Valsblaðið - 01.05.2013, Side 30
30 Valsblaðið 2013
Starfið er margt
andi. Keflavík vann svo annan leikinn að
Hlíðarenda og Valur þann þriðja í Kefla-
vík. Eftir naumt tap á heimavelli í fjórða
leik var ljóst að oddaleik þurfti til að
klára einvígið. Fimmti leikurinn var í
Keflavík, en þessi rimma hafði einkennst
af því að liðið á útivelli hafði unnið í öll-
um tilvikum. Mikil spenna og eftirvænt-
ing var hjá báðum liðum fyrir lokaleik-
inn. Svo fór að Keflavík vann eftir afar
spennandi lokaátök þar sem Valur leiddi
þegar skammt var til leiksloka. Því mið-
ur tókst ekki að komast í úrslitin að
þessu sinni, en stúlkurnar eiga mikið
hrós og þakklæti skilið fyrir góða
frammistöðu og ljómandi skemmtun. Nú
á haustdögum 2013 er liðið að mestu
skipað sömu leikmönnum og á liðnu
tímabili. Rut Konráðsdóttir bættist í hóp-
inn og tveir góðir félagar fóru frá okkur,
þær Berglind Karen Ingvarsdóttir og
Við leikum allir saman
Keppnistímabilið 2012–2013 var
skemmti legt fyrir körfuknattleiksdeild
Vals. Ágúst Björgvinsson var aðalþjálfari
bæði kvenna- og karlaliðs félagsins, eins
og árið áður. Honum til aðstoðar voru
Sævaldur Bjarnason og Hafdís Helga-
dóttir. Stjórn deildarinnar var skipuð
sömu aðilum og árið áður, en þeim til
stuðnings var hópur vaskra Valsmanna,
sem eru ómissandi þáttur í daglegu starfi
félagsins. Stjórn og leikmenn þakka
þeim aðilum fyrir frábært starf fyrir fé-
lagið. Starf deildarinnar einkennist af
textanum góða; við leikum allir saman,
létt það verður gaman. En sá fallegi
sálmur er að jafnaði sunginn þegar leikir
vinnast hjá liðum deildarinnar. Það er
hefð sem við mælum með, það bæði bæt-
ir anda og styrk.
Gott gengi meistaraflokks kvenna
Meistaraflokki kvenna gekk vel árinu.
Liðið lék til úrslita í bikarkeppni Körfu-
knattleikssambandsins í Laugardalshöll í
febrúar gegn Keflavík. Við töpuðum í
hörðum leik eftir hetjulega baráttu í síð-
ari hálfleik. Þetta er í fyrsta skipti í of
mörg ár sem körfuknattleikslið frá Val
leikur til úrslita í bikarkeppni í efstu
deild. Leikmenn liðsins voru félaginu til
mikils sóma og ánægjulegt að sjá mikinn
fjölda Valsmanna sem mættu í Laugar-
dalshöllina til að fylgjast með stúlkun-
um. Á vordögum var Valur eitt af fjórum
liðum sem lék til úrslita um Íslands-
meistaratitil kvenna. Það lið sem fyrr
vinnur þrjá leiki í undanúrslitum leikur
til úrslita. Við lékum gegn sterku liði
Keflavíkur í undanúrslitum og unnum
fyrsta leikinn í Keflavík nokkuð hress-
„Við leikum allir saman,
létt það verður gaman“
Skýrsla körfuknattleiksdeildar 2013
Meistaraflokkur karla í körfuknattleik 2013–2014. Efri röð frá vinstir: Ágúst S. Björgvinsson þjálfari, Bjarni Geir Gunn-
arsson, Bergur Ástráðsson, Gunnlaugur Elsuson, Chris Woods, Birgir Björn Pétursson, Þorgrímur Guðni Björnsson, Oddur
Birnir Pétursson og Ari Gunnarsson aðstoðaþjálfari. Neðri röð frá vinstri: Atli Barðason, Benedikt Blöndal, Oddur Ólafsson,
Rúnar Ingi Erlingsson varafyrirliði, Hlynur Vikingsson, Kristinn Ólafsson og Jens Guðmundsson. Á myndina vantar: Ragnar
Gylfason fyrirliða, Sigurð Skúla Sigurgeirsson og Guðna Heiðar Valentínusson. Ljósm. Guðlaugur Ottesen Karlsson.