Valsblaðið - 01.05.2012, Qupperneq 122
122 Valsblaðið2012
Minningar
leikmaður Vals sem lék A-landsleik í báð-
um greinum, og annar tveggja Íslendinga
sem náðu þeim merka áfanga árið 1950.
Hafsteinn varð margfaldur Íslandsmeist-
ari með meistaraflokkum Vals í knatt-
spyrnu og handknattleik enda sannkallað-
ur afreksmaður. Eftir að Hafsteinn flutti til
Keflavíkur voru ætíð mikil tengsl og vin-
áttubönd á milli hans og Vals, enda var
hans sárt saknað á Hlíðarenda.
Á kveðjustund þakkar Knattspyrnu-
félagið Valur innilega fyrir það framlag
sem Hafsteinn lagði til félagsins og ekki
síður til knattspyrnunnar og íþrótta í land-
inu. Sendum eftirlifandi konu Hafsteins,
Jóhönnu Guðjónsdóttur og fjölskyldu ein-
lægar samúðarkveðjur.
f.h. Knattspyrnufélagsins Vals,
Hörður Gunnarsson – formaður
Hjördís
Böðvarsdóttir
Fædd 22. júní 1944
dáin 12. júní 2012
Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Val
Látin er Hjördís Böðvarsdóttir eiginkona
Bergs Guðnasonar fyrrum leikmanns í
áraraðir og síðar formanns Vals á árunum
1977981. Það má til sanns vegar færa að
þegar menn taka sér fyrir hendur umfangs-
mikil störf eins og formennska í íþrótta-
félagi er, kemur það niður á fjölskyldulíf-
inu öllu og makar viðkomandi eru orðnir
með beinum eða óbeinum hætti þátttak-
endur í starfinu. Með þessum fáu línum vil
ég flytja þakkir frá Kattspyrnufélaginu Val
fyrir stuðning Hjördísar við félagið.
Sendum Guðna, Böðvari, Bergi, Sigríði,
Elínu og fjölskyldunni allri okkar dýpstu
samúðarkveðjur.
Hörður Gunnarsson, formaður
Hermann vann hjá Ræsi árin 1945–57 og
hjá Varnarliðinu 1957–60. Hann hóf störf
hjá Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar 1961
var þar verkstjóri 1965–73 og yfirverk-
stjóri frá 1973 til 1999 er hann lét af störf-
um vegna aldurs.
Hermann byrjaði snemma að stunda
íþróttir hjá Val og lék bæði knattspyrnu
og handknattleik með yngri flokkunum og
síðar með meistaraflokki, hann varð m.a.
Íslandsmeistari með Val í handknattleik
árið 1948. Hann var þjálfari í handknatt-
leik hjá Val um árabil og kom að þjálfun
flestra flokka karla ásamt því að vera einn
af frumkvöðlum kvennahandboltans hjá
Val þar sem hann þjálfaði m.a. meistara-
flokk kvenna í handbolta frá 1950–1954.
Hermann var einnig mjög virkur skíðaiðk-
andi og tók þátt í uppbyggingu skíðaskála
Vals ásamt því að sitja í skíðanefnd félags-
ins. Hermann bjó og starfaði á Hlíðarenda
um tæplega tveggja ára skeið ásamt eftir-
lifandi eiginkonu sinni Elsu P. Níelsdóttur
og börnum, þóttu þau sinna starfi sínu vel
og dyggilega. Árið 1961 fékk Hermann
silfurmerki Vals fyrir vel unnin störf í
þágu félagsins. Valshjartað sló ávallt sterkt
og má segja að hann hafi ætíð verið Vals-
ari í húð og hár.
EÓH/RGH
Hafsteinn
Guðmundsson
fæddur 1. október 1923
dáinn 29. apríl 2012
Kveðja frá Knattspynufélaginu Val
Við Valsmenn kveðjum í dag góðan félaga
þegar við sjáum á bak Hafsteini Guð-
mundssyni. Hafsteinn lék knattspyrnu og
handknattleik með Val um nokkurra ára
skeið á sínum yngri árum og var fyrsti
þar sem hann bjó síðustu æviárin. Hann
sló endalaust á létta strengi, gerði stans-
laust grín að sjálfum sér. Gömlu, góðu árin
hjá Val voru honum enn í fersku minni og
það glitti í tár þegar ég sýndi honum gaml-
ar Valsmyndir og bað hann að rifja upp
nöfn. Hann var með allt á hreinu og lánaði
mér aukinheldur fjölda mynda sem birtust
í bókinni Áfram hærra! Egill hlaut Vals-
orðuna úr silfri árið 1976 og úr gulli á ald-
arafmæli félagsins 2011.
Það er fyrir tilstilli einstaklinga eins og
Egils Kristbjörnssonar sem Valur hefur
vaxið og dafnað í rúm 100 ár með sigur-
sæld að leiðarljósi án þess að láta kappið
bera fegurðina ofurliði.
Valsmenn kveðja dáðan og dyggan
dreng með söknuði en þó með gleði í huga
því nærvera Egils varpaði skæru ljósi á til-
veruna. Hann þráði hvíld og frið og fagn-
ar því eflaust núna að vera kominn aftur í
fang sinnar elskulegu eiginkonu sinni sem
lést fyrr á árinu.
Þorgrímur Þráinsson Valsmaður
HermannÓlafur
Guðnason
fæddur 5. júlí 1929
dáinn 7. febrúar 2012
Hermann Ólafur Guðnason, fæddist í
Vopnafirði 5. júlí 1929, hann lést á Hjúkr-
unarheimilinu Mörk þann 7. febrúar 2012.
Foreldrar Hermanns voru Guðni Erlend-
ur Sigurjónsson, f. 12.11. 1909 á Skálum í
Vopnafirði, leigubifreiðastjóri og ökukenn-
ari d. 1981 og Ragnhildur Davíðsdóttir,
f. 09.09. 1909 á Kambi í Vopnafirði, hús-
freyja d. 1985. Hermann ólst upp á Vopna-
firði en fluttist til Reykjavíkur 1941 og bjó
þar til dánardags. Hann lauk sveinsprófi
í bifvélavirkjun frá Iðnskólanum í Rvk
1956 og öðlaðist meistararéttindi 1959.