Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 119
Valsblaðið2012 119
EftirSigurðÁsbjörnsson
mættu vera grimmari og ekki sætta sig
svona auðveldlega við tap. En flest er
fremur svipað en Danirnir gera meira úr
leiknum. Það er miklu meiri skemmtun
að koma á leiki hér úti.
Í hvaða deild heldur þú að Valsliðið,
eins og þú manst það, væri ef það spil
aði í Danmörku? Þetta er hræðilega erf-
ið spurning. Þeir gætu vafalaust tekið
einhver lið hérna en það er mjög erfitt að
segja til um það. Hér er miklu meira um
skyttur. Sennilega væri Valsliðið að
ströggla.
En ef Viborg væri að spila á Íslandi?
Ég held að við værum í toppbaráttu.
Hvaða stöðu spilarðu með Viborg og
hvernig skrifar maður það á dönsku?
Línumaður sem kallast stregspiller. En
hvernig segir maður varnarmaður á
dönsku? Forsvarsspiller, en sóknarmað-
ur er angrebsspiller.
Ef þú ættir að benda mér á eitthvað
eitt sem er betra hjá Viborg heldur en
hjá Val, hvað kemur fyrst upp í hug
ann? Umgjörðin í kringum leiki er miklu
meiri. Það er alltaf valinn maður leiksins
sem fær veglegar gjafir eftir leik. Það er
stöðug tónlist í gangi á meðan leiknum
stendur og fólkið klappar með, síðan
standa allir upp þegar líður að lokum
leiksins og hvatningin margfaldast.
En geturðu bent á einhver einföld at
riði sem liðin heima á Íslandi ættu að
taka upp af því sem þú hefur kynnst
þarna úti? Það er auðvitað hægt að taka
ýmis einföld atriði upp. Það heyrist t.d.
stundum þegar leikmaður skorar þessi
leikmaður var „sponsoraður“ af Sparkas-
sen! Þá mætti auðvitað leyfa tónlistinni
að flæða meira. Hérna eru um 500 manns
í mat fyrir leiki og matnum er skolað nið-
ur með bjór.
En þegar þú hugsar til baka minnist
þú einhvers sem við erum að gera bet
ur en Danirnir? Mér finnst að það mætti
vera meiri pressa á mannskapnum. Þeir
legt í gangi. En það er samt góður mórall
og létt yfir hópnum, en það mætti alveg
vera eitthvað um að menn gerðu eitthvað
saman eftir t.d. föstudagsleik. Það mætti
líka vera meira á seyði í bænum þó að
það sé mjög notalegt að vera hérna.
Hvernig er aðstaðan hjá ykkur? Mjög
svipuð og í Valsheimilinu nema það er
ekki pottur. Við erum með tvær hallir
sem við getum notað til æfinga, síðan
erum við með stóran sal þar sem við höf-
um sjónvarpsaðstöðu, fundaraðstöðu og
billjard. Síðan er sjúkraþjálfari á hverri
æfingu og ef einhver meiðist á æfingu þá
er hann á staðnum. En það toppar ekkert
aðstöðuna á Hlíðarenda.
En hvernig er aðsókn á leiki? Ég held
að höllin taki um 1.700 manns og það eru
um 1.000–1.200 á leikjum að jafnaði og
mjög góð stemning.
Er hátt hlutfall af uppöldum leik
mönnum í liðinu? Ég held að það sé
bara einn mjög ungur sem spilar lítið. En
útlendingar? Við erum fjórir, Svíi, Serbi
og Japani.
Laugardaginn 8. september var í 7. sinn haldin hverfahátíð Mið-
borgar og Hlíða að Hlíðarenda. Hverfisráð Hlíða, hverfisráð Mið-
borgar, Samtaka hópurinn og Knattspyrnunfélagið Valur stóðu
fyrir hátíðinni og sáu um skipulagið. Í framkvæmdahópi voru
Inga Sveinsdóttir frá Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Har-
aldur Daði Ragnarsson frá Val, Óttarr Ólafur Proppé og Sirrý
Hallgrímsdóttir frá Reykjavíkurborg. Dagskráin var að venju
glæsileg þar sem allir fundu eitthvað við sitt hæfi. Boðið var upp
á alls konar afþreyingu, skemmtun, sýningar ýmis konar og alls
konar veitingar voru í boði og fjölbreytt vetrardagskrá í hverfinu
var kynnt. Íbúar í hverfinu fjölmenntu að Hlíðarenda og áttu þar
saman góða stund og á meðfylgjandi myndum má sjá sýnishorn
af stemningunni sem myndaðist á hverfahátíðinni. Það var sam-
dóma álit aðstandenda hverfahátíðarinnar að vel hefði tekist til.
Velheppnuðhverfahátíðá
Hlíðarenda8.september