Valsblaðið - 01.05.2013, Síða 6
6 Valsblaðið 2013
Viðurkenningar
Íþróttamenn Vals frá upphafi
2012
Guðný Jenný Ásmundsdóttir, handkn.leikur
2011
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, handkn.leikur
2010
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, handknattleikur
2009
Dóra María Lárusdóttir, knattspyrna
2008
Katrín Jónsdóttir, knattspyrna
2007
Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrna
2006
Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrna
2005
Bjarni Ólafur Eiríksson, knattspyrna
2004
Berglind Íris Hansdóttir, handknattleikur
2003
Íris Andrésdóttir, knattspyrna
2002
Sig ur björn Hreið ars son, knatt spyrna
2001
Rósa Júl ía Stein þórs dótt ir, knatt spyrna
2000
Krist inn Lár us son, knatt spyrna
1999
Ás gerður Hild ur Ingi bergs dótt ir, knatt spyrna
1998
Guðmund ur Hrafn kels son, hand knatt leik ur
1997
Ragnar Þór Jónsson, körfuknattleikur
1996
Jón Kristjánsson, handknattleikur
1995
Guðrún Sæmundsdóttir, knattspyrna
1994
Dagur Sigurðsson, handknattleikur
1993
Guðmundur Hrafnkelsson, handknattleikur
1992
Valdimar Grímsson, handknattleikur
Íþróttamaður Vals hefur verið valinn ár-
lega frá 1992 og Það er árviss viðburður
hjá Val að útnefna íþróttamann ársins í
hófi að Hlíðarenda á gamlársdag og og
árið 2012 var komið að útnefningu í 21.
sinn. Valnefndin er skipuð formönnum
allra deilda félagsins, sitjandi formanni
Vals og tveimur fyrrverandi formönnum,
auk Halldórs Einarssonar sem hefur verið
í valnefnd frá upphafi og er gefandi verð-
launagripanna. Samtals hafa 11 knatt-
spyrnumenn hlotið titilinn, 8 handknatt-
leiksmenn og 1 körfuknattleiksmaður. 9
sinnum hefur leikmaður karlaliðs verið
valinn og 11 sinnum hefur leikmaður
kvennaliðs orðið fyrir valinu.
Hörður Gunnarsson formaður Vals
flutti ávarp við útnefningu á íþróttamanni
Vals árið 2012 og sagði m.a.: „Það hefur
verið lengi í umræðunni að nöfn þeirra
sem hlotið hafa sæmdarheitið „Íþrótta-
maður Vals“ ættu að vera sýnileg í félags-
aðstöðu okkar hér á Hlíðarenda. Nú, eins
og oft áður, hefur félagið því láni að fagna
að góðir Valsmenn hafa tekið höndum
saman og fært félaginu að gjöf skjöld með
nöfnum þeirra sem nafnbótina hafa hlotið
en árlega mun eitt nafn bætast á skjöldinn
góða. Gefendur eru Evert Evertsson, Hall-
dór Einarsson, Hermann Gunnarsson (tré-
smiður) og Sigurður í Ísspor.
Ágætu Valsmenn þá er komið að út-
nefningu íþróttamanns Vals árið 2012.
Íþróttamaður Vals 2012 er sem fyrr
glæsilegur fulltrúi félagsins innan vallar
sem utan og góð fyrirmynd öllum þeim
leggja stund á íþróttir og hafa metnað til
að ná langt og komast í fremstu röð enda
er hann staðfastur og fylginn sér. Íþrótta-
maður Vals 2012 hefur spilað 39 A-
landsleiki fyrir Íslands hönd og er að
mörgum talinn mikilvægasti leikmaður
landsliðsins. Íþróttamaður Vals er hand-
knattleiksmaður og hlaut í vor háttvísi-
verðlaunin á lokahófi HSÍ. Með Val vann
íþróttamaður Vals til Íslandsmeistaratit-
ils, bikarmeistaratitils ásamt fjórum öðr-
um titlum á árinu. Íþróttamaður Vals árið
2012 er Guðný Jenný Ásmundsdóttir.“
Guðný Jenný
Ásmundsdóttir
leikmaður í handknattleik
og landsliðsmaður er
íþróttamaður Vals 2012
Hörður Gunnarsson formaður Vals
afhendir Guðnýju Jennýju viðurkenn
inguna Íþróttamaður Vals 2012, við
hátíðlega athöfn á gamlársdag í Vals
heimilinu. Tveir ungir iðkendur til
aðstoðar.
Guðný Jenný ásamt börnum
sínum, Ronju Victoriu og
Henry Sebastian Nanoqs-
börnum