Valsblaðið - 01.05.2013, Síða 14
14 Valsblaðið 2013
yrði mjög spennandi. Það eru miklu
meiri reynsluboltar í Valsliðinu. Við
erum með þrjá leikmenn hjá Flint sem
eru 25–26 ára en restin eru mjög ungir
leikmenn. Við þyrftum helst að koma á
leik til að fá svar við þessu.
Hvernig er samsetningin á leikmanna-
hópnum? Við erum fimm útlendingar.
Ein rússnesk, tvær danskar stelpur og
síðan við Brynja Magnúsdóttir. En upp-
aldir leikmenn eru líklega sjö.
En hvernig er þjálfunin? Við æfum
daglega og erum sendar vikulega í styrkt-
aræfingar samkvæmt prógrammi. Flestar
stelpurnar eru í vinnu eða skóla og geta
því ekki æft oftar á dag. En þær eru sum-
ar að reyna að gera eitthvað umfram og
fara þá á hlaupaæfingu eða í þrek. Við
æfum mjög mikið á einn teig. En það er
gert til að þjappa hópnum saman og
tryggja að leikmenn þekki hver annan
sem best, en hópurinn breyttist svo mikið
í sumar. En við erum líka með sérstakar
hraðaupphlaupsæfingar. Eftir eða fyrir
æfingar erum við í hlaupaæfingum og
æfingarnar eru því mjög langar. Aðstaðan
er fín þó svo að það vanti mikið á að hún
komist nálægt því sem Valur býr við. Við
erum með góða æfingahöll og síðan
erum við með enn stærri keppnishöll þar
sem við æfum vikulega. Við erum með
gott þjálfarateymi bæði handboltalega og
síðan sérstakan þjálfara sem stjórnar
styrktaræfingum og annan sem stýrir
hlaupaæfingum. Það er því meiri sérhæf-
ing í þjálfuninni. Gunnar Petterson kem-
ur tvisvar í viku og fer dýpra ofan í sókn-
ar- eða varnarleik.
Ef Valur væri að spila í Noregi, hvar
heldurðu að liðið væri í töflunni? Senni-
lega fyrir neðan miðju. En það er mjög
erfitt að bera þetta saman. Efstu þrjú liðin
væru mjög erfið en ágætur möguleiki á
því að taka stig af hinum liðunum.
En ef Flint væri að spila á Íslandi?
Örugglega í hópi þriggja til fjögurra
efstu liða. Við værum aldrei neðar en
það.
Hvaða stöðu spilar þú og hvað heitir
hún á norsku? Ég spila fyrir utan, oftast
í annarri hvorri skyttustöðunni. Þær heita
höyre og venstre bakspiller.
Sigurður Ásbjörnsson
Það á ekki að þurfa að kynna Þorgerði
Önnu Atladóttur fyrir nokkrum manni á
Hlíðarenda. Þessi ungi leikmaður lék
stórt hlutverk í Valsliðinu á undanförnum
árum og átti verulegan þátt í þeim titlum
sem kvennaliðið okkar í handboltanum
vann til á þeim tíma. Eftir að hafa farið í
aðgerð á öxl í byrjun sumars dreif Þor-
gerður sig til Noregs þar sem hún spilar
með Flint í Tønsberg sem er skammt
suður af Osló. Þorgerður var í heimsókn
á landinu í byrjun aðventunnar og Vals-
blaðið mælti sér mót við hana til að
fræðast um vistina og boltann í Noregi.
Hvernig hefur þér gengið í hausti. Hef-
ur öxlin verið í lagi? Nei því miður hef-
ur hún ekki verið góð. Ég fór í uppskurð
í sumar og þegar ég var laus við verkinn
sem fylgdi aðgerðinni þá kom axlarverk-
urinn aftur. Hann er búinn að vera að
angra mig nokkuð stöðugt síðan og því
hef ég lítið getað beitt mér.
Ertu þá að gera það sama og við sáum
þig gera hérna í fyrra, þ.e. þykjast
vera örvhent? Já, ég er að nota vinstri
höndina dálítið. En þegar öxlin er svona
þá get ég ekki látið vaða á markið af
krafti. Ég held að ég sé búin að skora eitt
mark úr uppstökki. En ég reyni að finta
mig í gegnum vörnina eða að spila upp á
aðra og láta þá líta vel út.
Hvernig hefur liðinu gengið það sem
af er hausti? Illa, við erum stigalausar á
botninum en við komumst í átta liða úr-
slit í bikarnum. Annars eru framundan
hörkuleikir í janúar þar sem við eigum
góða möguleika. En þetta hefur reyndar
verið einkenni á liðinu á undanförnum
árum, þ.e. að byrja frekar illa en bæta sig
verulega eftir áramót. Norska deildin er
dálítið skipt. Efst trónir Larvik sem vinn-
ur nánast allt og er með marga landsliðs-
menn. Þá koma tvö til þrjú lið sem eru
mjög öflug og þar fyrir neðan lið sem
hafa á góðum degi verið að stela stigum
af öflugu liðunum. Flint hefur verið í
neðri hlutanum án þess þó að hafa verið í
fallslag. En í sumar missti liðið nokkra
leikmenn auk þess sem skipt var um
þjálfara skömmu fyrir mót. Þó svo að við
séum stigalausar þá er staðan langt því
frá að vera vonlaus. Við höfum verið að
bæta okkur og finnum það sjálfar en við
höfum líka verið óheppnar því við höfum
tapað leikjum sem við áttum að vinna.
Hvaða markmið voru sett fyrir tíma-
bilið? Á haustfundinum lögðum við upp
með það að komast í hóp átta efstu liða
og þar með í úrslitakeppnina en augljós-
lega er það breytt og við ætlum okkur að
halda okkur í deildinni.
Hvað með þig sjálfa Spilarðu eitthvað
að ráði með óþæga öxl? Já, ég spila 35
– 45 mínútur í hverjum leik en minna í
leikjum sem við erum að skíttapa. Ég var
t.d. hvíld þegar við spiluðum gegn Lar-
vik. Annars hef ég verið að skora um 2 –
4 mörk í hverjum leik.
En er umtalsverður munur á hand-
boltanum í Noregi m.v. á Íslandi? Já,
það er dálítill gæðamunur. Líkamlegur
styrkur leikmanna er almennt meiri í
Noregi heldur en hér heima. Boltinn er
hraðari, tempóið hærra og það er hver
einasti leikur erfiður. Það þarf að leggja
sig 100% fram allan tímann ef maður
ætlar sér að gera sér vonir um að fá eitt-
hvað út úr leiknum. Valsliðið spilaði allt-
af fremur hraðan bolta og ég þekki ekk-
ert annað en að spila hratt. Heima voru
fáir leikir erfiðir en fjöldi annarra leikja
var fyrirfram ráðinn. Þá eru fleiri góðir
leikmenn í hverju liði, þau eru ekki borin
uppi af einum eða tveimur góðum leik-
mönnum eins og þekkist heima. En betri
leikmenn íslenskra liða gætu vel verið að
spila í Noregi.
Hvernig heldurðu að viðureignin færi
ef Valsliðið eins og þú þekktir það
væri að spila gegn Flint? Ég hef fengið
þessa spurningu áður og átti erfitt með
að svara henni. Liðin eru svo ólík að það
er erfitt að segja en ég held að leikurinn
Ungir atvinnumenn
Vals í útlöndum
Allir leikir í norsku
deildinni eru erfiðir