Valsblaðið - 01.05.2013, Side 38
38 Valsblaðið 2013
sé sá frægasti Valsarinn í fjölskyldunni.
Það eru að vísu ekki margir Valsarar í
ættinni, þetta er að mestu leyti Keflvík-
ingar og Fylkismenn.“
Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú
fengið frá foreldrum þínum í sam-
bandi við körfuboltann? „Ég hef fengið
mjög mikinn styrk og mikla hvatningu
frá fjölskyldu minni tengt körfunni. Ég
hef fengið nokkrar „einkaæfingar“ frá
Þorra bróður mínum sem ég hef reynt að
nýta. Pabbi kemur oft með gáfuleg
„comment“ að leik loknum.“
Hvað finnst þér mikilvægtast að gera
hjá Val til að efla starfið í yngri flokk-
um félagsins? „Mér finnst að fólkið
þurfi að hittast meira og kynnast hvert
öðru meira og að boltaíþróttirnar hittist
líka.“
Hvað finnst þér mikilvægast að gera
til að bæta aðstöðuna á Hlíðarenda? „Í
Eos, gamla félaginu mínu i Svíþjóð var
hægt að fara inn í höllina og æfa. Það var
nefnilega bara körfubolti æfður þar. Ef
að það var æfing á einum vellinum þá
var einn völlur laus til þess að leika sér á.
Það er eitthvað sem ég sakna mjög mik-
ið. Þar var líka „hobby room“ sem var
gaman að hitta vini sína í.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra
Friðrik Friðriksson, 11. maí 1911.“
Hver eru þín einkunnarorð? „Winners
never quit and quitters never win. David
þjálfari sagði þetta einhvern tíman á æf-
ingu og mér fannst þetta vera flott.“
Óðinn er 13 ára og hefur æft körfubolta
síðan hann var 6 ára. Hann byrjaði í Val í
körfunni en sumarið 2007 flutti fjöl-
skyldan út til Svíþjóðar og bjó þar í 4 ár
og þar lék hann körfubolta með sænska
liðinu Eos Lund. Sumarið 2011 flutti
fjölskyldan aftur heim og hann byrjaði
aftur í körfubolta með Val.
Hvers vegna körfubolti? „Pabbi æfði
körfubolta hérna í Val fyrir hundrað
árum og bróðir minn æfir líka körfu-
bolta. Ég fékk áhugan á körfuboltanum
frá þeim. Ég tók nokkrar æfingar í hand-
bollta og sundi í Svíþjóð en það toppar
ekkert körfuna.“
Hvernig gengur ykkkur í körfunni?
„Ég hef aðallega keppt með 9. flokki
(einu ári eldri en ég) og þar gengur okkur
bara vel. Við héldum okkur í B-riðli í all-
an vetur. Mér finnst hópurinn okkar
mjög skemmtilegur og það er oftast góð-
ur andi á æfingum og í leikjum, en auð-
vitað gerist það að mórallin verður léleg-
ur.“
Hvernig eru þjálfarar þínir? „Í körf-
unni í Val hefur verið frekar erfitt að vera
með fastan þjálfara fyrir yngri flokkana
en núna er það breytt, allavega hjá strák-
unum. David þjálfari er einn svona „al-
vöru“ þjálfari. Hann hefur styrkt okkur
strákana um heilan helling, bæði andlega
og líkamlega og sem körfuboltamenn. Ég
vona að við strákarnir höldum honum
sem þjálfara næstu árin. Góður þjálfari á
að vera strangur enn réttlátur og hlustar á
leikmenn sína.“
Segðu frá skemmtilegum atvikum úr
boltanum. „David reddaði okkur strák-
unum þjálfara frá Englandi sem heitir
Matt Guymon í viku. Pabbi hans spilaði í
NBA og hann sjálfur var pointguard í
enska landsliðinu. Við í körfunni í Eos
fórum einu sinni til staðar sem heitir
Eskil stuna, sem er í miðri Svíþjóð, og
kepptum þar og lentum í 3.–4. sæti af
næstum því öllum liðum í Svíþjóð. Það
var mjög gaman og ég kynntist liðsfélög-
um mínum betur.“
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í
körfuboltanum? „Uppáhalds körfu-
boltamennirnir mínir í NBA eru leik-
menn frá LA Clippers, þeir Blake Griff-
in, Chris Paul og DeAndre Jordan. En þá
íslensku þekki ég ekki nógu vel, en
finnst þá þeir Jakob og Hlynur standa sig
vel í Dragon Sundsvall og í landsliðinu.
Þeir eru mjög virtir í körfuboltanum í
Svíþjóð.“
Hvað þarf til að ná langt í körfubolta
eða íþróttum almennt? „Traust er mik-
ilvægt í körfunni og í öðrum íþróttum,
bæði sjálfstraust og að geta treyst á leik-
mennina sem eru á vellinum með þér. Ég
þarf og vil bæta mig í öllu sem tengist
körfunni. Við þurfum að venja okkur
meira á því að vinna leiki og sætta okkur
ekki við tap.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar í
körfubolta og lífinu almennt? „Mig
langar að fara út til Bandaríkjanna í há-
skóla og körfubolta eða til Svíþjóðar.
Kannski vill ég vera leikstjóri. Er ekki
allveg viss.“
Hver er frægasti Valsarinn í fjölskyld-
unni? „Ég held að pabbi eða bróðir minn
Ungir Valsarar
Það toppar
ekkert körfuna
Óðinn Arnarsson er 13 ára og leikur
körfubolta með 8. flokki