Valsblaðið - 01.05.2012, Page 103

Valsblaðið - 01.05.2012, Page 103
Valsblaðið2012 103 Starfiðermargt Hinar árlegu Sumarbúðir í borg voru haldnar í júnímánuði þetta árið. Um var að ræða tvö tveggja vikna námskeið og voru alls 65 krakkar skráðir á námskeið- in. Skólastjóri sumarbúðanna var Lýður Vignisson íþróttafræðingur. Aðrir starfs- menn sumarbúðanna voru iðkendur úr deildum félagsins og voru það krakkar á aldrinum 15–20 ára. Flestir þessara starfsmanna hafa unnið í nokkur ár við sumarbúðirnar og eru þau orðin þaulvön, fær í sínu starfi og skiluðu því með mikl- um sóma. Unnið er að aukinni hreyfigetu og lík- amlegu atgerfi í umhverfi sem er öruggt, ögrandi og hvetjandi. Unnið er í fjöl- breyttum leikjum sem reyna á samvinnu, samhæfingu líkamans, athyglisgáfu, snerpu, styrk, liðleika, þol og gróf- jafnt sem fínhreyfingar. Framkoma, hegðun og tjáning er æfð meðal annars með söng, dansi og í leikjum með aðstoð starfs- manna sem aðstoða og taka þátt í leikjum á jákvæðan hátt. Fjölmargar heimsóknir voru á dag- skránni í sumar og voru þær eins mis- munandi og þær voru margar. Í heimsókn til slökkviliðsins fengu krakkarnir kynn- ingu á starfsemi slökkviliðsins, skoða bílana og prófa að sprauta vatni úr slöng- um. Hjá Landhelgisgæslunni fengu krakkarnir að skoða þyrlurnar en mest þótti þó spennandi að skoða lítinn vinnu- bíl sem er á svæðinu enda mátti prófa flautuna á þeim bíl. Á Árbæjarsafninu var farið í kynningu um svæðið og fengu börnin að kynnast því við hvaða aðstæð- ur fólk bjó á árum áður. Krakkarnir fengu svo að fara í ratleiki um Þjóðminjasafnið og tengdust leikirnir ýmsum fróðleiks- mólum sem mátti finna á safninu. Sund- ferðir í Laugardalslaugina voru mjög vin- sælar enda vorum við einstaklega heppin með veður í bæði skiptin. Krakkarnir fengu svo að kynnast starfsemi Smára- bíós og fengu að sjá sýningavélarnar og hvernig þeim er stjórnað. Börnin fengu popp og svaladrykk og voru svo kvödd með gjöfum. Það er einnig orðinn fastur liður að fara með hópinn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn þar sem að börnin fá að skoða dýrin og leika í leiktækjum auk þess sem öllum er boðið upp á grillaðar pyslur og svaladrykk í hádeginu. Margt var dundað dags daglega enda auðvelt að nýta þau svæði sem eru í kringum Valsheimilið auk þess sem að Hliðarendi sjálfur býður upp á margs konar möguleika. Á Valssvæðinu var far- ið í margskonar leiki, bæði innandyra sem utan. Boltaleikir og aðrar íþróttir, sjóræningjasaga og fjársjóðsleit, veggja- krotskeppni í portinu, Ólympíuleikar og ratleikir er á meðal þess sem við gerðum á Hlíðarenda. Einnig var farið í ratleik í Öskjuhlíðinni og grillaðir sykurpúðar, hjólaferð í Nauthólsvík og farið í leiki á ströndinni, Bátsferð á Jónasi feita, leikir á Klambratúni og í Hljómskálagarðinum, fjöruferð og svo dansleikir í boði Dans- skóla Jóns Péturs og Köru. Á lokadögum sumarbúðanna var krökkunum svo boðið upp á leynigest og hoppukastala auk þess sem þau voru kvödd með gjöfum í boði Íslandsbanka. Allir iðkendur sumarbúðanna voru til fyrirmyndar í leik og starfi. Sumarbúðir í Borg vilja þakka öllum þeim einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum sem komu að starfinu í sumar og hjálpuðu okkur við að gera sumarbúð- irnar enn skemmtilegri. Lýður Vignisson, skólastjóri Skemmtilegar Sumarbúðiríborg Markmið Sumarbúða í borg hafa alltaf verið að börn upplifi íþróttir, leiki og aðra hreyfingu á jákvæðan hátt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.