Valsblaðið - 01.05.2013, Síða 10
10 Valsblaðið 2013
Starfið er margt
titlum á árinu sem félagið keppti um en
það er slakari árangur en verið hefur á
undanförnum árum. Samtals hefur 106
Íslands- og bikarmeistaratitlum verið
fagnað á Hlíðarenda en titill ársins
vannst með bikarmeistaratitli meistara-
flokks kvenna í handbolta.
Guðný Jenný Ásmundsdóttir
íþróttamaður Vals 2012
Á gamlársdag var Guðný Jenný Ás-
mundsdóttir kjörin íþróttamaður Vals og
var hún vel að þeirri útnefningu komin
bæði með tilliti til framgöngu hennar á
keppnisvellinum og ekki síst sú fyrir-
mynd sem hún er ungu íþróttafólki utan
vallar. Guðný Jenný hefur spilað yfir 50
A-landsleiki fyrir Íslands hönd og er að
mörgum talin mikilvægasti leikmaður
landsliðsins. Jenný hlaut í vor háttvísi-
verðlaunin á lokahófi HSÍ.
Öflugt og fjölbreytt félagsstarf
Félagsstarf innan Vals var með miklum
blóma í ár eins og fyrri ár. Haldið var ár-
legt golfmót sem var vel sótt, bridds- og
skákmót voru einnig haldin venju sam-
kvæmt. Valskórinn hélt úti þróttmiklu
starfi á árinu og kom fram við ýmis tæki-
færi tengd starfi félagsins sem og við
önnur tækifæri. Fjölmennt herrakvöld
var haldið á haustmánuðum sem tókst
með miklum ágætum og einnig var hald-
ið kvennakvöld á vegum Valkyrja sem
var sérstaklega ánægjulegt. Vil ég þakka
skipuleggjendum þessara viðburða fyrir
þeirra aðstoð. Fulltrúaráðið stafar nú af
miklum þrótti og heldur reglulega fundi
ásamt því að koma að stuðningi við ýmis
verkefni innan félagsins. Minjanefnd
Vals hefur starfað af fullum krafti í fram-
haldi af frábæru starfi á afmælisárinu
enda næg verkefni framundan. Hafið
bestu þakkir fyrir ómetanlegt starf við að
skrá og geyma sögu Vals. Getraunastarfi
er haldið úti á hverjum laugardegi yfir
hægt væri að skapa rekstrargrundvöll
fyrir en jafnframt var horft til þess að nýr
gervigrasvöllur myndi auka og bæta að-
stöðuna fyrir knattspyrnuiðkendur í fé-
laginu. Stjórn Vals þakkar nefndinni fyrir
vel unnin störf og leggur til að tillögu
nefndarinnar verði hrundið í framkvæmd
við fyrsta hentugleika.
Öflungt barna- og unglingastarf
Rekstur og starfsemi barna- og unglinga-
sviðs var með miklum ágætum á árinu.
Iðkendum fjölgaði lítillega sem er
ánægjulegt og má þar nefna að yngstu
flokkarnir sem eru við æfingar í knatt-
spyrnu eru þeir fjölmennustu í sögu
félagsins. Þetta gerist þrátt fyrir þá
óskiljanlegu ákvörðun borgaryfirvalda að
íþróttafélög fái ekki lengur leyfi til að
heimsækja grunnskóla borgarinnar og
kynna starfsemi sína sem ætti að vera
ávinningur fyrir alla. Einnig ber að fagna
að nú er tekið til starfa öflugt barna- og
unglingaráð sem skipað er mörgum
reynslumiklum einstaklingum sem við
væntum mikils af í starfi sínu fyrir fé-
lagið. Eins og undanfarin ár naut barna-
og unglingastarf félagsins ríkulegs stuðn-
ings Fálkanna sem er starfinu mjög mik-
ilvægt. Kunnum við þeim bestu þakkir
fyrir stuðninginn og samstarfið á árinu.
Bikarmeistarar kvenna í handbolta
Í skýrslu deilda verður árangri félagsins
gerð nánari skil en þó er vert að minnast
þess að Valur vann einn af þeim stóru
það jákvæður að náðst hefur að greiða
niður tap undanfarinna ára. Knattspyrnu-
félagið Valur stendur því vel á þessum
tímamótum hvað þetta varðar og fram-
undan eru miklir möguleikar á að gera
enn betur.
Fyrirhugað knatthús á Hlíðarenda
Á árinu var skipuð faggreiningarnefnd
fyrir knatthús á Hlíðarenda sem að líkum
lætur verður næsta stóra framkævmdin á
vegum Vals á félagssvæði okkar. Nefnd-
ina skipuðu Brynjar Harðarson sem er
formaður, Kristján Ásgeirsson, Arna
Grímsdóttir, Teodór Hjalti Valsson, Ólaf-
ur Ástgeirsson, Hera Grímsdóttir og
Börkur Edvardsson. Tillaga nefndarinnar
var að skynsamlegast væri að byggja
knatthús sem rúmaði hálfan knattspyrnu-
völl. Niðurstaða nefndarinnar var m.a.
byggð á því að það væri sú stærð sem
Aðalstjórn Knattspyrnufélagsins Vals 2013–
2014. Frá vinstri: Hera Grímsdóttir
varaformaður (fyrsta konan til að gegna því
hlutverki), Arna Grímsdóttir meðstjórnandi,
Ómar Ómarsson formaður handknattleiks
deildar, Smári Þórarinsson meðstjórnandi,
Hörður Gunnarsson formaður og Börkur
Edvards son formaður knattspyrnudeildar. Á
myndina vantar Svala Björgvinsson for
mann körfuknattleiksdeildar, Hafrúnu
Kristjánsdóttur meðstjórnanda og Jóhann
Má Helgason framkvæmdastjóra.
Helena Ólafsdóttir þjálfari
meistaraflokks kvenna í knattspyrnu var
heiðursgestur á einum af skemmtilegustu
leikjum sumarsins í fótbolta heilsar
ungum fótboltastelpum, en 3. og 4. fl.
karla og kvenna leikur einn heimaleik á
sumri með flottri umgjörð á Vodafone
vellinum.
Bjarni Ólafur Eiríksson sneri aftur
á Hlíðarenda á árinu eftir nokkur
ár í atvinnumennsku.