Valsblaðið - 01.05.2013, Síða 29
Valsblaðið 2013 29
Félagsstarf
og kynnast innan Vals. Það er grunnurinn
og upp úr því getur svo komið fullt af
skemmtilegum hlutum og þörfum verk-
efnum sem gera Val að enn betra félagi.
Svo lengi sem finnast konur innan Vals
sem vilja hittast og vinna gott starf sam-
an, þá verða Valkyrjur, eða sambært fé-
lag, til. Forgangsverkefni verður alltaf að
hafa vakandi auga með jafnréttinu – og
ég bíð spennt eftir þeim degi sem þess
verður ekki þörf.“
Hvernig sjáið þið fyrir ykkur starf
sjálfboðaliða eflast í Val?
„Sjálfboðaliðar eru félaginu dýrmætir og
skipa stórt hlutverk. Skerpa þarf á sjálf-
boðastarfshugmynd hjá öllum þeim sem
standa að Val: stuðningsmönnum, stjórn-
armeðlimum, iðkendum á öllum aldri,
foreldrum og starfsfólki. Félagið verður
hvorki meira né minna en það sem við
leggjum í það – því við erum Valur.“
Hvernig er samstarfið á milli Valkyrja
og Fálkanna?
„Formlega hafa Valkyrjur og Fálkar ekki
staðið fyrir neinum sameiginlegum verk-
efnum. Það er samt mikill velvilji þar á
milli og stundum hlaupið undir bagga;
t.d. þrifu þeir stúkuna með okkur og við
aðstoðuðum með skipulag á dósa- og
jólatrjáasöfnuninni þeirra. Ég hef samt
fulla trú á því að við munum vinna meira
saman í framtíðinni því bæði félögin
vilja gera Val að enn betra félagi.“
flestir Íslendingar, störfum hlaðnar og
eiga misvel heimangengt.“
Eitt af áherslumálum Valkyrja var í
upphafi að fjölga konum í stjórnum og
ráðum hjá Val. Hvernig hefur það
gengið?
„Þau tíu ár sem ég hef komið nálagt starfi
í Val hafa alltaf einhverjar konur setið í
stjórnum og ráðum þar. En eitt af megin-
markmiðum Valkyrja er að fjölga þeim
vegna þess að við teljum að þannig get-
um við gert Val að enn betra félagi.
Fyrsta árið okkar Valkyrja gekk þetta vel.
Í beinu framhaldi af stofnun félagsins
fóru 4 konur í stjórnir. Hins vegar gerðist
það síðastliðið vor að þótt aðalstjórnin
væri vel skipuð konum þá átti engin kona
sæti í knattspyrnu-, handbolta- og körfu-
boltadeild. Þar sátu 22 karlar. Við gerðum
athugasemd við þetta og buðumst til að
aðstoða við að finna hæfar, ábyrgar og
áhugasamar konur til stjórnar- og nefnd-
asetu. Körfuboltastjórnin þáði boð okkar
og nú eru tvær konur komnar þangað.
Við munum ítreka þetta boð okkar næsta
vor – og það fyrir aðalfund Vals.
Ég lít svo á að helsta ástæða þess að
ekki voru fleiri konur í þessum stjórnum
sé fyrst og fremst sú að við stjórnumst
öll að miklu leyti af vana og hefðum.
Það er oft erfitt að finna fólk í stjórnir og
því er leitað til þeirra sem eru vanir og
hafa reynslu. Þetta á sér stað alls staðar í
samfélaginu, í öðrum félagasamtökum, í
stjórnum fyrirtækja, í vali fjölmiðla á
viðmælendum – og þetta er ástæða þess
að búið er að setja lög í landinu um
kynjahlutföll í stjórnum.
Ég tel, og vona, að með tilkomu Val-
kyrja höfum við aðeins hrist upp í þess-
um hefðum, minnt á tilvist okkar kvenna
og unnið á þeirri landlægu kreddu að
konur vilji ekki sitja í stjórnum. Eins
hafa Valkyrjur verið eins konar bakland
fyrir sumar stjórnarkonur. Þetta skiptir
miklu máli því þótt áhugi fyrir stjórnar-
setu sé fyrir hendi hjá konum þá er oft
erfitt að setjast þar inn án þess að hafa
einhvern stuðning. Það má ekki skila
þetta þannig að Valkyrjur séu einhvers
konar stjórnmálaflokkur með sameigin-
lega stjórnarskrá sem ekki má víkja frá.
En þarna er þéttur kjarni ólíkra og
reynslumikilla kvenna sem hægt er að
rökræða við á opinskáan hátt.“
Hvernig sjáið þið fyrir ykkur þró-
unina hjá Val á næstu árum?
„Í framtíðinni sé ég fyrir mér að í Val, og
öllu samfélaginu, þurfi ekki lengur að
minna á kynjahlutföll neins staðar – þau
komi bara af sjálfu sér. Og að sjálfsögðu
finnst mér að Valur, eins og allar aðrar
stjórnir og félagasamtök, eigi að temja
sér grunnhugmyndina sem liggur að baki
lögunum um kynjahlutföll: að saman
myndum við kynin fjölbreytilegra, víð-
sýnara og betra samfélag.“
Hvernig teljið þið að hafi tekist til með
jafnrétti kynja í Val, t.d. í sambandi
við yngri flokka starf og starf meist-
araflokka?
„Jafnréttismálin hjá Val eru almennt séð í
fínum farvegi – ekki síst í yngri flokka
starfinu. Baráttan virðist hins vegar
verða harðari þegar ofar dregur, eins og
almennt virðist vera í íþróttaheiminum.
Til þess að það breytist þarf almenna
hugarfarsbreytingu þar sem gengið er út
frá því að íþróttir kvenna séu jafnmikil-
vægar og íþróttir karla og þar af leiðandi
eigi þær að fá jafngóða aðstöðu, fyrir-
greiðslu, umfjöllun, auglýsingu, áhorf,
svo eitthvað sé nefnt. Það þarf sameigin-
legt átak til að ná fram þessari hugarfars-
breytingu, átak sem nær til allra þeirra
sem koma nálægt íþróttum: sérsam-
banda, íþróttafélaga, fjölmiðla, iðkenda
og áhorfenda.“
Hvernig sérðu fyrir þér starfið hjá
Valkyrjum þróast á næstu árum?
„Mér finnst skipta mestu máli að hafa
vettvang fyrir konur til að ræða saman
Valkyrjur sjá um veitingar í Lollastúku á handboltaleikjum í vetur við góðar
undirtektir. Frá vinstri: Linda Ósk Sigurðardóttir, Hólmfríður Sigþórsdóttir og
Svala Þormóðsdóttir formaður Valkyrja en allar eru þær í stjórn Valkyrja.