Valsblaðið - 01.05.2012, Page 76
76 Valsblaðið2012
foreldrastarfinu. Hún hefur líka komið
með í allar utanlandsferðir. Foreldrar
mínir leggja mikið uppúr því að ég mæti
á æfingar og stundi íþróttina af kappi.
Stuðningur systkina skiptir líka miklu
máli, eldri systkini geta verið góðar fyrir-
myndir. Oft velja yngri systkini sömu
íþrótt og þau eldri.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar í
handbolta? „Ég ætla að halda áfram í
handbolta eins lengi og ég get. Ég stefni
á að spila úti í Noregi eða Danmörku en
hérna heima kæmi ekkert annað lið til
greina en Valur.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra
Friðrik stofnaði Val. Láttu aldrei kappið
bera fegurðina ofurliði voru hans ein-
kunnarorð.“
Hulda Steinunn hefur æft handbolta hjá
Val í um 10 ár og hún er á því að Valur sé
langbesta félagið. Henni finnst að yngri
flokkar kvenna þurfi að fá betri æfinga-
tíma. „Það gengur ekki að strákarnir séu
alltaf í forgangi.
Hvernig gengur ykkur í vetur? „Okkur
gengur bara nokkuð vel. Erum búnar að
spila tvo leiki á tímabilinu og við unnum
þá báða. Hópurinn er allur að smella
saman, við erum góð heild. Þjálfararnir
eru frábærir, forréttindi að hafa Kalla Er-
lings og Hröbbu.“
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í hand
boltanum? „Mér finnst mjög mikilvægt
að hafa góðar fyrirmyndir, þær hvetja
mann áfram í handboltanum til að verða
betri. Mínar fyrirmyndir eru Hrabba,
Anna Úrsúla og Fúsi.“
Hvað þarf til að ná langt í íþróttum?
„Stuðningur fjölskyldu skiptir miklu
máli. Auðvitað þarf áhugi að vera fyrir
hendi. Góðir þjálfarar og liðsheild skipta
einnig mjög miklu.“
Hvers vegna handbolti? „Ég ákvað að
prófa handboltaæfingu eftir að íþróttin
var kynnt í skólanum. Ég var alveg
ákveðin eftir fyrstu æfinguna að þetta
væri eitthvað fyrir mig.“
Hverjir eru helstu Valsararnir í fjöl
skyldunni? „Ég er fyrsti Valsarinn í fjöl-
skyldunni, en mér hefur tekist að koma
þeim öllum yfir í Val.“
Stuðningur fjölskyldu? „Ég hef mjög
mikinn stuðning frá foreldrum. Mamma
mætir á alla leiki og tekur virkan þátt í
UngirValsarar
Mérhefurtekist
aðgeraallaí
fjölskyldunniað
Völsurum
Hulda Steinunn Steinsdóttir er 17 ára og
leikur handknattleik með 3. flokki
Valsmennhf.óskaöllum
Valsmönnumnærogfjærgleðilegrajóla
ogfarsældarákomandiárimeðþökk
fyrirsamstarfiðáárinusemeraðlíða