Valsblaðið - 01.05.2012, Side 96

Valsblaðið - 01.05.2012, Side 96
96 Valsblaðið2012 Starfiðermargt leyfi til þess að skipta um lit á keppnis- búningum, fjármagn og tíminn var einnig naumur, aðeins nokkrar vikur voru í október. En eins og okkur Valsstelpum er lagið þá ákváðum við að láta reyna á það þó svo að við værum ekki alveg vissar hver útkoman yrði. Gústi þjálfari sagðist ekki hafa mikinn tíma fyrir þetta verkefni en ætlaði að tala við stjórn Vals og KKÍ og láta okkur svo vita ef hann fengi leyfi fyrir búningunum. Næst þegar við hittum Gústa var hann búinn að tala við Val og KKI og hafði fengið jákvæð svör. Hann hafi ekki ein- ungis gert það heldur einnig talað við Svala Björgvinsson formann körfuknatt- leiksdeildar, sem leist líka svona vel á hugmyndina, og þeir talað við Íslands- banka, sem vildu endilega styrkja okkur um búningana, og Henson, sem vildi glaður hanna og prenta þá. Okkur stelp- unum langaði ekki aðeins að sýna stuðn- ing við málefnið heldur langaði okkur einnig að styrkja það. Við gengum á milli fyrirtækja og söfnuðum styrkjum í skipti fyrir logo aftan á upphitunartreyjunum okkar. Mörg frábær fyrirtæki lögðu mál- efninu lið og söfnuðust 410.000 kr. Þau í Margt smátt voru svo yndisleg að gefa okkur upphitunartreyjur og prentunina. Holl áminning um mikilvægi forvarna Mjög gaman var að sjá litla hugmynd verða að veruleika og hversu jákvæð og mikil viðbrögð þetta verkefni hjá okkur fékk. Við spiluðum í bleikum búninum allan október og kvöddum þá með trega. Við þökkum öllu því frábæra fólki og fyrirtækjum sem lögðu okkur lið til þess að þetta verkefni gat orðið að veruleika. Við vonumst til þess að þetta verði árlegt hjá okkur að spila í bleikum búningum og jafnvel hjá öllu félaginu í heild sinni. Samhliða undirbúningi fyrir komandi keppnistímabil, söfnuðu liðsmenn Vals fé sem rann til átaksins. Að auki lék liðið í sérhönnuðum bleikum búningum í októ- bermánuði og þannig með táknrænum hætti kom að því að auka vitund íþrótta- fólks og annarra á mikilvægi forvarna og heilbrigðis. Í rúm 100 ár hefur það verið eitt meg- inhlutverk Vals að auka hreysti hugar og líkama og efla skilning á mikilvægi íþrótta sem forvarna. Því er það sameig- inlegt markmið og verkefni Vals og Krabbameinsfélagsins að stuðla að aukn- um lífsgæðum og skynsömu líferni. Það er von okkar Valsmanna og vissa að þessi söfnun og þetta vitundarskref aðstoði Krabbameinsfélagið í mikilvægum verk- efnum þess. Í þessu samhengi er gott að minnast einkunnarorða Vals: Látið aldrei kappið bera fegurðina ofurliði. Valsblaðið bað stelpurnar í körfunni að greina frá þessu verkefni, m.a. hvernig það kom til og hér á eftir fer greinargerð stelpnanna: Valsstúlkur í bleiku Þessi skemmtilega hugmynd kviknaði í æfingarferð okkar Valsstelpna í Kaup- mannahöfn síðastliðið haust, 2012. Við sátum öll saman á HardRock síðasta kvöldið eftir vel heppnaða æfingaferð, þegar þjónustustúlkan á HardRock bauð okkur að kaupa ljósbleik gúmmíarmbönd til styrktar bleiku slaufunni þar í landi. Við keyptum allar eitt band enda brýnt málefni sem snertir okkur allar og þarf á stuðningi að halda hvar sem er í heimin- um. Við kaup á þessu armbandi kviknuðu umræðum um hvernig við Valsstelpur gætum sem lið sýnt bleiku slaufunni stuðning heima fyrir. Hugmyndirnar voru ekki háleitar og voru á borð við að spila með bleikar hárteyjur eða bleikar reimar í körfuboltaskónum. Haddý aðstoðar- þjálfari spurði okkur afhverju við mynd- um ekki bara spila í bleikum búningum eins og tíðkast í bandarískum háskóla- körfubolta. Okkur fannst hugmyndin frá- bær en viðamikil. Til þess að þessi hug- mynd yrði að veruleika þyrfti að fá ýmis Valsstúlkuríkörfu lékuíbleikuíoktóber Í tilefni átaks Krabbameinsfélagsins í október, Bleiku slaufunnar, ákvað kvennalið körfuknattleiksdeildar Vals að leggja þessu þarfa málefni lið Ragnar Már Vilhjálmsson frá Íslands- banka og Ragnheiður Haraldsdóttir for- maður Krabbameinsfélags Íslands taka við söfnunarfé frá Valsstúlkunum Rögnu Margréti Brynjarsdóttur og Lilju Ósk Sigmarsdóttur .
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.