Valsblaðið - 01.05.2012, Page 58
58 Valsblaðið2012
Ungiratvinnumenn Valserlendis
eftirSigurðÁsbjörnsson
séu kröfur til þess að menn séu ekki í
neinu rugli.
Hvernig er aðstaðan hjá ykkur í sam
anburði við Val? Höllin tekur um 2.500
manns og er í miðjum Stokkhólmi. Hún er
ágæt en stenst engan samanburð við að-
stöðuna í Valsheimilinu. Þetta er fín höll
en síðan er kompa með lyftingatækjum.
En við höfum aðgang að nokkrum líkams-
ræktarstöðvum í nágrenninu. Þrátt fyrir
sína annmarka er höllin fín fyrir leiki.
En hvernig er aðsókn á leiki? Það eru
yfirleitt um 1.500 til 1.600 manns á leikj-
um, sem þykir fínt en það er mun meira á
stórleikjum. Stuðningsmennirnir eru alveg
trylltir. Þeir syngja alveg endalaust sem
minnir á velheppnaða fótboltastemningu.
Er hátt hlutfall af uppöldum leik
mönnum í liðinu? Ég held að það séu
um 6–7 aðkomumenn af 16–18 manna
hóp. En útlendingar? Við erum 2, ég og
Dani. Kerfið er þannig að það eru mörg
lið sem eru með yngri flokka en síðan
tekur Hammarby við þeim þegar þeir eru
komnir í meistaraflokk. Síðan er líka
þriðjudeildarlið á svæðinu fyrir þá sem
æfa minna.
Ef þú ættir að benda mér á eitthvað
eitt sem er betra hjá Hammarby held
ur en hjá Val, hvað kemur fyrst upp í
hugann? Það er gríðargóð mæting á leiki
og stuðningsmenn mæta mjög snemma.
En geturðu bent á einhver einföld at
riði sem liðin heima á Íslandi ættu að
taka upp af því sem þú hefur kynnst
þarna úti? Menningin heima er dálítið
erfið. Henni þyrfti að breyta. Við erum
alltaf að reyna að gera allt á sem
Hvernig hefur liðinu gengið það sem af
er tímabilinu? Okkur gekk mjög vel í
byrjun. Við unnum fyrstu leikina og þeg-
ar kom að fyrsta landsleikjahléinu vorum
við í öðru sæti í deildinni. En síðan kom
smá bakslag í þetta hjá okkur, m.a. vegna
meiðsla en nú erum við í áttunda sæti. En
deildin er fremur þétt.
Hver er stefna liðsins fyrir tímabilið? Í
fyrra þurfti liðið að taka þátt í umspili til
að halda sæti í deildinni en núna lítur
þetta miklu betur út. Við ætlum okkur að
gera betur og viljum ekki lenda í þessu
umspilssæti og mitt markmið er að við
verðum í hópi átta efstu liðanna og kom-
umst í úrslitakeppnina.
En hvernig hefur þér gengið í hand
boltanum? Spilarðu mikið í hverjum
leik? Í fyrra þegar ég kom þá spilaði ég
fremur lítið framan af árinu en ég hafði
farið til Danmerkur í aðgerð út af öxl-
inni. En síðan varð ég fyrir því að togna í
millirifjavöðvum eftir nokkra leiki í
haust. Það hefur háð mér nokkuð en ég
hef samt spilað. Ég spila yfirleitt um 45
til 50 mínútur í hverjum leik. En hópur-
inn er ekki mjög breiður svo við megum
ekki við miklum meiðslum.
Hvað var erfiðast við að koma út og
spila? Ég fór að heiman til Lemvik á Jót-
landi í Danmörku og spilaði í efstu deild.
Mér gekk vel að aðlagast og var fljótur
að ná tökum á málinu. En sennilega var
erfiðast að ná að venjast danska boltan-
um. Hann var miklu hraðari heldur en ís-
lenski boltinn.
En hvað var skemmtilegast við það að
koma út? Það var algjört ævintýri að
skipta á allan hátt um umhverfi. Ný deild,
nýtt heimili og upplifun á atvinnu-
mennskunni.
En handboltalega hver er munurinn á
handboltanum sem þú ert að spila
núna í samanburði við boltann eins og
þú þekktir hann hjá Val? Sænska deild-
in er hraðari og leikmenn eru teknískari
heldur en á Íslandi en það eru ekki meiri
líkamleg átök heldur en heima en hún
stendur dönsku deildinni nokkuð að baki.
Sænska deildin er betri heldur en sú ís-
lenska og þá fyrst og fremst vegna þess
að það eru fleiri öflug lið. En því fer
fjarri að það sé himinn og haf milli deild-
anna. Íslenskir þjálfarar eru meira skap-
andi heldur en þeir sænsku, þeir hugsa
meira út fyrir boxið. Það er örugglega
ástæða þess hvað þeir eru að ná langt í
þjálfun. Hér eru menn fremur hefðbundn-
ir í þjálfun og þess sér t.a.m. merki í því
að fjöldi liða spilar eingöngu flata sex-
núll vörn. En hér eru menn færir í marg-
víslegum æfingum sem ætlað er að fyrir-
byggja meiðsli. Meira að segja upphitun-
aræfingarnar eru af þeim toga. Þjálfarinn
minn er mjög uppeldisfræðilega hugs-
andi við æfingar.
En hver er munurinn á félagsskapnum
hjá Hammarby og hjá Val? Liðið okkar
er fremur ungt. Í fyrra var ég næst elstur
eingöngu 24 ára gamall. Andinn í hópn-
um er mjög góður en einkennist af því
hversu ungir menn eru. Hér er vel hugs-
að um félagsandann og við gerum okkur
dagamun eftir sigurleiki. Mórallinn er
um margt svipaður og var hjá Val. Hér
ríkir góður félagsandi þó svo að gerðar
Þaðvaralgjört
ævintýriaðskiptaá
allanháttumumhverfi
Viðtal við Elvar Friðriksson sem er alinn upp á
Hlíðarenda en freistaði gæfunnar fyrir rúmum
tveimur árum þegar hann fór til Danmerkur
að spila. Nú er hann kominn til Svíþjóðar þar
sem spilar með Hammarby í efstu deild