Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 94
94 Valsblaðið2012
Ungiratvinnumenn Valserlendis
spila mikið á miðju og jafnvel í horni og
spila því flestar mínútur. Það er ætlast til
að miðjan hafi fulla stjórn á spili liðsins
og þjálfarinn lætur mann heyra það þegar
sóknin klikkar. Í haust var gert ráð fyrir
því að ég byrjaði í horninu og ég var á
fullu að undirbúa það en síðan hef ég í
raun minnst spilað þar í vetur, aðallega
vegna meiðsla í liðinu. Hópurinn er frem-
ur þunnskipaður vinstra megin.
Hvað var erfiðast við að koma út og
spila? Mér gekk vel frá byrjun, félagi
minn í sömu stöðu í Dusseldorf meiddist
snemma og ég spilaði því strax 60 mínút-
ur í leikjum. Það var mér mjög dýrmætt.
Tungumálið var erfitt í fyrstu en ég kom
inn í góðan hóp af strákum. Liðinu gekk
reyndar ekki vel og framkvæmdarstjór-
inn kom á fund með okkur í október og
sagði að við yrðum að fara að vinna leiki,
annars færi liðið á hausinn. Þetta var
kannski ekki alveg rétt því félagið var að
glíma við gamlar skuldir en samt sem
áður það var fullyrt að við yrðum að vera
duglegir að hala inn stig til að halda
styrktaraðilunum. Pressan varð gríðarleg
í kjölfarið.
En hvað var skemmtilegast við það að
koma út? Meiri stemning í stærra um-
hverfi. Meiri athygli.
En handboltalega hver er munurinn á
handboltanum sem þú ert að spila
núna í samanburði við boltann eins og
þú þekktir hann hjá Val? Í deildinni hjá
okkur eru 20 lið og meiri fjöldi af góðum
leikmönnum. Það eru því færri veikir
hlekkir í hverju liði, mun meira af skytt-
um sem þarf að ganga út í. Frjálst spil er
illa séð og ef maður leyfir sér eitthvað
frjálsræði þá er eins gott að skora, annars
ertu settur á bekkinn. Æfingarnar eru
svipaðar og maður þekkir að heiman.
Núna er ég með sænskan þjálfara en var
áður með Dana. En maður heyrir lýsing-
ar af því hvernig sumir þýskir þjálfarar
vinna og finnst það hálfgert rugl. Þeir
eiga það til að vera með útihlaup daginn
eftir tapleik sem skilar engu fyrir þjálfun
leikmannanna en er bara refsing fyrir
slæm úrslit.
En hver er munurinn á félagsskapnum
hjá Emstetten og hjá Val? Í Dusseldorf
var mikið af strákum sem voru upprunnir
af svæðinu. Það var svolítill ungmenna-
félagsbragur yfir því, án þess þó að þeir
væru til í að gera allt fyrir liðið. Það var
þægilegur hópur. Hér hjá Emsdetten
erum við 7 útlendingar og það er því al-
þjóðlegri bragur á hópnum. Hérna búa
samt flestir í Emsdetten þannig að það er
Hvernig hefur liðinu gengið það sem af
er tímabilinu? Mjög vel. Við erum í
öðru sæti sem stendur.
Hver er stefna liðsins fyrir tímabilið?
Planið er að undirbúa liðið fyrir efstu
deildina. En það felst aðallega í því að
auka fagmennskuna í kringum liðið. Yf-
irlýst markmið er að gera betur en síðast
en þá enduðum við í sjötta sæti. En liðið
hefur verið í 2. deild í 25 ár utan eitt ár
sem liðið féll. En nú er stefnt að efstu
deild og að halda sig þar en það þarf að
bæta ýmislegt til að það gangi.
En hvernig hefur þér gengið í hand
boltanum? Spilarðu mikið í hverjum
leik? Mér hefur gengið vel. Ég fór út fyr-
ir einu og hálfu ári og fór þá til Dussel-
dorf. Þar spilaði ég skyttu allan tímann.
Liðið fór á hausinn um áramótin en sem
betur fer var ég búinn að standa mig vel
og var markahæstur hjá liðinu. Þess
vegna fékk ég nýjan samning á miðju
tímabili hjá Emsdetten og þar hef ég ver-
ið síðan. Það er töluverð samkeppni um
hægri skyttuna. Við erum með austur-
rískan landsliðsmann í þeirri stöðu og
Hvítrússa sem var markahæstur í Bun-
desligunni fyrir nokkrum árum. En ég
Viðerummiklubetri
íaðbúatilleikmenn
heimaáÍslandi
Viðtal Erni Hrafn Arnarson sem spilar með
Emstetten í næst efstu deild í Þýskalandi, en
Emstetten er okkur Valsmönnum vel kunnugt því
þeir Sigfús Sigurðsson og Fannar Friðgeirsson
spiluðu með liðinu en þess utan þjálfaði Patrekur
Jóhannesson liðið fyrir tveimur árum