Valsblaðið - 01.05.2012, Qupperneq 57
Valsblaðið2012 57
Starfiðermargt
Heiðursfélagi Vals
Ég var gerður að heiðursfélaga Vals á
100 ára afmælinu 2011. Ég er ánægður
með að störf mín fyrir félagið hafi verið
metin á þennan hátt. Þetta er mikill heið-
ur. Þegar ég kem svo á leiki á Hlíðarenda
þá eru þeir örfáir sem vita að þessi karl
sé heiðursfélagi Vals. Hins vegar kemur
það líka oft fyrir að mér er heilsað kump-
ánlega úti á götu. Oftast kannast ég ekk-
ert við fólkið. En þá eru þetta litlu krakk-
arnir sem voru í Val á meðan ég starfaði
þar sem mest en nú orðið fullorðið fólk.
Allir þekkja mig en ég þekki ekki þetta
fólk lengur. Þannig var það líka þegar ég
var ungur. Ég þekkti alla gömlu karlana
en þeir vissu ekkert hver ég var.
Í dag er knattspyrnufélagið Valur mjög
stórt verkefni. Það er mikið breytt frá því
sem það var í gamla daga. Það hljóta að
þurfa að koma inn miklar tekjur til að
standa undir öllu þessu. Annars er ég
kominn út úr öllu og þekki ekki vel til.
Sem betur fer er enn til stór hópur Vals-
manna sem myndar kjarnann í Val, jafn-
vel fólk sem aldrei hefur stundað íþróttir
með félaginu. Íþróttamennirnir þessi árin
koma og fara. Ég þekki ekki lengur alla
leikmenn Vals með nafni. Þetta hefur
breyst geysilega mikið. Eitt verð ég að
taka fram sem er mjög ánægjulegt og það
er hversu góðar stelpurnar eru, þær
standa sig vel. Vonandi tekst Valsmönn-
um að efla félagið á næstu árum og ára-
tugum. Hundrað ára áfanginn hlýtur að
hafa verið mikil hvatning nýrra afreka en
Valur sem ég þekkti á mínum yngri árum
er auðvitað ekki til lengur. Þannig tekur
hver kynslóð við af annarri og lagar fé-
lagið eftir aðstöðu hverju sinni og tíðar-
anda.
stundum að sniglast út í Valsheimili og
hafði einhvern tímann verið að setja út á
Palla, fannst þessi stjórn helvíti lin.
Nema hvað, að svo er komið til mín í
búðina, mig minnir að það hafi verið
Friðjón Friðjónsson. Hann var voðalega
alvarlegur og og segir mér að nú sé kom-
ið að því að ég þurfi að gefa kost á mér
sem formaður Vals. Þetta kom jafn flatt
upp á mig eins og þegar Sveinn Zoega
kom til mín þarna um árið. Ég lofaði að
athuga málið en á endanum lét ég undan.
Ég var þá formaður í þrjú ár. Þá tekur
Þórður Þorkelsson við og er í nokkur ár
en síðan tek ég aftur við af honum. Ég
man nú ekki hvernig það gerðist að ég
tók aftur við formennsku. Held jafnvel
að það hafi verið Þórður sem fékk mig í
þetta.
Það var heilmikið starf að vera for-
maður í Val. Á þessum árum eru miklar
framkvæmdir á svæðinu. Ég var heldur
ekki týpan sem kunni að dreifa verkefn-
um svo ég gerði mikið sjálfur. Það voru
miklir ágætismenn með mér í stjórninni,
t.d. Þórður Þorkelsson.
Þetta gekk nú að mestu átakalaust fyrir
sig. Þó kom á sínum tíma upp ágreining-
ur um hvert halda skyldi, t.d. með meist-
araflokk karla í knattspyrnu. Sumir höfðu
þá skoðun að taka ætti upp einhvers kon-
ar atvinnumennsku í félaginu. Fram
komu hugmyndir um að fá leikmenn til
félagsins ef Valsmenn sjálfir hefðu ekki í
sínum röðum nógu góða leikmenn. Svo
var deilt um samband aðalstjórnar og
deildanna, hvort deildirnar væru sjálf-
stæðar einingar eða litu yfirstjórn aðal-
stjórnar. Þegar ég svo dreg mig í hlé
bjóða sig fram tveir menn Bergur Guðna-
son og Pétur Sveinbjarnarson og er Berg-
ur kjörinn formaður Vals en Pétur tekur
svo við síðar.
Hvað nú?
Eftir að ég hætti með búðina um fimm-
tugt stofnaði ég heildsölu sem flutti inn
vörur fyrir hótel, veitingahús og bakarí.
Núna erum við hjónin sest í helgan stein.
Konan mín, Guðrún Marinósdóttir textíl-
hönnuður, er nú upphaflega Ármenning-
ur en komst ekki hjá því að verða Vals-
maður. Núna starfa ég svolítið fyrir Félag
eldri borgara og spila bridge tvisvar í
viku.
Minjanefnd Vals
Ég er nú ekki mjög virkur í Val í dag. Sit
þó í einni nefnd, minjanefnd. Ég hef
gaman af því að fá að vera með. Það er
mjög gott fólk í þessari nefnd, nánast sér-
fræðingar. Núna erum við að reyna að
safna öllum myndum sem við náum í og
minjagripum sem hugsanlega eru til ein-
hvers staðar hjá fólki.
Ægir
Ferdinandsson
heiðursfélagi 11. maí 2011
Lék knattspyrnu með yngri flokkum
félagsins og um árabil í meistaraflokki,
frá 1951. Hann þjálfaði yngri iðkendur
um nokkurra ára skeið. Árið 1958 var
Ægir kjörinn í varastjórn Vals. Við
deildaskiptingu árið 1959 varð hann
formaður knattspyrnudeildar og gegndi
formennsku til 1962. Í upphafi for-
mannstíðar sinnar var Ægir jafnframt
leikmaður meistaraflokks. Hann sat í
stjórn knattspyrnudeildar næstu tvö ár
eftir að formennsku hans lauk.
Árið 1967 var Ægir kjörinn for-
maður Vals og sat til ársins 1970.
Hann var kjörinn formaður á ný árið
1975 og gegndi formennsku til ársins
1977. Ægir var formaður fulltrúaráðs
Vals 1978–1983. Í formannstíð sinni
lagði hann kapp á að efla félagslíf að
Hlíðarenda en það stóð höllum fæti á
þessum árum. Ægir var sæmdur heið-
ursorðu Vals á 70 ára afmælinu 1981.
Ægir í Moskvu.