Valsblaðið - 01.05.2012, Page 81
Valsblaðið2012 81
Félagsstarf
en flest vel heppnað og telst mönnum til
að Fálkar hafi á sinni stuttu starfsævi
skilað u.þ.b. 1,5 milljónum kr. í beinum
peningum til barna- og unglingastarfs
Vals fyrir utan þau fjölmörgu handtök
sem félagarnir hafa lagt fram.
Fálkar vilja vekja athygli á því að fé-
lagið er opið öllum karlmönnum 18 ára
og eldri og svo sannarlega getum við
bætt við okkur mannskap sem vill starf
barna- og unglingasviðs sem mest og
best.
Að lokum óska Fálkar öllum Völsur-
um gleðilegra jóla og farsæls komandi
árs, um leið og við minnum á að fljótlega
eftir áramót koma glaðbeittir Valskrakkar
að safna dósum og trjám og biðjum við
ykkur um að taka vel á móti þeim.
f.h. Fálka
Benóný Valur Jakobsson, formaður
gesti og gangandi. Alls runnu 1.500 ham-
borgarar og 2000 pylsur ofan í gesti
Vodafonevallarins í sumar við mikla
ánægju þeirra sem nutu.
Skemmtilegustu leikir sumarsins
Einn af stærstu viðburðum Fálka hvert ár
eru skemmtilegustu leikir sumarsins og
var engin undantekning á því þetta sum-
arið. 4. og 3. flokkur karla og kvenna
léku leiki á Vodafonevellinum með fullri
umgjörð. Fánaborgir, vallarþulur, grill-
stemning og heiðursgestir. Úrslit leikj-
anna voru allavega en þetta vekur alltaf
mikla athygli gestaliðsins og er umtalað
hversu vel Valur stendur sig gagnvart sín-
um yngri flokkum og öðrum liðum til
eftirbreytni.
Stuðningur við börn af erlendum
uppruna
Fljótlega eftir að Fálkar voru stofnaðir
fór af stað hugmyndavinna um að hvern-
ig hægt væri að hjálpa til við að koma
börnum af erlendu bergi brotnu betur inn
í íþróttastarf Vals. Nokkrir vaskir Fálkar
gripu hugmyndina svo á lofti og fóru á
fund allmargra aðila og skemmst frá því
að segja að á haustdögum bárust þau tíð-
indi að elja þeirra og vinnusemi hefði
borið árangur. Verkefnið fór svo á fullt
og endaði með því að þau börn og for-
eldrar enduðu æfingatörnina í desember
með sameiginlegum tíma og svo í súpu
og meðlæti í boði Fálka. Góð byrjun á
verkefni sem á klárlega eftir að stækka
og dafna.
Fjölbreytt starf
Í september héldu Fálkar grill uppskeru-
hátíð og funduðu með óhefðbundnu sniði
buðum meðal annars Valkyrjum að kíkja
í heimsókn og heppnaðist þetta kvöld í
alla staði vel. Fálkar í samstarfi við
Kjarnfæði tóku virkan þátt í hverfahátíð-
inni sem haldin var á Hlíðarenda og grill-
uðu og gáfu pylsur fyrir alla sem vildu. Í
september færðu Fálkar Val 120 hand-
bolta til notkunar fyrir yngri flokka að
verðmæti 300 þúsund að gjöf. Einnig
styrktu Fálkar tvo þjálfara til námsferðar
erlendis um 100 þúsund kr. Gerum við
fastlega ráð fyrir að þetta muni skila fé-
laginu hæfari þjálfurum og að þau muni
miðla þekkingu sinni til annarra þjálfara.
Október-fundurinn var með hefð-
bundnu sniði þar sem málin voru rædd
og Hörður Hilmarsson kynnti starfsemi
ÍT ferða ásamt því að segja óborganlegar
sögur úr starfi Vals að fornu og nýju. Í
október færðu Fálkar Val 100 fótbolta til
notkunar fyrir yngri flokka að verðmæti
350 þúsund kr. að gjöf.
Eins og venja er til er ekki haldinn
hefðbundin fundur í nóvember heldur
fylkja Fálkar liði á herrakvöld Vals sem
var að venju hin besta skemmtun og
sannarlega orðinn órjúfanlegur hluti af
starfsemi Fálka. Í nóvember færðu Fálk-
ar Val 40 körfubolta til notkunar fyrir
yngri flokka að verðmæti 120 þúsund kr.
að gjöf.
Í desember héldu Fálkar upp á 3 ára af-
mæli félagsins með pomp og prakt. Enn
eitt viðburðarríkt ár að baki þar sem að
menn litu aðeins um öxl og fóru yfir far-
inn veg. Ýmislegt hefði mátt gera betur
Bjarni Hinriksson Fálki afhendir Viðari Bjarnasyni nýjum íþróttafulltrúa Vals bolta
bolta að gjöf, en Fálkarnir færðu félaginu á árinu að gjöf marga körfubolta, handbolta
og fótbolta.
Fálkarnir grilluðu af miklum móð á heimaleikjum Vals að Hlíðarenda og ágóðinn var
nýttur til að styrkja barna- og unglingastarfið hjá félaginu.