Valsblaðið - 01.05.2013, Page 20
20 Valsblaðið 2013
,,Það er erfitt að bera kynslóðir saman.
Vissulega gerir ákveðin óþolinmæði vart
við sig hjá sumum strákum og þeir halda
að þeir geti stokkið út sem fullskapaðir
afreksmenn á einu, tveimur árum. Ég
spilaði með meistaraflokki Vals í sex ár
og flaut fyrst með þegar við unnum til
tveggja titla. Ég tók þátt í að landa næstu
titlum og að lokum dró ég vagninn ásamt
öðrum. Ég gekk því í gegnum þennan
mikilvæga skóla. Í liðinu í dag eru strák-
ar sem þekkja ekki þetta ferli, hvað þá að
það hvarfli að þeim að það sé æskilegt að
fara í gegnum svona dýrmætan ,,skóla“.
Þessi kúltur skiptir máli og eflaust hefur
Valur ekki átt nógu sterka leiðtoga und-
anfarin ár sem hafa geta tekið af skarið
til að landa titlum, sem hefði verið nauð-
synlegt fyrir liðið í dag.“
Sérðu einhvern sérstakan mun á leik-
mönnum sem koma upp í meistara-
Það hljóta að vera töluverð viðbrigði að
fara úr því að vera í hópi allra bestu
handknattleiksmanna heims yfir í að
koma heim að Hlíðarenda að nýju og
reyna að móta nýtt handknattleikslið
Vals. Enginn vafi leikur á því að Ólafur
Stefánsson hefur verið einn af óskason-
um þjóðarinnar. Öll höfum við átt í hon-
um hvert bein og Valsmenn hafa ætíð
verið stoltir af hetjunni sinni. Fjölmargir
stukku hæð sína í loft upp þegar það
fréttist að Óli Stef myndi taka við meist-
araflokki Vals enda veitti ekki af ferskum
andblæ inn í félagið sem hefur verið í
fjárhagskröggum og félagslífið, sem og
margt annað, markast af því.
En ávallt birtir upp um síðir og við
verðum að trúa því að heimkoma Ólafs
Stefánssonar marki nýtt upphaf hjá Val
með margvíslegum hætti. En hvernig
ætli kappanum líði eftir hálft ár í herbúð-
um Vals? Liðið hans er í neðri kanti
deildarinnar sem stendur og þarf að rífa
sig í gang til að eiga möguleika á að
komast í úrslitakeppnina eftir áramót.
,,Ég er að reyna að ímynda mér að
þetta sé eins og það eigi að vera, að við
Ragnar Óskarsson séum að gera eins vel
og við getum með Valsliðið. Við mörk-
uðum ákveðna línu í upphafi, höfum
haldið henni en vissulega hefðu úrslitin
getað orðið verri eða betri. Við erum trú-
ir okkar línu og leikmannauppeldi, ef svo
má að orði komast, við höfum verið iðnir
en auðvitað má eflaust deila um eitt og
annað.
Við vorum komnir á gott skrið um
daginn, fengum bakslag gegn FH og töp-
uðum svo aftur með einu marki gegn
Fram. Nú er mikilvægt að rífa sig upp að
nýju en auðvitað spyr ég mig hvort ég
setji of mikla pressu á menn og þeir
höndli hana ekki en reyndar tel ég svo
ekki vera. Slíkt er vissulega persónu-
bundið.“
Var sjokk að koma til baka að Hlíðar-
enda eða mikil áskorun?
,,Aðstæðurnar eru vitanlega mun betri en
þegar ég fór út og leikmenn eiga að vera
stoltur af því sem Valur hefur upp á
bjóða. Það er einstakt að körfubolti,
handbolti og fótbolti séu að deila velli og
nánast búningsaðstöðu og leikmenn hafa
allt til alls. Það er þvegið af þeim, heitur
pottur og ísbað í boði og klefar hand-
bolta- og fótboltamanna liggja saman.
Samskipti milli þjálfara eru fín en eflaust
má sífellt bæta það sem vel er gert.
Nýlega minntist einhver á það við mig
hversu erfitt það hefði verið að koma að
Hlíðarenda hér á árum áður af því menn
voru hræddir við húsið. Það segir mjög
mikið enda þótti öllum erfitt að sækja
stig að Hlíðarenda. Bæði körfuboltinn og
knattspyrnan hafa gengið í gegnum slík
sigurtímabil. Vissulega tekur eflaust
ákveðinn tíma að ná upp sigurhefð í nýju
húsi og á nýjum velli en slíkt mun takast.
Sumir er ósáttir við hversu fáir ,,hrein-
ræktaðir“ Valsmenn leika með félaginu
og hefur Valshjartað þar af leiðandi átt
undir högg að sækja. En það er mitt hlut-
verk og annarra þjálfara að finna réttan
hjartslátt, efla hann og láta hann slá í takt
við okkar sigursæla félag. Fjárhagur Vals
mun án efa vænkast á næstu mánuðum
eða misserum og því er spurning hvernig
við ætlum að vinna úr því.“
Finnst þér leikmenn í dag vera saman-
burðarhæfir við þína kynslóð hvað
varðar vinnusemi, hæfileika og við-
horf?
Ég öðlaðist góðan
leikskilning um þrítugt
Handknattleikskappinn Ólafur Stefánsson er kominn
heim að Hlíðarenda að nýju en hann vill að við
sendum menn til Barcelona til að læra af þeim bestu
Ólafur Indriði Stefánnsson er þriðji leikja hæsti
leikmaður íslenska landsliðsins en hann lék á
ferlinum 330 landsleiki og skoraði í þeim
1.570 mörk og er hann jafnframt marka hæsti
leikmaður landsliðsins frá upphafi. Einungis
Valsararnir Guðmundur Hrafn kelsson, 407
leikir og Geir Sveinsson 340 leikir hafa leikið
fleiri landsleiki. Flestar myndir í þessu viðtali