Valsblaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 42
42 Valsblaðið 2013
birtist. Á Dalvík hefur margur góður
Valsarinn alið manninn og fara sennilega
þar fremstir síra Friðrik Friðriksson og
doktor Sigurbjörn Hreiðarsson. Dalvík er
góður staður og ég hvet alla þá sem eftir
eiga að fara þangað að sækja víkina heim
hið fyrsta. Þar er allt gott og betra en
víða þekkist án þess ég ætli að fara nánar
út í það. B-liðið spilaði við Dalvíkinga
skemmtilegan leik, þar sem fegurðin var
kappinu fremri enda mátti finna fyrir síra
Friðrik í brekkunni. Um kvöldið var síð-
an farið í hvalaskoðun frá Hauganesi. Á
leiðinni var stoppað á Hálsi við minnis-
merki um séra Friðrik Friðriksson og
mynd var tekin af því tilefni af hópnum.
Uppvaskari ferðarinnar, Jón Gunnar
Bergs, var meyr og fannst þetta sennilega
vera hápunktur ferðarinnar, enda mikill
Valsari þar á ferð. Á Hauganesi tók á
móti okkur mesta knattspyrnuhetja þeirra
Árskógsstrendinga, Garðar Níelsson,
sýndi mönnum nokkra hnúfubaka og svo
fengu menn að spreyta sig í því að fanga
þann gula. Gekk það misvel. Þungt var í
sjóinn og stóðust menn misvel þá miklu
raun sem sjómennskan er. En allir komu
þeir aftur og enginn þeirra dó.
Þriðji flokkur karla í
knattspyrnu fór í vel
heppnaða vikuferð hringinn
í kringum landið í sumar og
lék 6 útileiki í ferðinni og
skemmtu sér vel saman
Fyrir um ári síðan settust niður, þjálfari
og foreldrar iðkenda í 3. flokki Vals í
knattspyrnu, til að leggja drög að kom-
andi tímabili. Meðal annars var rætt um
ferðalög. Hvort fara ætti erlendis í
keppnisferð eður ei. Afráðið var að fara
ekki erlendis þetta sumarið en þess í stað
að búa til skemmtilega ferð í kringum
útileiki flokksins úti á landi. Við skoðun
leit hugmynd þessi æ betur út og ráðist
var í skipulagningu. Gerðar voru tilheyr-
andi breytingar og tilfærslur á leikjaplani
og búin voru til verkefni fyrir þá sem
minna fengu að spila. Eins og C riðillinn
skipaðist þá áttum við að spila við Þór á
Akureyri í A og B, við Völsung á Húsa-
vík í A liðum og Fjarðarbyggð í A liðum.
Þriðji flokkur karla var í samstarfi við
Víking með B liðið. Þeir hugðust koma
fljúgandi í einn leik en við vildum búa til
fleiri verkefni fyrir B-liðs piltana í ferð-
inni, þannig að við settum upp tvo 7
manna leiki fyrir þá. Annan gegn Dalvík-
ingum og hinn gegn Hetti frá Egilsstöð-
um.
Skipuleggjendur ferðarinnar voru
nokkuð vel tengdir í kringum leikstaðina
þannig að gengið var í að notfæra sér
tengingar og sambönd sem til voru varð-
andi gistingu. Skipulagning gekk vel og
náðum við að búa til ferð sem kostaði
um 25–30% af því sem utanlandsferð
kostar að teknu tilliti til þátttöku Vals við
ferðalög í útileiki. Hringferð um landið,
6 leikir, gist í 5 nætur, tvær á Akureyri,
tvær á Dalvík og ein á Reyðarfirði. Lagt
var upp úr því að bjóða upp á gott fæði
án þess að reiða sig á veitingastaði.
Leigðir voru tveir 14 manna bílar hjá
Bílaleigu Akureyrar sem fararstjórar
keyrðu. Báðir bílar voru búnir veglegum
trússkerrum sem þeir drógu á eftir sér
allan hringinn. Allt miðaðist þetta skipu-
lag, eins og áður sagði, við að stilla
kostnaði í hóf. Ferðalagið stóð frá 28.
júní til 5.júlí.
Norðurlandið fyrst sótt heim
Lagt var af stað frá Reykjavík um kl.
16.00, föstudaginn 28. júní sem leið lá til
Akureyrar með viðkomu á Blönduósi.
Gist var í félagsheimili Þórsara að Hamri
fyrstu tvær næturnar. Fyrir lá að spila við
Völsung á Húsavík á laugardegi. Leikur
A liðsins við Völsung gekk vel og vannst
1-5. Tölurnar gefa þó að mati undirritaðs
ekki alveg rétta mynd af leiknum en allt
gekk þetta vel. Eftir sturtu og ís var farið
til Akureyrar þar sem bryti ferðarinnar
hafði ráðgert að grilla svína prime í
drengina. Grillið gekk ekki alveg snurðu-
laust og munaði minnstu að við brennd-
um Þórsheimilið til kaldra kola. Þess má
geta að við vorum með húsið alveg út af
fyrir okkur og gjaldtaka var hófsöm hjá
vinum okkar í Þór. Svo fór brennt svínið
ekki verr í drengina en svo að Þórsarar
urðu að lúta í gras í flokki A-liða á
sunnudeginum, 1-3, en Þórsarar náðu
uppreisn í 3-0 sigri gegn Val/Víkingi í
flokki B liða. Eftir þrekið hlaðborð á
Greifanum skelltum við okkur í slökun
til Dalvíkur og gistum þar tvær nætur. Ég
get ekki leynt því að það hríslaðist um
marga þegar ekið var yfir Háls og Dalvík
Hringferð Valsmanna um landið
Skipuleggjendur ferðarinnar og fararstjórar voru enn brúnir og brosandi á
uppskeruhátið knattspyrnudeildar, 3 mánuðum eftir heimkomu. Frá vinstri: Þorsteinn
Guðbjörnsson með soninn Þorstein Ara, Jóhann Hreiðarsson með dótturina Möndu
Maríu og Jón Gunnar Bergs.