Valsblaðið - 01.05.2013, Qupperneq 12

Valsblaðið - 01.05.2013, Qupperneq 12
12 Valsblaðið 2013 erum enda væri lífið litlaust ef allir væru eins. Öll börn búa við mismunandi að- stæður, sum fá engan stuðning heimafyr- ir, önnur eru föðmuð í gegnum lífið og hvað gefur okkur rétt til að dæma aðra, eða fordæma? Eitt af því göfugasta sem við gerum er að gera góðverk, hrósa og hjálpa þeim sem minna mega sín. Mörgum hættir hins vegar til að setja sig á háan hest og tala niður til þeirra sem eru öðruvísi, til þeirra sem blómstra síður og eiga erfitt. Satt að segja hef ég engar áhyggjur af unga fólkinu í dag, unga fólkinu sem mun stýra Íslandi á næstu áratugum. Við eigum að varða veginn með góðu og fal- legu fordæmi og síðast en ekki síst treysta unga fólkinu fyrir þeim verkefn- um og áskorunum sem blasa við daglega. Hamingjan er ákvörðun hvers og eins en bíður okkar ekki á næsta götuhorni. Og þegar við foreldrar geislum af hamingju, snertum við strengi unga fólksins og höf- um áhrif á það til góðs. eftir Þorgrím Þráinsson nemenda í 10. bekk reykja og sú iðja heyrir nánast algjörlega sögunni til í 9. og 8. bekk. Neysla áfengra drykkja er sömuleiðis á hröðu undanhaldi, eflaust vegna þess að allir þættir samfélagsins vinna að því af heilum hug að halda unga fólkinu við efnið – námið, íþróttaiðkun, heilbrigt líf. Og þess vegna er óþarfi að hrópa ,,úlfur úlfur” þótt einn og einn fari út af sporinu – sem í flestum tilfellum má rekja til agaleysis og afskiptaleysis á heimilinu. Það er því miklu frekar um foreldravandamál að ræða en unglinga- vandamál. Ég á því láni að fagna þriðja veturinn í röð að heimsækja alla grunnskóla á Ís- landi og halda fyrirlestur fyrir nemendur í 10. bekk sem ég kýs að kalla ,,Láttu drauminn rætast“. Síðastliðinn vetur hélt ég um 170 fyrirlestra, annað slagið enn- fremur fyrir yngri nemendur og ég full- yrði – að í kringum 98% af nemendum í 10. bekk eru flottir karakterar. Mér dugar alveg að standa fyrir framan heilan bekk í 80 mínútur, horfa í augun á nemendum og skynja hvers konar persónuleikar þeir eru. Lífsþorstinn, gleðin, einlægnin og eftirvæntingin skín úr augum nemenda sem hlakka til að takast á við áskoranir dagsins – þrátt fyrir áreitið sem skýtur örvum frestinga stanslaust að þeim. Snilldin við lífið er hversu ólík við Þrátt fyrir Facebook, Twitter, sjónvarps- gláp og tölvunotkun er unga fólkið dásamlegt. Þrátt fyrir SnapChat, Tumblr, QuizUp, Candy Crush, Grand Theft Auto og iPhone er unga fólkið dásamlegt. Það er nefnilega MUN erfiðara og meira krefjandi að vera unglingur í dag en fyrir einhverjum áratugum. Þá var að mestu leyti lúxuslíf að vera ungur -- ekkert sjónvarp, engin tölva, enginn farsími, sjaldan bíó, nánast engar freistingar aðrar en bækur og leikir úti í náttúrunni. Annað veifið er því slegið upp í fjöl- miðlum að unga fólkið sé ,,svona og hin- segin“ og neikvæðni svífur yfir vötnum en skyldi ástandið almennt vera það slæmt? Við skulum ekki gleyma því að fyrir tveimur, þremur áratugum komu er- lendar sjónvarpsstöðvar til Íslands til þess að festa unglingadrykkju á filmu. Við, foreldrar dagsins í dag, héngum þá á Hallærisplaninu, sauðdrukkin, og létum öllum illum látum – í það minnsta hluti fólks. Stjórnlaus, agalaus og eftirlitslaus. Erum við fljót að gleyma? Og reykingar og neysla var margfalt meiri og verri en nú á tímum. Fyrirmyndarunglingar Unglingar dagsins í dag, árið 2013, eru algjörlega til fyrirmyndar. Innan við 2% Verum ástfangin af lífinu Unga fólkið í dag er dásamlegt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.