Valsblaðið - 01.05.2012, Page 112
112 Valsblaðið2012
Hvaða setningu notarðu oftast: Vá
hvað þú ert dugleg/ur.
Skemmtilegustu gallarnir: Get ekki
vaxað mig sjálf.
Hvað er það fallegasta sem hefur verið
sagt við þig: Þú ert með svo stórt hjarta,
Karólína.
Besti söngvari: Ray Charles.
Nokkur orð um núverandi þjálfara:
Honum finnst gaman að smásögum, vill
helst ekki vera í merktum fötum, er mik-
ill rappari og hefur gaman að því að
skreppa i pottinn.
Ég er að læra að verða stærðfræðingur.
Hvers vegna Valur? Ég veit ekki alveg
af hverju ég valdi að fara í Val. Mig vant-
aði að koma mér í lið, auðvitað langaði
mann að fara í Val og þar var bara 1
hægri hornamaður og ákvað því að
stökkva á það tækifæri og sína einhverja
takta.
Stuðningur fjölskyldu: Vá mamma mín
og pabbi hafa alltaf stutt mig í öllu sem
ég geri. Ég er mjög heppin með foreldra/
fjölskyldu ef maður getur sagt það. Eg
var reyndar voðalega fyndið og skrýtið
barn og vildi helst ekki að neinn kæmi að
horfa á mig keppa. Ég er með mikla full-
komnunaráráttu og vildi alls ekki að
neinn væri að horfa á mig ef ég mundi
ekki standa mig. En það er nú breytt í
dag.
Af hverju handbolti: Ég get sagt þér að
ég ætlaði mér sko aldrei að fara í hand-
bolta. Ég var í fimleikum en allar vin-
konur mínar í skólanum voru í handbolta.
Mamma bestu vinkonu minnar var að
þjálfa handbolta í Gróttu og vildi endi-
lega fá mig á æfingar en mér fannst þetta
sko ekkert spennandi. En svo var alltaf
haldið skólamót í handbolta einu sinni á
ári á Nesinu og Vesturbænum og vinkona
mín bað mig að vera með. Ég ákvað að
taka þátt og hef bara ekki hætt síðan.
Helsta afrek mitt og eftirminnilegast
var boccia mót sem ég tók þátt í úti í
Danmörku og vann 500 kr. danskar í því.
Virkilega stoltur boccia meistari.
Eftirminnilegast hjá mér í handboltan-
um er fyrsti meistaraflokksleikurinn sem
ég spilaði með Gróttu. Ég stóð mig
hörmulega og grét þegar ég fór út af.
Hræðileg upplifun en algjörlega eftir-
minnilegast, gleymi þessu aldrei. Einnig
er alltaf eftirminnilegt þegar ég braut
framtennurnar í mér.
Ein setning eftir síðast tímabil? Lykill-
inn að velgengni er góð liðsheild og að
hafa gaman að því sem þú ert að gera.
Eitthvað eitt sem skýrir velgengi Vals í
handbolta kvenna að undanförnu: Við
höfum allar gaman að því sem við erum
að gera
Hvernig verður þetta tímabil: Þetta
tímabil verður eitt skemmtilegasta sem
ég hef spilað held ég. Hef aldrei kynnst
jafn góðri liðsheild og í ár. Við erum all-
ar vinkonur og ekkert drama. Elskum að
spila handbolta og vera saman.
Helstu markmið? Maður setur sér nátt-
úrlega fullt af markmiðum þegar maður
fer í svona mót.
Ég passa mig alltaf að setja mér mark-
mið fyrir hvern og einn leik líka og bæði
lítil og stór. Evrópumótið byrjaði vel hjá
okkur og það er spennandi að fara keppa
næstu leiki. Besti stuðningsmaðurinn er
hún móðir mín. Henni finnst allt frábært
sem ég geri og sér alltaf það jákvæða úr
leikjunum.
Erfiðasti samherjinn? Ég held ég verði
að segja að það sé ég sjálf.
Eftirminnilegasti þjálfari? Það verður
að segjast að Karl Erlingsson sé eftir-
minnilegastur þegar ég var í unglinga-
landsliðinu.
Fyndnasta atvik er örugglega þegar ég
fór í hraðaupphlaup, stökk upp en skaut
aldrei. Veit ekki hvað var að fara í gegn-
um heilann á mer þá en það hefur verið
eitthvað voðalega lítið held ég..
Stærsta stundin í handboltanum hjá
mér verð ég að segja þegar við urðum Ís-
landsmeistarar í fyrra. Það var bara alltof
sætt.
Við hvaða aðstæður líður þér best: Mér
líður best heima hjá mér upp í sófa og að
horfa á þætti og borða popp.
Framtíðarfólk
Lykillinnaðvelgengni
ergóðliðsheild
ogleikgleði
Karólína Bærhenz er 24ra ára og leikur
handknattleik með meistaraflokki
Nýrfjögurra
árasamningur
viðHummel
Á fjölmennri kynningu á leikmönnum
Í Vodafonehöllinni var á þessu ári
undirritaður nýr 4 ára búningasamn-
ingur við Hummel. Mikil ánægja er
meðal foreldra, leikmanna og stjórnar
með samstarfið við Hummel sem
hófst árið 2007. Með tilkomu samn-
ingsins verður Hummel einn af aðal
styrktaraðilum Knattspyrnufélagsins
Vals.
Samninginn undirrituðu Ævar
Sveinsson umboðsmaður Hummel á
Íslandi og Sveinn Stefánsson frá aðal-
stjórn Vals.