Valsblaðið - 01.05.2012, Page 64

Valsblaðið - 01.05.2012, Page 64
64 Valsblaðið2012 sífelldar mælingar á ástandinu á mann- skapnum. Það er mikið lagt upp úr lyft- ingum. Við æfum tvisvar á dag þrjá daga vikunnar og æfingarnar eru tveir tímar í senn en heima voru þær einn og hálfur tími. Það munar um þetta enda álagið og tempóið meira. En hver er helsti munurinn á þjálfun­ inni? Félagsskapnum? Aðstöðunni? Aðsókn á leiki? Aðsóknin er miklu meiri hérna. Nýja höllin okkar tekur 2.500 manns og það var t.d. uppselt á móti Kolding. Annars er um 2.000 manns á hverjum leik. Stemningin er meiri því klukkutíma fyrir leik eru kannski mættir 1.500 manns í húsið. Hallirnar eru mun stærri, t.d. tekur hún 4–5.000 manns í Holsterbro og um 7.000 í Bröndby í Kaupmannahöfn og þegar það eru stór- leikir þá er oftast uppselt. Félagsskapur- inn er mjög góður og minnir um margt á hópinn heima. Við erum flestir á svipuð- um aldri nema hægri skyttan, hún er 32 ára. Við náum því ágætlega saman og reynum að gera ýmislegt saman utan æf- inga og leikja. Aðstaðan er mjög góð hérna og um margt mjög sambærileg við það sem er á Hlíðarenda. Höllin var tekin í notkun nú í ár. Hér er sérstök aðstaða fyrir styrktaraðila þar sem þeir eiga sín sæti í lúxusrými en höllin er nánast ein- göngu notuð fyrir handboltaliðið. Hvernig hefur liðinu gengið það sem af er þessu tímabili? Liðinu hefur gengið mjög vel. Við erum í sjötta sæti í dönsku deildinni af 14 liðum, fyrstu 11 leikirnir hafa gengið mjög vel. Það eru spilaðar tvær umferðir og síðan er átta liða úr- slitakeppni. Hver eru markmið liðsins fyrir keppn­ istímabilið? SønderjyskE var í fyrsta skipti í efstu deild á síðasta keppnistíma- bili og menn eru hægt og rólega að byggja liðið upp. Þeir enduðu í 11. sæti í fyrra, en núna er markið sett á úrslita- keppnina. En hvernig hefur þér persónulega gengið? Mér hefur gengið vel. Ég var fenginn út til að vera fyrsti kostur á miðj- unni en þeir eru líka búnir að segja við mig að maður þurfi að vera þolinmóður. Þetta kemur hægt og rólega en það eru vissulega mikil viðbrigði að koma frá Ís- landi. En eins og staða mín er sem leik- stjórnandi þá þarf maður að geta stjórnað spilinu og tala reiprennandi til að gera sig skiljanlegan. Ég hef verið að bæta mig í öllum prófum sem við höfum verið að taka. Það er ekki ætlast til að maður sé með allt á hreinu eftir 2 mánuði en þeir hafa sagt mér að þeir væru ánægðir með mig það sem af er. Heima var maður að spila allan leikinn en hér er tempóið mun hraðara og mannskapurinn látinn rúlla miklu meira. Ég spila því mismikið í hverjum leik. Ég hef ekki verið að skora mikið en er fyrst og að spila upp á línuna en hægri skyttan okkar er markahæsti maður deildarinnar og er iðulega 10 marka maður í hverjum leik. Fyrir vikið erum við að stilla mikið upp fyrir hann. En hvað voru fyrstu erfiðleikarnir sem þú rakst á þegar þú komst út? Til að byrja með var það tungumálið. Þó að maður hafi lært dönsku í skóla þá fólst það fyrst og fremst í því að lesa og skrifa og taka próf úr því. En það er aðeins öðruvísi að tala þegar vinnan felst í því að gefa fyrirskipanir. Það var þess vegna óþægilegt að geta ekki tjáð sig eins og maður hefði helst kosið og maður var vanur heima. En hvað var skemmtilegast við að koma út? Það eru þvílík forréttindi að fá tækifæri til að búa úti og kynnast nýjum hlutum og gera það sem manni þykir skemmtilegast. Ferðalögin, hallirnar og fólkið eru endalaus upplifun. En handboltalega hver er munurinn á handboltanum sem þú ert að spila núna í samanburði við boltann eins og þú þekktir hann hjá Val? Það er mikill munur. Það eru vissulega góðir leikmenn heima sem gætu verið að spila í dönsku deildinni. En heilt yfir er þetta mun stærra batterí. Í deildinni er nánast allt danska landsliðið, við æfum tvisvar á dag og það er mun meira lagt í allar æfingar og leiki. Öll umgjörð er umfangsmeiri. Það eru 3 þjálfarar sem eru á hverri æf- ingu og það er séð um allt fyrir okkur. Maður gerir sér grein fyrir því að þetta er ekki hægt á Íslandi þar sem mun minni peningar eru í spilinu. Menn eru í miklu betra formi og eru bara að einbeita sér að handbolta. Æfingarnar eru mun lengri og Ungiratvinnumenn Valserlendis Menneruhérímiklubetraformi enheimaogerubaraaðeinbeita séraðhandbolta Viðtal við Anton Rúnarsson sem spilar með SønderjyskE í Sønderborg á Jótlandi í Danmörku skammt frá landamærum Þýskalands og Danmerkur. Það er því stutt að skjótast til Flensborgar eða jafnvel Kiel í Þýskalandi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.