Valsblaðið - 01.05.2013, Side 21
Valsblaðið 2013 21
en þegar hagur Vals vænkast á þeim
væng þyrfti vitanlega að ráða einhvern
Alex Ferguson til að vera yfir knatt-
spyrnunni og annan yfir handboltanum
og svo framvegis. Við þurfum bara að
finna okkar Ferguson í hverri grein sem
stjórnar því hvernig málin þróast hjá
okkur. Hafa fullkomna fagmennsku,
reynslu og þekkingu að leiðarljósi.“
Hefurðu skoðun á þjálfun barna og
ungmenna?
,,Það er því miður alltof lítið unnið með
leikskilning á unga aldri. Hann á að fara
saman við knattæfingar í 6. flokki. Það
er ekki nóg að senda knött á milli heldur
á alltaf að þurfa að velja á milli ákveð-
inna möguleika. Reitarbolti frá byrjun
skiptir máli því í honum eru fjölmargir
möguleikar. Strákar sem koma upp úr
yngri flokkum í fótbolta eru mjög góðir
tæknilega, geta sólað og tekið skæri en
flokk í dag og þegar þú varst sjálfur
að stíga þín fyrstu skref meðal þeirra
bestu hjá Val?
,,Það er erfitt að segja. Ég var svo hepp-
inn að vera í frábærum og sigursælum
árgangi í gegnum alla yngri flokkana og
því er ekki sanngjarnt að bera þetta sam-
an. Hópurinn var einstakur og fyrir-
myndirnar í meistaraflokki frábærar sem
er vitanlega mjög mikilvægt. Þegar leik-
menn í meistaraflokki í handbolta, fót-
bolta og körfubolta skara fram úr er það
mikilvæg hvatning fyrir yngri iðkendur.
Leikmenn fara fyrr í atvinnumennsku en
áður og Valur verður að gera það upp við
sig þegar hagur félagsins vænkast hvort
það ætli að vera útungunarstöð fyrir önn-
ur lið eða samkeppnishæft við erlend lið.
Það er ætíð mikilvægt að sjá eitthvert
ástand eða árangur fyrir sér til þess að
slíkt verði að veruleika. Hafi meistara-
flokkur í fótbolta áhuga á því að ná eins
langt og FH gerði sl. sumar, eða komast
einni umferð lengra, þurfa menn að sjá
slíkt fyrir sér og leggja allt í sölurnar því
slíkur árangur skapar tekjur og þar af
leiðandi betra yngri flokka starf. Frábær
árangur er keðjuverkandi. Fótboltinn er
helsta íþróttagreinin og ef Valsmenn vilja
læra af þeim bestu á hreinlega að senda
fólk út til að læra af Barcelona. Hvað
gera þeir til að ala upp frábæra knatt-
spyrnumenn? Hvernig byggja þeir upp,
hvaða æfingar eru hafðar að leiðarljósi,
hvað skiptir mestu máli? Þar seytla pen-
ingar niður í körfuboltann og handbolt-
ann og allir sem koma til Barcelona
stækka fyrir vikið. Sama ætti að gerast
hjá Val. Við eigum að sækja okkar þekk-
ingu til þeirra sem skara fram úr.“
Hefur Val þá skort einhverja þjálf-
fræðilega sýn?
,,Fjármagn skiptir gríðarlega miklu máli
eftir Þorgrím Þráinsson
eru teknar í kveðjuleik Ólafs Stefánssonar í
Laugardalshöllinn 16. júni 2013 gegn
Rúmenum. Óli skoraði 8 mörk í leiknum en
Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur
með 12 mörk, en hann er jafnframt næst
markahæsti leikmaður landsliðins með 1.483
mörk í 286 leikjum. Ljósmyndir Eva Björk
Ægisdóttir og Guðlaugur Ottesen Karlsson.