Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 61
Valsblaðið2012 61
Við hvaða aðstæður líður þér best: Í
fanginu á mömmu.
Hvaða setningu notarðu oftast: Já okei.
Hvað er það fallegasta sem hefur verið
sagt við þig: Fæ stundum að heyra það
að ég sé með stórt hjarta, ég kann ágæt-
lega við að heyra það.
Fyrirmynd þín í handbolta: Uwe Gens-
heimer er trúlega orðin nýjasta fyrir-
myndin.
Draumur um atvinnumennsku í hand
bolta: Ég ætla mér að spila með Orra
Frey vini mínum erlendis, en svo væri
líka gaman að spila á Spáni.
Landsliðsdraumar þínir: Það er ekkert
töff við það að spila bara með unglinga-
landsliðum, þannig að ég ætla að gera
mitt besta til að spila með A landsliðinu í
framtíðinni.
Besti söngvari: Eddie Vedder er rosalega
góður söngvari.
Besta bíómynd: The Game.
Besta bók: Bettý eftir Arnald er mjög
góð.
Uppáhaldsvefsíðan: Fotbolti.net er upp-
hafssíðan mín.
Uppáhaldsfélag í enska boltanum:
Arsenal
Uppáhalds erlenda fótboltafélagið,
handboltafélagið: Ég er orðinn pínu
Berlínar maður eftir að Dagur tók við og
svo held ég með Óskari og Orra í Viborg
í Danmörku.
Eftir hverju sérðu mest: Að hafa hætt í
fótbolta.
Nokkur orð um núverandi þjálfara:
Segir mjög oft HEY.
Ef þú værir alvaldur í Val hvað mynd
ir þú gera: Ég myndi skipta um klefa
við fótboltann.
Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar
enda: Á heimsmælikvarða.
Hvernig viltu sjá Val þróast á næstu
árum: Halda áfram að verða stærsta fé-
lag á Íslandi þá er ég sáttur.
Nám: Er við nám í Borgarholtsskóla, vil
þakka Hansa Herberts fyrir það.
Kærasta: Hvaða dagur er í dag?
Af hverju Valur: Af því að Valur er sig-
ursælasta félag á Íslandi, þú þrætir ekkert
um það.
Frægur Valsari í fjölskyldunni: Ætli
hann faðir minn Sveinn Stefánsson fari
ekki að verða talinn frægur á Hlíðarenda,
búinn að vera að vinna í kringum félagið
núna í á þriðja tug ára.
Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í
handboltanum: Það er eiginlega bara
ótrúlegt hvað þau eru búin að styðja mig
mikið í þessu, ég held stundum að þau
hafi meiri áhuga á þessu en ég.
Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl
skyldunni: Veit ekki til þess að ég hafi
samkeppni í þeim málum.
Stjörnuspá þín fyrir næsta ár: Stjörnu-
spá er því miður ekki sannað fyrirbæri, en
ég lít hinsvegar björtum augum á næsta ár
og vona ég að það detti inn titlar á því.
Af hverju handbolti: Eina skemmtilega
íþróttin sem er spiluð inni, ekki fer mað-
ur að láta plata sig í að iðka íþrótt sem er
spiluð utandyra á Íslandi.
Helstu afrek í öðrum íþróttagreinum:
Vann einu sinni körfuboltamót þegar ég
var mjög ungur og svo var ég í fótbolta-
liði sem lenti í 2. sæti í deild og bikar.
Eftirminnilegast úr boltanum: Bikarúr-
slit í 3. og 2. flokki eru mér minnisstæð.
Ein setning eftir síðasta tímabil: Ég tek
stigið á mig sem við töpuðum á móti
Gróttu.
Eitthvað eitt sem skýrir velgengi Vals í
handbolta kvenna að undanförnu: Valli
sjúkraþjálfari vill alltaf meina að þetta sé
honum að þakka en þá spyr ég hann af
hverju við höfum ekki verið að raða inn
jafn mörgum titlum þá er eitthvað minna
um svör hjá þessum svo ágæta dreng.
Hvernig verður þetta tímabil: Þetta
tímabil getur orðið mjög skemmtilegt
vegna þess hve deildin er jöfn.
Besti stuðningsmaðurinn: Konni er
kóngurinn, en svo fylgja honum fast á
hæla þeir Gísli, Jói, Bjössi, Gummi,
Siggi og fleiri meistarar.
Erfiðustu samherjarnir: Gunnar Krist-
inn Malmquist Þórsson er ekkert lamb að
leika sér við þrátt fyrir ungan aldur.
Erfiðustu mótherjarnir: Það getur ver-
ið erfitt að spila á móti Freysa Brynjars,
reynslan skilar sér.
Eftirminnilegasti þjálfarinn: Ætli ég
verði ekki að segja Nonni Halldórs sem
að fékk mig til að byrja í handbolta, hann
gerði og sagði margt eftirminnilegt.
Mesta prakkarastrik: Aðeins eitt prakk-
arastrik mitt hefur ratað í fréttirnar en
svona hljómaði einhver fyrirsögnin: Nakt-
ir karlmenn trufluðu umferð í Grafarvogi.
Ég og nokkrir aðrir töpuðum blakleik og
þurftum að taka afleiðingunum.
Stærsta stundin: Ætli það sé ekki fyrsti
meistaraflokks leikurinn sem var 22.
október 2009, hef sjaldan verið jafn
stressaður, en það var nú líka að miklum
hluta til vegna þess að fyrir leikinn var
Fannar Friðgeirs að skella lófunum sam-
an og þannig að minna mig á að eftir
leikinn yrði ég rassskelltur.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara
flokki kvenna hjá Val: Þorgerður Anna
er mjög töff.
En í meistaraflokki karla hjá Val:
Gunnar Harðarson og Magnús Einarsson
fá að deila þessum titli en þeir eru þess
virði að veita athygli.
Hvernig líst þér á yngri flokkana í
handbolta hjá Val: Mér finnst þeir flott-
ir, Óskar Bjarni, Heimir og fleiri góðir
menn búnir að taka vel til hendinni.
Mottó: „He who is not courageous enough
to take risks, will accomplish nothing in
life“
ÉgvilsjáValhalda
áframaðverða
stærstafélagáÍslandi
Sveinn Aron Sveinsson er 19 ára og leikur
handknattleik með meistaraflokki