Valsblaðið - 01.05.2013, Page 43

Valsblaðið - 01.05.2013, Page 43
Valsblaðið 2013 43 Ferðasaga heim. Tekinn einn sveittur „burger“ og ís á Djúpavogi. Stoppuðum í Jökulsárlóni og reyndum að slátra restinni af nestinu. Við lentum í Reykjavík sælir og sáttir eftir góða ferð um 4.00 aðfaranótt 5. júlí. Við viljum þakka öllum sem koma að þessari ferð í stóru og smáu. Einnig erum við allir sammála um það að sækja Ís- land heim er sannarlega valkostur á móti utanlandsferðum og skemmtileg félags- leg upplifun. Valskveðjur – Áfram Valur Þorsteinn Guðbjörnsson, bryti og bíl­ stjóri 2 tók saman. Jón Gunnar Bergs, uppvaskari og bílstjóri 1 og Jóhann Hreiðarsson, þjálfari til aðstoðar. Austurlandið kallar Eftir góða næturhvíld var lagt af stað til Austfjarða á þriðjudagsmorgun. Á leið- inni austur var reynt af megni að ýta við mönnum og kynna fyrir þeim landið en það verður að segjast að það var ekki til þess að hækka einkunn drengjanna í landafræði. Þó var gerð góð úttekt á Goðafossi og hann skoðaður í bak og fyrir af nærgætni og virðingu. Í Fellabæ tók B liðið einn léttan leik við Hött. Andi leiksins var aðeins annar en á Dalvík og voru Egilsstaðabúar ekki eins gestrisnir og Dalvíkingar. Það verður að segjast. Að því loknu geystumst við niður á Reyðarfjörð til næturgistingar í Sóma- setri – Félagsmiðstöð Alcoa. Þar ræður ríkjum heljarmenni mikið, Jón Björn Ríkarðsson, trommuleikari í Brain Police og starfsmaður Alcoa Fjarðaráls með meiru. Í Sómasetri var allt til alls og gerður góður rómur að. FIFA 13 var spil- aður í tætlur. Brytinn fór hamförum á grillinu og í þetta skiptið var lamba prime á boðstólnum með bakaðri og sal- ati. Gott veganesti fyrir erfiðan leik í vændum. Á miðvikudeginum var síðan síðasti leikur ferðarinnar á móti Fjarðar- byggð á Eskifirði. Það má segja að heppnin hafi verið með okkur þar sem við náðum að landa sigri á síðustu andar- tökum leiksins 1-2 fyrir Val. Níu stig í húsi og menna sáttari við að eiga 9 tíma ferðalag fyrir höndum. Bílarnir voru lest- aðir í síðasta skipti og haldið var af stað Valsmenn léttir í lund á Hálsi sumarið 2013 við minnismerki um Séra Friðrik Friðriksson. Aftari röð frá vinstri: Jóhann Hreiðarsson þjálfari og Dalvíkingur #1a, Gunnar Sigurðsson, Árni Davíð Bergs, Jón Arnar Stefánsson, Aron Elí Sævarsson, Darri Sigþórsson, Sindri Scheving, Síra Friðrik, Ýmir Örn Gíslason, Guðmundur Gunnarsson, Garðar Sigurðarsson, Kári Kristinn Bjarnason, Þor­ steinn Guðbjörnsson yfirfararstjóri, bryti og Dalvíkingur #1b („meira að segja heita vatnið er betra á Dalvík, því það er aðeins kalt“), Arnar Geir Geirsson. Neðri röð frá vinstri: Helgi Hrafn Þorsteinsson, Dagur Steinn Baldursson, Egill Magnússon, Hróbjartur Höskuldsson, Gunnar Magnús Bergs, Andri Steinarr Viktorsson, Páll Jakobsson, Þorgils Jón Svölu Baldursson, Magnús Konráð Sigurðsson, Róbert Snær Ólafsson. Myndina tók Jón Gunnar Bergs uppvaskari og grillmeistari ferðarinnar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.