Valsblaðið - 01.05.2013, Page 39
spila atvinnumensku á einhverjum af
Norðurlöndunum og vera að læra eða
vinna með.“
Hver er frægasti Valsarinn í fjölskyld-
unni þinni? „Ætli það sé ekki systir mín,
Katrín Gylfadóttir.“
Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú
fengið frá foreldrum þínum? „Hef
fengið ómetanlegan stuðning frá foreldr-
um mínum. Þau mæta á alla leiki sem
þau komast á og hafa skutlað mér um allt
land til að fara á leiki eða mót. Það mun-
ar svakalega miklu að fá stuðning frá
foreldrum. Það eflir og styrkir mann að
vita að maður hafi góðan stuðning.“
Hvað finnst þér mikilvægast að gera
hjá Val til að efla starfið í yngri flokk-
um félagsins? „Mér finnst yngriflokka
starf Vals hafa eflst mikið seinustu ár.
Góðir þjálfarar eru undirstöðuatriði og
svo mætti efla sambandið milli yngri
flokkanna og meistaraflokkanna.“
Hvernig er aðstaðan á Hlíðarenda til
að æfa fótbolta? „Toppaðstaða á Hlíðar-
enda. Væri samt fínt að hafa upphitaðan
gervigrasvöll til að geta æft úti allan árs-
ins hring.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra
Friðrik Friðriksson stofnaði Val árið
1911.“
Hver eru þín einkunnarorð (mottó)?
„If it is important to you, you will find a
way. If not you will find an excuse.“
Nína hefur æft fótbolta í 9 ár. Upphaf-
lega ætlaði mamma hennar að láta hana
fara í Fram en þar var ekki til flokkur
fyrir svona ungar stelpur og því fór hún í
Val. „Einnig var systir mín í Val svo að
ég fylgdi henni.“
Hvernig var tilfinningin að fá Friðriks-
bikarinn í haust? „Það var ánægjulegt að
fá þessa viðurkenningu og hvetur mig til
að gera enn betur. Vera fyrirmynd fyrir
aðra og sýna heiðarlega framkomu.“
Hvers vegna fótbolti, hefur þú æft aðr-
ar greinar? „Æfði ballet þegar ég var
lítil en svo kíkti ég á fótboltaæfingu og
þá var ekki aftur snúið, fannst það svo
gaman.“
Hvernig gekk ykkur í sumar? „Áttum
frekar erfitt uppdráttar í Íslandsmótinu
en við bættum okkur jafnt og þétt yfir
sumarið og vorum farnar að ná mjög vel
saman í lok sumars. Fórum á Rey-cup og
það gekk vel og var rosa gaman, lentum í
fyrsta sæti á því móti. Hópurinn var sam-
heldinn og allar fínar vinkonur sem er
undirstöðuatriði í því að ná langt sem
lið.“
Hvernig eru þjálfarar þínir? „Rakel
Logadóttir var með okkur í sumar og
fannst það mjög fínt. Hún var mikið að
æfa okkur í varnarleik sem var orðinn
frábær í sumar. Svo er hún líka algjör
sprelligosi og gott að geta haft gaman á
æfingum. Að mínu mati er góður þjálfari
einhver sem dregur fram það besta í leik-
manninum, fær mann til að gera sitt
besta og hvetur alla áfram.“
Segðu frá skemmtilegum atvikum úr
boltanum. „Man mjög vel eftir því þeg-
ar við vorum á Laugarvatni í 5. flokki og
Stefanía í flokknum var með óborganlegt
uppistand með sögum af ömmu sinni og
fleiru. Þá var sko hlegið mikið.“
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í fót-
boltanum? „Helstu fyrirmyndir mínar
eru Andrés Iniesta, frábær miðjumaður í
spænska landsliðinu. Svo er Dagný
Brynjarsdóttir mikil fyrirmynd, fylgist
mikið með henni spila og læri af henni
og svo er líka systir mín mikil fyrirmynd,
Katrín Gylfadóttir. Einnig hefur Dóra
María verið mín helsta fyrirmynd síðan
ég byrjaði í boltanum.“
Hvað þarf til að ná langt í fótbolta eða
íþróttum almennt? „Það er helst hugar-
farið, það skiptir mjög miklu máli. Hafa
trú á sjálfum sér og gera alltaf sitt besta.
Einnig að setja sér raunhæf markmið,
það spilar stóran þátt í árangri. Ætli ég
þurfi ekki að bæta mig í því að horfa
meira á fótbolta.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar í
fótbolta og lífinu almennt? „Framtíðar-
draumar mínir eru að fara í háskóla í
Bandaríkjunum á skólastyrk og læra að
verða læknir. Að verða fastamaður í A-
landsliðinu. Eftir 10 ár sé ég mig vera að
Kíkti á
fótboltaæfingu
og þá var ekki
aftur snúið
Nína Kolbrún Gylfadóttir er 16 ára
og leikur fótbolta með 2. flokki og
er handhafi Friðriksbikarsins