Valsblaðið - 01.05.2012, Side 83
Valsblaðið2012 83
EftirSigurðÁsbjörnsson
Viðerumbúnirað
vinnaallaleiki
Arnór Snær Óskarsson fór með fjöl
skyldunni til Viborgar þar sem hann
æfir m.a. handbolta með jafnöldrum
sínum. Arnór er sonur Óskars
Bjarna Óskarssonar sem þjálfaði
meistaraflokk í áraraðir. Blaðamað
ur Valsblaðsins hitti Arnór þegar
hann var í helgarfríi á Íslandi en frí
ið notaði hann einmitt til að spila
með sínum gömlu félögum í túrner
ingu á Íslandsmótinu í handbolta í 5.
flokki Ertu búinn að spila á mörg
um túrneringum með Viborg? Nei. Það eru ekki túrneringar
við spilum reglulega leiki einu sinni í viku. Stundum á
heimavelli, stundum á útivelli.
Er fyrirkomulagið svipað á æfingum í Danmörku og á Ís
landi? Já það eru tveir árgangar sem æfa saman. Núna æfum
við sem erum fæddir árið 2000 með strákum sem eru ári yngri.
En þegar við keppum þá er alveg skipt í árganga.
Hvernig hefur liðinu gengið í þínum flokki og hvernig hefur
þér gengið? Mér hefur gengið vel, við erum búnir að vinna alla
leiki.
Hver er helsti munurinn á því að spila með Val eða Viborg í
þínum aldursflokki? Strákarnir eru álíka góðir. En það eru um
15 strákar sem eru jafngamlir mér og æfa með Viborg en 23
með Val. Þjálfarinn er pabbi stráks í liðinu. Við æfum þrisvar í
viku.
Ef þú værir að fylgjast með Val og Viborg keppa. Hvort liðið
myndi vinna leikinn í þínum aldursflokki? Valur myndi
vinna.
Hvað var erfiðast við að koma út og spila með Viborg? Þetta
var allt mjög svipað og því ekkert erfitt fyrir mig.
Finnst þér dönsku liðin vera svipuð og íslensku liðin? Þau
eru betri á Íslandi.
Eru margir skólafélagar þínir sem æfa handbolta með þér?
Nei, enginn. Hinir strákarnir í liðinu koma allir úr öðrum skól-
um en ég.
Hver munurinn á aðstöðunni hjá Val og Viborg? Aðstaðan
hjá Viborg er miklu stærri og mér finnst hún betri.
Er munur á hvatningunni frá foreldrum þegar þeir koma að
fylgjast með leikjum? Þeir eru rólegri í Danmörku.
Ef þú ættir að gefa okkur Valsmönnum ráð um hvað við
gætum lært af þeim úti í Viborg í þínum aldursflokki? Vi-
borg liðið tuðar ekki en við tuðum dálítið hérna í Val.
En ef þú ættir að ráðleggja Viborg eitthvað sem við gerum
betur, hvað dettur þér í hug? Að spila vörn, þeir eru mjög
slappir í vörn.
Hvernig heldurðu að Valsliðinu þínu hefði gengið í deildinni
úti í Danmörku? Það væri búið að vinna alla. En ef Viborg
hefði keppt í túrneringunni í stað Vals? Við hefðum unnið alla
nema einn.
Hvaða stöðu spilarðu með Viborg og hvernig skrifar maður
það á dönsku? Ég spila sem hægri skytta sem er højre back.
ÍViborgeruþeirekki
meðbikaraskápeins
ogíValsheimilinu
Benedikt Gunnar Óskarsson er
yngri bróðir Arnórs Snæs og æfir og
spilar handbolta með Viborg í Dan
mörku. Valsblaðið mælti sér mót við
Benna þegar hann var í helgarfríi á
Íslandi fyrir skömmu
Hjá hvaða liði ertu að æfa handbolta
og hver þjálfar? Ég æfi með Viborg
og þjálfarinn minn heitir Peter.
Hvernig er mótafyrirkomulagið í
Danmörku og hvernig hefur ykkur
gengið á keppnistímabilinu? Flokkurinn minn heitir U-10 og í
honum spila allir sem eru 10 ára og yngri. Í mínu liði erum við
allir jafngamlir, 10 ára. Við keppum við önnur lið á Jótlandi sem
er stórt landsvæði í Danmörku. Okkur hefur gengið vel, við
erum í fyrsta sæti enda búnir að vinna alla. Mér hefur gengið vel
og hef náð að skora svolítið af mörkum.
Hversu oft æfið þið í viku? Við æfum tvisvar í viku. En við
æfum samt lengur heldur en gert er á Íslandi. Æfingarnar eru í
einn og hálfan klukkutíma.
Ef þú reynir að bera saman Valsliðið sem þú varst að spila
með á Íslandi og Viborg liðið sem þú spilar með núna, hvort
liðið er betra? Ég held að það sé Viborg.
En ef Valsliðið sem þú spilaðir með hefði verið að spila á Jót
landsmótinu í handbolta í staðinn fyrir Viborg, hvernig
heldurðu að Val hefði gengið? Ábyggilega svipað og Viborg
hefur gengið. Valur væri sennilega efstur. En ef Viborg væri að
spila á Íslandi? Þeir væru örugglega í toppbaráttu í bestu deild-
inni.
Eru aðrir útlendingar sem spila með Viborg í þínum flokki?
Nei, ég er sá eini.
Hver er munurinn á aðstöðunni á æfingum hjá Val og Vi
borg? Við höfum alltaf heila höll til að æfa í. Við notum höllina
þar sem meistaraflokkur Viborg spilar sína leiki.
Geturðu bent á eitthvað sem er miklu betra hjá Viborg held
ur en hjá Val? Við erum með fimm hallir hjá Viborg. Þær eru
reyndar líka notaðar fyrir badminton, körfubolta og fótbolta. En
ég æfi fótbolta hjá Söndermarke Idræts Klub.
Hefurðu tekið eftir einhverju
sem við gerum betur hjá Val
heldur en hjá Viborg? Þeir
eru ekki með svona bikaraskáp
eins og er í Valsheimilinu. Bik-
ararnir eru bara uppi á skrif-
stofu hjá þeim.
Hvaða stöðu spilarðu með Vi
borg og hvernig skrifar mað
ur það á dönsku? Ég spila á
miðjunni sem er playmaker.