Valsblaðið - 01.05.2012, Page 80
80 Valsblaðið2012
Starfiðermargt
fjármagna kaup á hlutum sem Valur
þyrfti annars að kaupa og gætu þar með
létt undir róðurinn. Var mikil stemning
fyrir þessari hugmynd og stjórn falið að
útfæra hana frekar.
Á aðalfundi Vals í apríl færðu Fálkar
félaginu 25 fótbolta til notkunar fyrir
yngri flokka að verðmæti 100 þúsund að
gjöf.
Kraftlyftingakeppni
Nokkrir hraustir Fálkar stunda líkams-
rækt af miklum móð yfir vetrartímann og
í vor var svo blásið til kraftlyftinga-
keppni. Tóku Fálkar þar hraustlega á lóð-
unum en leikar fóru svo að lokum að ex-
cel tröllið Sigþór sigraði eftir harða
keppni. Heyrst hefur að til standi að end-
urtaka leikinn á vori komanda en hafa
mótið opið, þannig að hraustir Valsarar
ættu að fylgjast spenntir með auglýsing-
um þegar líður að vori.
Grillað af miklum móð
Á maí fundinum var eins og venjulega
hátíðardagskrá þar sem Fálkar og makar
skemmtu sér og brýndu grilláhöldin fyrir
komandi vertíð. Að lokum var fjölmennt
á afmælishóf Vals sem var velheppnað
og vonandi orðinn fastur liður á dagatali
Valsmanna.
Yfir sumarmánuðina liggur hefðbund-
ið fundarhald niðri en það er ekki þar
með sagt að Fálkar sitji auðum höndum.
Að sjálfsögðu stóðu menn vaktina á öll-
um heimaleikjum karla og kvenna nema
einum og grilluðu af miklum móð ofan í
Fálkar byrjuðu árið 2012 með trukki og
stóðu fyrir sameiginlegri dósa- og jóla-
trjáasöfnun hjá öllum yngri flokkum
félagsins. Er skemmst frá því að segja að
söfnunin tókst frábærlega og safnaðist á
vel á aðra miljón sem að flokkarnir skiptu
á milli sín eftir fyrirfram ákveðnum
reglum. Fálkarnir stóðu svo fyrir þrett-
ándabrennu með flugeldasýningu og öllu
tilheyrandi og var gerður góður rómur að.
Viðamikil starfsemi Fálkanna og
fjölgun í hópnum
Venju samkvæmt var svo aðalfundur
félagsins haldinn í febrúar þar sem Hilm-
ar Böðvarsson gekk úr stjórn og vill fé-
lagið þakka Hilmari fyrir frábær stjórnar-
störf. Í hans stað var kosinn Rúnar D
Bjarnason og bjóðum við hann velkom-
inn í stjórn. Að öðru leyti var stjórn og
formaður einróma endurkjörinn. Var svo
gengið til að skipa í nefndir og ráð Fálka
og er óhætt að segja að allir Fálkar hafi
fengið verkefni og sumir allnokkur þar
sem starfsemi Fálka hefur vægast breitt
úr sér og er orðin ansi viðamikil. All-
nokkur umræða var um hvort við ættum
að rifa seglin eitthvað en niðurstaðan var
að halda áfram á fullri ferð en gera átak í
því að fjölga félagsmönnum. Sem tókst
ágætlega og fjölgaði Fálkum um 7 manns
á árinu og telur félagið í dag 34 karla
sem leggja sig alla fram við að styðja við
barna- og unglingastarf Vals.
Skemmtilegustu leikir vetrarins
Á mars fundi var tekinn ákvörðun um að
færa út kvíarnar í grillmálunum og bæta
hamborgurum á matseðilinn. Að loknum
miklum bragðprófunum og verðsaman-
burði var ákveðið að ganga til samstarfs
við snillingana hjá Kjarnafæði. Ljóst er
að það var mikið heillaskref fyrir félagið
og verður án nokkurs vafa framhald á því
samstarfi. Í mars voru einnig skemmti-
legustu leikir vetrarins sem að óhætt er
að kalla einn af hápunktum vetrarstarfs
Fálkanna. 4. flokkur karla og kvenna
yngri og eldri spiluðu leiki í Vodafone-
höllinni í fullri stærð með tónlist, vallar-
þul í svakalegu stuði, heiðursgestum og
grillstemningu. Tókst þetta vægast sagt
frábærlega og vakti umtalsverða athygli
gestaliða og stuðningsmanna.
Fjárstuðningur til yngri flokka og
félagsins
Á apríl-fundinum voru miklar umræður
um styrkveitingar félagsins og að þeim
loknum var ákveðið að verja 400 þúsund
krónum í ferðastyrki til fjögurra flokka í
handbolta og knattspyrnu sem fóru í vík-
ing til ýmissa landa. Einnig var á þeim
fundi tekið fyrir, rætt og samþykkt að í
ljósi efnahagsástandsins og erfiðs rekst-
urs hjá Val yrði hagnaði af sumargrilli
ársins veitt til Knattspyrnufélagins Vals.
Það yrði gert þannig að Fálkar myndu
ViðburðaríktFálkaár
Eftir Benóný Val Jakobsson formann Fálkanna
Benóný Valur Jakobsson selur Vals-
rúmföt fyrir Fálkana.