun: Róbert Vilhjálmur Ás- geirsson. Liðsmaður flokksins: Úlfar Páll Monsi Þórðarson. 4. flokkur kvenna 4. fl. kvenna þetta árið samanstóð af 25 stelpum. Stelpurnar æfðu mjög vel allt tímabilið. Þær lögðu mikið á sig með aukaæfingum og öðru slíku yfir sumar- tímann. Við tókum þátt í Haustmóti KRR, Reykjavíkurmótinu, Rey Cup og Íslandsmótinu. Liðið spilaði oft á tíðum frábæran fótbolta þar sem lögð var rík áhersla að kenna stelpunum grundvallar- atriði í 11-manna bolta sem nýtist þeim á næstu árum. Stelpurnar gerðu margt skemmtilegt saman og voru duglegar að hittast fyrir utan æfingar. Hópurinn var það fjölmennur að hægt var að tefla fram tveimur 11-manna liðum. Bæði lið spiluðu frábæran fótbolta allt tímabilið og eigum við Valsarar margar bráðefni- legar knattspyrnukonur í þessum hópi. Stelpurnar tóku þátt í Rey Cup þar sem gleðin var mikill. Bæði lið lentu í 3. sæti á mótinu og stóðu sig með stakri prýði. Á Íslandsmótinu missti A-liðið af sæti í úrslitakeppni í síðasta leik sumarsins en mega vera stoltar af sinni frammistöðu í sumar líkt og B-liðið sem lenti í 2. sæti á Íslandsmótinu. Þjálfarar voru Margrét Magnúsdóttir og Rakel Logadóttir. Leikmaður flokksins: Agnes Edda Guð- laugsdóttir. Besta ástundun: Eva María Jónsdóttir. Mestu framfarir: Mist Þormóðsdóttir Grönvold. 4. flokkur karla Í kringum 30 virkir strákar mættu á æf- ingar. Æft var fjórum sinnum í viku yfir veturinn, þrisvar sinnum úti á gervigras- inu en fjórða æfingin var svo þrek- og styrktaræfing inni í Valsheimilinu. Seint í maí fór flokkurinn í frábæra æfingaferð á Hvolsvöll sem endaði úti í Vestmanna- eyjum þar sem bæði lið flokksins spiluðu sína fyrstu leiki í Íslandsmótinu. Þessi ferð var gríðarlega vel heppnuð í alla staði og hristi hópinn mjög vel saman. Síðari hluta júlí fór svo Rey Cup fram þar sem tvö lið voru skráð til. Lið eitt lék um 5. sæti gegn Þrótturum og unnu 2-1 sigur í dramatískum leik sem strákarnir gleyma seint. Lið tvö lék um þriðja sætið gegn Fylkisstrákum og lentu undir í byrj- Stelpurnar gerðu einnig margt skemmti- legt saman fyrir utan æfingar. Þjálfarar voru Birkir Örn Gylfason og Margrét Magnúsdóttir. Besta ástundun: Signý Ylfa Sigurðar- dóttir. Mestu framfarir: Katla Garðarsdóttir. Leikmaður flokksins: Hlín Eiríksdóttir. 5. flokkur karla Þetta hefur verið viðburðaríkt ár hjá 5. flokki. Í mars skelltu strákarnir sér í æf- ingaferð á Laugarvatn þar sem gleðin og vinskapurinn var í fararbroddi, í lok ferð- arinnar fóru drengirnir á Selfoss og spiluðu æfingaleik við heimamenn. Ár- angur strákanna á Íslandsmótinu var mjög góður, en alls sendum við 5 lið til keppni og komust 2 liðanna alla leið í úr- slitakeppnina, A liðið var hársbreidd frá því að komast í undanúrslit, 3 lið urðu jöfn að stigum og því varð að kasta upp á hver kæmist áfram en því miður voru lukkudísirnar ekki með okkur að þessu sinni en engu að síður frábært árangur. C2 liðið komst einnig í úrslitakeppnina eftir að hafa unnið sinn riðill en eftir erf- iða leiki sem töpuðust naumlega þá kom- ust þeir ekki áfram í úrslitaleikinn. Á heildina litið frábær árangur hjá strákun- um á íslandsmótinu. Strákarnir fóru á fleiri mót í sumar, fyrstu helgina í júlí var farið á N1 mótið og ber þar helst að nefna frábæran árangur hjá F liðinu en þeir komust alla leið í úrslitaleikinn en töpuðu honum naumlega 1-0 í æsispenn- andi leik sem hefði getað endað á hvorn veginn sem var. Einnig var farið á Olís- mótið á Selfossi aðra helgina í ágúst, þar náðist frábær árangur einnig. Ekki má gleyma geisladisknum sem strákarnir gáfu út, í samvinnu við þá Óla og Villa í foreldraráðinu komu strákarnir saman í Friðrikskapellu og sungu inn á geisladisk nokkur vel valinn Valslög. Þetta var vel heppnað í alla staði og hafa strákarnir verið duglegir á heimaleikjum Vals að selja diskinn. Þjálfari var Aðalsteinn Sverrisson. 4. flokkur kvenna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.