Valsblaðið - 01.05.2013, Page 18
18 Valsblaðið 2013
krossmenn“, þannig að þakið ætlaði að
lyftast af kapellunni.
• Fyrstu vortónleikana 1994, þegar Sig-
fús Halldórsson var heiðursgestur og
þakkaði fyrir sig með eftirminnilegri
ræðu að söng kórsins loknum.
• Afmælishátíðina á Hótel Sögu 2001,
þegar Valslagið var sungið í nýrri út-
setningu Guðjóns kórstjóra.
• Hundrað ára afmælishátíð Vals í nýja
íþróttahúsinu 11. maí 2011.
• Tvenna tónleika með Lúðrasveit
Reykjavíkur á 80 ára afmælisári henn-
ar 2012, fyrst í Langholtskirkju og síð-
an á vortónleikum Valskórsins í maí
það ár.
• Tónleikana á vegum stuðningsmanna-
félags knattspyrnuliðsins Glentoran í
Belfast í apríl 2013, þegar bæði ís-
lenskir og írskir áheyrendur klökknuðu
af hrifningu yfir flutningi Vals kórsins
á íslenska þjóðsöngnum.
• Kórahátíðina í Hörpu 20. október
2013, þegar Valskórinn stóð fremstur á
sviðinu í hópi nærri 900 söngvara sem
fluttu lagið „Snert hörpu mína, himin-
borna dís“.
Valskórinn hefur fyrir löngu skipað sér
traustan sess í félagsstarfi Vals. Hann er
án nokkurs vafa langbesti kór sem starfar
innan vébanda íslensks íþróttafélags –
reyndar sá eini, svo vitað sé, en það
dregur ekki úr gæðum hans. Kórinn
leggur, líkt og aðrir Valsmenn, á sig þrot-
lausar æfingar til að ná meiri árangri, en
þó ætíð minnugur orða séra Friðriks:
„Látið aldrei kappið bera fegurðina ofur-
liði“.
sem hafa sungið með kórnum í skemmri
eða lengri tíma. Nú eru virkir kórfélagar
tæplega 30 talsins og af þeim voru níu í
kórnum fyrsta veturinn og hafa sungið
óslitið síðan eða með stuttum hléum. Þau
eru: Anna Sigríður Jóhannsdóttir, Friðrik
Rúnar Guðmundsson, Guðbjörg B. Pet-
ersen, Guðmundur Frímannsson, Hrafn-
hildur Ingólfsdóttir, Lilja Jónasdóttir,
Sigurður Guðjónsson, Stefán Halldórs-
son og Þóra Sjöfn Guðmundsdóttir. Þrjú
þeirra, Guðbjörg, Hrafnhildur og Sigurð-
ur, hafa sungið á öllum vortónleikum
kórsins í 20 ár.
Þegar þau níu sem talin voru upp hér á
undan og voru í röðum stofnenda kórsins
voru spurð um minnisverða viðburði eða
verkefni kórsins á undanförnum 20 árum
var einkum bent á eftirtalin atriði:
• Fyrsta aðventukvöldið í Friðriks-
kapellu þegar Fóstbræður, Valskórinn
og hátt í hundrað gestir sungu saman,
af fullum hálsi, sálma við ljóð séra
Friðriks, þ. á m. „Áfram, Kristsmenn,
kórinn hóf að syngja útsetningu Báru á
lagi Stefáns Hilmarssonar og Þóris Úlf-
arssonar, „Valsmenn og meyjar“, á af-
mælisvorinu 2011.
Margrét Bóasdóttir söngkona hljóp í
skarðið um nokkurra vikna skeið fyrir
mörgum árum og lagði þá áherslu á radd-
þjálfun sem kom kórnum mjög til góða.
Fjölmargir undirleikarar hafa aðstoðað
kórinn á vortónleikum. Fyrstur var Carl
Möller, en meðal annarra má nefna
Helgu Laufeyju Finnbogadóttur, Sunnu
Gunnlaugs og Jónas Þóri. Undirleikari í
Belfast-ferðinni var Lárus H. Grímsson.
Ýmsir gestasöngvarar hafa stigið á stokk
með kórnum, þ. á m. Ari Jónsson, Ragn-
ar Bjarnason, Egill Ólafsson, Stefán
Hilmarsson og Guðrún Gunnarsdóttir, að
ógleymdri ungri íþróttastúlku í Val,
Mörtu Kristínu Friðriksdóttur. Þá dregur
einn tenórsöngvari kórsins, Jón Guð-
mundsson, oft upp þverflautuna á tón-
leikum til yndisauka.
Formenn kórsins hafa verið þessir:
Stefán Halldórsson, Þuríður Ottesen,
Þórarinn Valgeirsson og síðan Helga
Birkisdóttir undanfarin ár. Guðmundur
Frímannsson var gjaldkeri um langt
skeið.
Að sjálfsögðu hafa kórfélagar gaman
af að skemmta sér saman og hittast
gjarnan 1–2svar á vetri eða vori með
mökum til að borða góðan mat og syngja
eins og lungun leyfa. Ýmsir kórfélagar
hafa boðið hópnum heim, en á engan
skal hallað þótt Þórarinn Valgeirsson sé
nefndur sérstaklega, enda hefur heimili
hans stundum verið kallað félagsheimili
kórsins.
Margs er að minnast úr sögu
kórsins
Sjálfsagt er tala kórfélaga komin vel yfir
eitt hundrað, þegar allir eru taldir með
Henson lét útbúa sérstök bindi karlmönnunum til mikillar prýði í Belfastferðinni og á
afmælisárinu. Frá vinstri: Chris Foster, Halldór Einarsson og systkinin Bára Gríms
dóttir og Lárus H. Grímsson. Ljósm. Þorsteinn Ólafs.
Valskórinn kátur í lok fyrstu vortónleikanna 11. maí 1994 undir stjórn Gylfa Gunnars
sonar.