Valsblaðið - 01.05.2013, Side 32
32 Valsblaðið 2013
lék nokkrar mínútur í þessum leik. Valur lék svo til úrslita gegn
Hamri frá Hveragerði um laust sæti í efstu deild. Hinn fótbrotni
Woods var farinn að spila meira en var enn langt frá sínu besta
en líkamlegur styrkur hans nýttist þó ágætlega. Valsmenn mættu
einbeittir í úrslitaleikina og með góðum leik, sterkri liðsheild
sem stóðst álagið og raunina vel unnu þeir fyrstu tvo leikina og
þar með úrslitakeppnina. Því var ljóst að Valur myndi leika að
ári (2013–2014) í hópi bestu liða landsins. Sameiginleg ákvörð-
un leikmanna og stjórnar var tekin snemma eftir tímabilið að
reyna að halda (að mestu) óbreyttum mannskap og kanna getu
liðsins í úrvalsdeild. Ljóst var að liðinu beið krefjandi verkefni,
en það er trú þess sem þetta ritar að þetta lið eigi fullt erindi í
efstu deild og að það geti spjarað sig. Í sumar sem leið komu
svo góðir liðsmenn til okkar; Oddur Ólafsson, Oddur Birnir Pét-
ursson, Gunnlaugur Elsuson og Guðni Heiðar Valentínusson.
Atli Hreinsson yfirgaf liðið og fór erlendis til náms og þökkum
við honum góð kynni. Þá kom nýr aðstoðarþjálfari til liðsins,
Ari Gunnarsson, Valsmaður kom heim og fögnum við komu
hans. Ari lék með öllum yngri flokkum Vals og fjölmarga meist-
araflokksleiki á síðustu öld. Þá þökkum við Sævaldi Bjarnasyni
fyrir hans störf fyrir félagið og óskum honum alls hins besta í
starfi og leik. Í lok sumars fór liðið svo í æfingaferð til Dan-
merkur, ásamt kvennaliðinu, til að stilla saman strengi og undir-
búa sig fyrir átök vetrarins.
Mikil áskorun að setja ártal á vegginn
Það er mikil áskorun, sérstaða og stolt fyrir Val að eiga lið í efstu
deild, kvenna og karla, í körfuknattleik, handknattleik og knatt-
spyrnu. Til að viðhalda því þarf mikla samvinnu og markvisst
starf. Við í körfuknattleiksdeild erum stolt af því að vera hluti af
þeirri heild. Það er stefna okkar að gera enn betur, halda merki
Vals hátt á lofti og setja ártal á vegginn. Til þess að það takist
þurfa allir að leika saman. Að lokum vil ég þakka öllum þeim
sem hafa komið að starfi deildarinnar á liðnu ári fyrir þeirra
framlag, og þakka leikmönnum og þjálfurum fyrir skemmtilegar
stundir. Við leikum allir saman, létt það verður gaman.
Svali H. Björgvinsson formaður körfuknattleiksdeildar
Uppskeruhátíð körfunnar, yngri flokkar
MB 6–7 ára
Árið byrjaði vel, það var nokkuð mikið af krökkum að æfa hjá
okkur, vorum með allt að 18 krakka á æfingu fyrstu mánuðina
en svo fór að tínast út úr hópnum þegar leið á veturinn, en eftir
voru 8 hressir og kátir strákar sem voru allan veturinn. Við fór-
um á þrjú mót í vetur, Póstmótið hjá Breiðablik, Nettómótið hjá
Keflavík/Njarðvík og svo að lokum afmælismótið hjá Val. Allt
þetta gekk mjög vel og strákarnir stóðu sig með prýði og voru
allir mjög kátir með keppnirnar. Veturinn gekk vel og þessir
strákar eiga eftir að vera mikil körfuboltaefni ef þeir halda
áfram að æfa sig.
MB 8–9 karla
þetta var fámennur hopur í upphafi vetrar með einhverja 3–4
stráka þar sem margir höfðu gengið upp í 10 og 11 ára flokkinn.
Við náðum mest að fjölga okkur í 10 stráka í vetur en talan end-
ar svo í um 9 og trákarnir voru virkilega áhugasamir og flottir
og tóku miklum framförum í vetur. Strákarnir fóru á Nettómótið
og svo vormót Vals og stóðu sig með miklum sóma og voru fé-
laginu og sjálfum sér til mikils prýðis.