Valsblaðið - 01.05.2012, Side 91

Valsblaðið - 01.05.2012, Side 91
Valsblaðið2012 91 Starfiðermargt Á næsta ári fagnar Valskórinn 20 ára afmæli. Í tilefni þess fædd- ist sú hugmynd að leggja land undir fót innanlands eða utan. Nú hefur verið ákveðið að fara í söngferðalag til Belfast og endur- nýja kynni okkar við Glentoran FC sem við lékum við í Evrópu- keppninni 1977. Þegar Valur og Glentoran mættust í Evrópu- keppni meistaraliða 1977 vann Valur frækilegan sigur í heima- leiknum sem var 15. september, en Valur tapaði útileiknum hálfum mánuði síðar 0-2. Valsblaðið hefur heimildir fyrir því frá leikmönnum sem tóku þátt í þessum leik að þeir hafi verið væg- ast sagt óhressir með þetta tap. Hörður Hilmarsson segist muna eftir því að þeir hafi ekki klappað fyrir dómara tríóinu þegar þeim voru afhentar gjafir í hófi eftir leikinn, enda þóttust Valsar- ar hafa verið rændir vítaspyrnu í leiknum og annað marka Glen- toran hefði ekki átt að standa. Valsarar voru alls ekki sáttir við að falla úr leik með þessum hætti. Afmælisferð Valskórsins Valskórinn er einstakur sem eini kórinn sem rekinn er innan íþróttafélags á Íslandi. Í honum eru 27 virkir þátttakendur og æfingar eru yfir veturinn alla mánudaga í Friðrikskapellu kl.19– 21. Kórstjóri er Bára Grímsdóttir tónskáld. – Þegar farið var að ræða fyrirhugaða ferð fæddist sú hugmynd að koma á fótbolta- leik og golfkeppni milli félaganna. Ferðatilhögun ÍT ferðir hafa tekið að sér að skipuleggja ferðina og er til- högun eftirfarandi: Fimmtudagur (sumardagurinn fyrsti) 25. apríl; KEF-Belfast kl.12:40–16:20 Sunnudagur 28. apríl; Belfast-KEF kl.16:50– 18:25 Drög að dagskrá: Fimmtudagur: Ferðalag, innritun á Hótel Park Inn, golf, verslunarferð, bjórsmökkun. Föstudagur: Glentoran Legends v Valur Legends á heima- velli Glentoran, The Oval kl.17:15 Fyrirliði Vals er Guðni Bergs- son. Guðni liggur undir feldi með Val á liðinu, en Glentoran hef- ur þegar valið 7 leikmenn frá liðinu 1977. HENSON mun í til- efni þessa leiks gera búninga fyrir bæði liðin. Lagt hefur verið til að sem flestir úr báðum liðum sem léku 1977 leiki a.m.k. fyrri hálfleikinn. Í gögnum Glentoran má lesa eftirfarandi um leikaðferð Valsmanna; „Players (Glentoran) had been warned not to get involved when Valur resorted to pushing, ankle- tapping and shirt tugging which is part of their tradition“ (!) Laugardagur: kl. 09:00 Golfkeppni; Glentoran v Valur. Leik- ið á Knock Golf Course sem vígður var 1895. Fyrirliði Vals er Stefán Hilmarsson. Stefán liggur undir sama feldi og Guðni, en Glentoran hefur þegar tilnefnt 5 kylfinga í sitt lið. Kl.17:00– Tónleikar í Stormont. Fram munu auk Valskórsins koma lista- menn úr röðum heimamanna. Stormont hýsir írska þingið og þar fór fram útför George Best 5. des. 2005. Um kvöldið fagna félögin saman þar sem stuðningsmannaklúbbur Glentoran hef- ur ákveðið að afmælishald vegna 90 ára afmælis verði haldið í tengslum við komu Valsmanna. Þetta er einstök ferð og um að gera að taka makann með, kærustu eða vin. Verð er kr. 102.900 og miðast við gistingu í 2ja manna herb. og gengi GBP 15. okt. 2012. Skráning: Nafn, kennitala, sími og póstfang + staðf.gjald kr. 30.000 pr. mann. Bókun skal send á itferdir@itferdir.is eða fax 588 9901. Valskórinn 20ára Ævintýraferð Valsmanna til Belfast í apríl 2013 Valskórinn hélt sína árlegu jólatónleika í Friðrikskapellu í desember í ár. Frá vinstri: Erla Vilhjálmsdóttir, Sigurður Guð- jónsson, Elísabet Anna Vignir, Guðrún Grímsdóttir, Halldór Einarsson, Þuríður Ottesen, Karítas Halldórsdóttir, Sóley Ingadóttir, Hrafnhildur Ingólfsdóttir, Ólafur Sigurðsson, Bára Grímsdóttr stjórnandi Valskórsins, Anna Sigríður Jóhannsdóttir, Chris Foster, Guðbjörg B. Petersen, Þóra Sjöfn Guðmundsdóttir, Sunna Gunlaugsdóttir pianóleikari, Þórarinn G. Valgeirsson, Jón Guðmundsson, Björk Steingrímsdóttir, Guðmundur Frímannsson, Elínrós Eiríksdóttir, Emilía Ólafsdóttir, Lára Kristjánsdóttir, Nikulás Úlfar Másson, Hrefna Þórðardóttir, Sólborg Sumar- liðadóttir og Helga Birkisdóttir. Mynd Þorsteinn Ólafs.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.