Valsblaðið - 01.05.2013, Page 41
Valsblaðið 2013 41
Framtíðarfólk
Mottó: Þetta reddast.
Við hvaða aðstæður líður þér best: Í
heitu freyðibaði eftir erfiða æfingu.
Hvaða setningu notarðu oftast: „Án
gríns?“
Skemmtilegustu gallarnir: Á það til að
vera hrikalega klaufsk.
Fullkomið laugardagskvöld: Kósí
kvöld með góðum vinum.
Fyrirmynd þín í fótbolta: Katrín Jóns-
dóttir og Sif Atladóttir.
Draumur um atvinnumennsku í fót-
bolta: Ég stefni á að fara í háskóla í
Bandaríkjunum en svo langar mig að
spila í úrvalsdeildinni í Svíþjóð.
Landsliðsdraumar þínir: Stefnan er
sett á A-landsliðið.
Besti söngvari: James Morrison.
Besta hljómsveit: Coldplay og Muse.
Besta bíómynd: Skrímsli hf.
Besta bók: Harry Potter bókaflokkurinn.
Besta lag: Imagine með John Lennon.
Uppáhaldsvefsíðan: Fer mest inná fa-
cebook og fotbolti.net.
Uppáhaldsfélag í enska boltanum:
Arsenal.
Nokkur orð um núverandi þjálfara:
Helena er þægileg í umgengni, yfirveg-
uð, algjör nagli.
Ef þú værir alvaldur í Val hvað mynd-
ir þú gera: Fyrsta verkefnið mitt væri
auðvitað að láta laga nuddtækið í pottin-
um. Svo myndi ég skella upphitun undir
gervigrasvöllinn.
Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar-
enda: Inniaðstæðan er frábær, en gervi-
grasið hefði nú alveg mátt vera upphitað.
Hvernig viltu sjá Val þróast á næstu
árum: Að félagið sinni yngri flokkunum
áfram af krafti svo fleiri skili sér upp í
meistaraflokk og fleiri titlar komi í hús.
Fæðingardagur og ár: 4. júlí 1995.
Nám: Verzlunarskóli Íslands.
Kærasti: Nei.
Hvað ætlar þú að verða: Ég á langt í
land með að ákveða það.
Af hverju Valur? Ég byrjaði í Val því
bróðir minn æfði þar og félagið er í
hverfinu mínu.
Uppeldisfélag í fótbolta: Valur.
Frægur Valsari í fjölskyldunni: Varla
neinir Valsarar í ættinni minni.
Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í
fótboltanum: Mamma og pabbi eru
mjög dugleg að styðja við mig og hvetja
mig áfram í boltanum. Þau voru mikið að
skutla mér fram og til baka á æfingar
áður en ég fékk bílpróf og þau hafa líka
hjálpað mér að halda góðu mataræði og
hollum lífsstíl.
Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl-
skyldunni: Verð að segja ég.
Af hverju fótbolti: Ég var mikið í fim-
leikum þegar ég var yngri en skipti svo
alveg yfir í fótbolta 10 ára gömul. Það er
rosa gott félagslíf í fótboltanum fyrir
utan það hvað fótbolti er líka drullu-
skemmtilegur.
Helstu afrek í öðrum íþróttagreinum:
Á nokkur verðlaun úr áhaldafimleikum.
Eftirminnilegast úr boltanum: Það er
mjög eftirminnilegt þegar við unnum öll
mót sem við tókum þátt í, árið 2009 í 4.
flokki.
Ein setning eftir síðasta tímabil: Spil-
aði seinni hluta sumars í byrjunarliði Aft-
ureldingar á láni, virkilega góð reynsla
fyrir framtíðina.
Markmið fyrir næsta tímabil: Ég ætla
að stimpla mig inn í meistaraflokkinn hér
í Val.
Besti stuðningsmaðurinn: Mamma og
pabbi fá að deila þeim titli.
Erfiðustu samherjarnir: Dagný Brynj-
arsdóttir.
Erfiðustu mótherjarnir: Guðmunda
Brynja Óladóttir.
Eftirminnilegasti þjálfarinn: Björn Sig-
urbjörnsson og Margrét Magnúsdóttir.
Mesta prakkarastrik: Ég og vinkona
mín ákváðum einu sinni að gera öll
prakkarastrikin í Laginu um það sem er
bannað. Við pissuðum reyndar ekki bak-
við hurð en mamma var ekkert alltof sátt
með ormana sem við tíndum handa henni.
Fyndnasta atvik: Ég var að keppa með
3. flokki. Ég var aftasti maður á vellinum
og boltinn barst til mín eftir klafs á miðj-
unni. Ég tók boltann beint upp með
höndunum og byrjaði að dripla því ég
heyrði flaut og gerði ráð fyrir því að
dómarinn hefði dæmt brot. Þegar allir
stóðu bara og horfðu mjög hissa á mig
áttaði ég mig á því að dómarinn hefði
greinilega ekkert flautað, heldur hafði
einhver áhorfandi blístrað. Ég svona
hálfhló voða vandræðaleg og lagði bolt-
ann frá mér. Fyrir þetta fékk ég fyrsta
gula spjaldið mitt á ævinni.
Stærsta stundin: Það var stór stund þeg-
ar við urðum fyrstu Íslandsmeistararnir í
6. flokki, árið 2005.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara-
flokki kvenna hjá Val: Berglind Rós
Ágústsdóttir sem er að koma til baka eft-
ir krossbandsslit.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara-
flokki karla hjá Val: Indriði Áki Þor-
láksson.
Hvernig líst þér á yngri flokkana í fót-
bolta hjá Val: Fullt af virkilega efnileg-
um krökkum sem vonandi halda áfram til
að komast alla leið.
Hvaða áhrif hefur koma Ólafs Stef-
ánssonar á starfið hjá Val: Óli hefur
alltaf verið mikil fyrirmynd og mér
finnst magnað hvað hann náði að gera á
sínum ferli. Ég efa ekki að hann hafi
margar góðar hugmyndir um uppbygg-
ingu félagsins og vona að hann geti haft
áhrif á allt starf félagsins.
Fleygustu orð: Lát aldrei kappið bera
fegurðina ofurliði.
Fótbolti er
drulluskemmtilegur
Ingunn Haraldsdóttir er 18 ára og leikur
fótbolta með meistaraflokki og 2. flokki