Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 45
Valsblaðið2012 45
SoffíaÁmundadóttir, þjálfariogforeldri
Gera aldrei grín að barni eða hrópa að •
því ef það gerir mistök
Meta þátttöku sjálfboðaliða og starfs-•
manna félagsins sem leggja grunn að
starfseminni
Spyrja barnið hvort keppnin eða æf-•
ingin hafi verið skemmtileg en ekki
eingöngu um úrslit
Góð ráð til foreldra
„Hvað ungur nemur, gamall temur“
Sem foreldri getur þú tekið þátt í því
að gera íþróttir barna og unglinga að eft-
irminnilegri og jákvæðri reynslu. Hér eru
nokkrar ábendingar sem vert er að gefa
gaum.
Komdu á æfingu eða á leiki þegar þú •
getur. Það virkar hvetjandi fyrir barnið
líka þegar það eldist.
Hrósið öllum iðkendum meðan á æf-•
ingum eða leik stendur, ekki aðeins
dóttur þinni eða syni.
Hvetjið börnin bæði þegar vel gengur •
og þegar á móti blæs, ekki gagnrýna.
Berið virðingu fyrir störfum þjálfar-•
ans, ekki reyna að hafa áhrif á störf
hans á meðan á leik stendur.
Dómarinn á að gæta að öryggi •
barnanna, dæma leikinn sanngjarnt eft-
ir bestu getu og stuðla að ánægjuleg-
um leik fyrir börnin. Ekki gagnrýna
ákvarðanir hans.
Hafið áhrif og hvetjið börnin til þátt-•
töku, íþróttir eiga að vera skemmtilegar.
Spyrjið hvort leikurinn eða æfingin •
hafi verið skemmtileg eða spennandi,
úrslitin eru ekki alltaf aðalatriðið.
Sýnið starfi félagsins virðingu. Verið •
virk á foreldrafundum þar sem umræð-
ur fara fram um þjálfun og markmið
félagsins, þar er ykkar vettvangur.
Mundu að það er barnið þitt sem er •
þátttakandi í íþróttum – ekki þú. Sum-
um foreldrum hættir til að gleyma því.
Standið saman um fjáraflanir og •
félagstarf í yngri flokkunum.
Leggið ykkar að mörkum til að íþrótta-•
iðkun barna ykkar verði raunveruleg
forvörn gegn hvers kyns vá.
Starfslýsing foreldraráða
Foreldraráð er tengiliður milli iðkenda, •
foreldra, þjálfara og yfirþjálfara. Tals-
maður foreldraráðs er jafnframt tengi-
liður við yfirmann barna- og unglinga-
sviðs félagsins.
Í upphafi hvers starfsárs, að hausti •
skulu foreldrar skipa a.m.k. þriggja
Samstarf foreldra, þjálfara og félagsins er
mikilvægt fyrir alla iðkendur. Traust og
virðing verður að ríkja. Ef misbrestur er
á góðri samvinnu skynjar iðkandi það.
Foreldrar, þjálfarar ásamt kennurum eru
helstu fyrirmyndir barnanna. Þessir
sterku mótunaraðilar verða að standa
saman.
Starf þjálfara er fjölbreytt og
krefjandi
Flestir sem leggja fyrir sig þetta skemmti-
lega starf, þjálfun, gera það af ástríðu til
íþróttarinnar, félagsins og áhuga á að
vinna með börnum, unglingum eða full-
orðnu fólki. Starf þjálfarans hefur breyst
mikið undanfarin ár og þá sérstaklega sá
þáttur sem snýr að foreldrum. Hér áður
fyrr tíðkaðist ekki að foreldrar kæmu að
horfa á æfingar og fáir komu að horfa á
leiki. Í dag er enginn maður með mönn-
um nema mæta á alla leiki, fara á öll mót,
fara með barnið á dýr aukanámskeið og
helst sjá mikið af æfingum. Allt er þetta
gott og blessað en foreldrar verða að
virða þau mörk sem þjálfari og félagið
setur þeim.
Breyting á umhverfi
þjálfarastarfsins
Ég hef þjálfað knattspyrnu í 10 ár og hef-
ur umhverfi starfsins breyst mikið. Þjálf-
arar eru meira menntaðir, fjöldi iðkenda
er að aukast, krafa á árangur er meiri og
afskipti foreldra mikil. Fyrst þegar ég
byrjaði að þjálfa fann maður mest fyrir
þakklæti frá foreldrum og iðkendum.
Yngri flokka þjálfun er alltaf aukavinna
hjá þjálfaranum og ef laununum væru
deilt niður á tímann sem fer í starfið
erum við ekki að tala um hátt tímakaup.
Núna fer mikill tími þjálfara í að svara
spurningum frá foreldrum tengt stöðu
iðkandans innan flokksins. Algengar
spurningar eru: af hverju er mitt barn í B
liði en ekki A, af hverju spilaði barnið
mitt ekki fleiri mínútur, af hverju spilar
mitt barn ekki upp fyrir sig (þ.e.a.s í
næsta flokk fyrir ofan), af hverju er barn-
ið mitt ekki í landsliði og af hverju er
mitt barn ekki að spila með meistara-
flokki félagsins? Þessar kröfur byrja
snemma og hef ég heyrt óánægjuraddir
foreldra allt niður í 8. flokk. Oft á tíðum
eru þetta meiri áhyggjur foreldra en iðk-
andans sjálfs. Iðkandinn finnur best hver
getan er miðað við hópinn. Vonir og
væntingar foreldra og barns eru ekki allt-
af þær sömu.
Siðareglur Vals, góð ráð til
foreldra
Á heimasíðu Vals (www.valur.is) má sjá
siðareglur Vals, góð ráð til foreldra og
starfslýsingu foreldraráða:
Þú sem foreldri/forráðamaður
hafðu ávallt hugfast að:
Barnið þitt er í íþróttum á eigin for-•
sendum
Hvetja barnið þitt til þátttöku í íþrótt-•
um
Það er þitt hlutverk að hvetja barnið •
þitt til að fara eftir og virða reglur
íþróttanna
Þú ert fyrirmynd í því að taka ósigri af •
æðruleysi og sigri án hroka
Virða störf þjálfarans, ekki reyna að •
hafa áhrif á störf hans á meðan á leik
eða keppni stendur
Líta á dómarann sem leiðbeinanda iðk-•
andans og virða ákvarðanir hans
Styðja og hvetja öll börn og ungmenni •
– ekki bara þín eigin
Vera jákvæður í meðbyr jafnt sem í •
mótbyr
Hlutverkforeldra
ííþróttum
Hér er foreldrum barna sem æfa íþróttir
bent á hvert hlutverk þeirra er, veitt góð
ráð og bent á hluti sem betur mega fara