Valsblaðið - 01.05.2013, Qupperneq 8
8 Valsblaðið 2013
Starfið er margt
ekki fyrir að öðru leyti en þvi að aðilar
eru sammála um að bygging vallarins
hefjist þegar jarðfræðilegar aðstæður eru
fyrir hendi s.s. að sig á svæðinu sé hætt
og aðrar framkvæmdir sem áhrif hafa þar
á eru hafnar.
Byggingafulltrúinn í Reykjavík hefur
samþykkt byggingarleyfi fyrir viðbygg-
ingu við gamla íþróttahúsið þar sem fyr-
irhugað er að byggja 11 einstaklings-
íbúðir auk aðstöðu fyrir sjúkraþjálfun
o.fl. samkvæmt teikningu og hönnun Al-
ark arkitekta. Jafnframt er um að ræða
tengibyggingu sem tengir saman ný-
bygginguna við Fjós og Hlöðu. Ekki hef-
ur verið ákveðið hvenær framkvæmdir
hefjast en það gæti orðið innan fárra
mánaða en ræðst af úrlausn annarra mála
á svæðinu.
Stofnun sjálfseignastofunar á
Hlíðarenda
Í byrjun janúar var boðað til félagsfundar
þar sem kynntar voru fyrirætlanir um
stofnun sjálfseignastofnunar á Hlíðar-
enda. Síðar í sama mánuði var haldinn
annar félagsfundur þar sem formlega var
Aðalstjórn félagsins fundaði reglulega á
árinu og voru haldnir 10 formlegir fundir
auk óformlegra funda. Á aðalfundi
félagsins sem haldinn var 28. maí var
kjörin ný stjórn Vals. Auk formanns voru
kjörin í aðalstjórn þau Arna Grímsdóttir,
Hafrún Kristjánsdóttir, Smári Þórarins-
son, Stefán Karlsson og Hera Grímsdótt-
ir ásamt Berki Edvardssyni formanni
knattspyrnudeildar, Ómari Ómarssyni
formanni handknattleiksdeildar og Svala
Björgvinssyni formanni körfuknattleiks-
deildar. Á fyrsta fundi stjórnar var Stefán
Karlsson kjörinn varaformaður félagsins
og Arna Grímsdóttir ritari.
Á aðalfundinum var lögð fram breyting-
artillaga aðalstjórnar á samþykktum Knatt-
spyrnufélagsins Vals frá 7. júní 2011 á 3.
mgr. 7. gr. sem hafði þann tilgang að viku
fyrir aðalfund lægi fyrir hverjir gæfu kost
á sér til stjórnarsetu í deildarstjórnir og að-
alstjórn. Breytingartillagan sem samþykkt
var samhljóða var eftirfarandi. „framboð
til setu í félagsstjórn og félagsdeildum
þurfa að berast með skriflegum/rafrænum
hætti til félagsstjórnar eigi síðar en viku
fyrir aðalfund“ og í framhaldi verða fram-
boðin aðgengileg á heimasíðu félagsins.
Lóðarmál og uppbygging á
Valssvæðinu
Í febrúar var gengið frá fimm nýjum
lóðaleigusamningum við borgina til 75
ára sem eru samtals að stærð rúmir
89.000 m2. Með þessum samningum
stækkuðu lóðir Vals um 12.491 m2 þar
sem stærstur hluti stækkunar kemur til
með að fara undir nýja grasvelli á æf-
ingasvæðinu. Um leið skiptu fyrri lóðir
um númer og eru lóðir í eigu Vals nú við
Hlíðarenda 6–10 (51,305 m2), 14 (25,333
m2), 2 (4,534 m2), 4 (2,064 m2), og 4 A
(5,893 m2). Gert er ráð fyrir að byggðar
verði íbúðir á lóðum nr. 2, 4 og 4A.
Í júni var gengið frá samningi við
Reykjavíkurborg um uppbyggingu á nýj-
um gervigrasvelli sem staðsettur verður
austan núverandi gervigrasvallar. Völlur-
inn verður byggður samkvæmt nýjustu
kröfum, ásamt því að lýsing og upphitun
verður bætt frá núverandi velli. Sam-
kvæmt sama samningi tekur borgin yfir
eignarhald og rekstur á gervigrasvelli
Vals sem er til samræmis við það sem
tíðkast um aðra slíka velli í borginni. Ná-
kvæm tímasetning á uppbyggingu liggur
Batnandi fjárhagur félagsins og
öflugt starf í öllum deildum
Skýrsla aðalstjórnar 2013
Stelpurnar í meistaraflokki kvenna í körfuknattleik
fagna ákaft Lengjubikarmeistaratitlinum haustið
2013 og liðið er til alls líklegt í vetur.