Valsblaðið - 01.05.2013, Qupperneq 46
46 Valsblaðið 2013
Eftir Rakel Logadóttur
„A real winning attitude is about stand
ards of excellence – which are variable
from year to year, from team to team.
Being the best you can be – and doing
the best you can – are the constants.“
Hugarfar sigurvegara
Hugarfar sigurvegarans snýst einnig að
miklu leyti um það að vera alltaf að bæta
sig frá ári til árs og stoppa aldrei í þeim
efnum. Lið sem eru sigurvegarar gera
það sama. Þau bæta sig frá ári til árs og
staðna ekki. Kröfurnar verða hærri með
hverju árinu sem líður og því eldri sem
krakkarnir verða.
Það er þó undir þjálfurunum komið að
meta liðið frá ári til árs og hversu miklar
kröfur hægt er að setja á lið. Liðin breyt-
ast frá ári til árs í yngri flokkum og til að
mynda er ekki hægt að setja sömu kröfur
á lið í 4. flokki árið 2013 og þann 4.
Ég heiti Rakel Logadóttir og er leikmað-
ur og þjálfari hjá Val. Ég hef spilað fyrir
félagið í meira en 20 ár og þjálfað yngri
flokka hjá fé-
laginu í örugg-
lega 8 eða 9 ár.
Á síðustu árum
hef ég velt því
mikið fyrir mér
hvernig árangur
skuli metinn í
starfi yngri
flokka. Til eru
nokkrar ,,mæli-
stikur“ á árang-
ur og getur það
verið margt sem hægt er að skoða. Marg-
ir foreldrar, þjálfarar og aðrir aðstand-
endur vilja mæla árangur yngri flokka
með því að skoða unna leiki á móti töp-
uðum leikjum eða einfaldlega með því
að telja titla. Ef lið tapar mörgum leikj-
um yfir tímabilið þá vilja sumir líta á það
sem lélegan árangur og ef lið vinnur titil
vilja flestir meina að gnu mati. Lið getur
unnið marga leiki, unnið titla en skoða.
Margir foreldrar, þjóður árangur hafi
náðst.
Þetta er ekki alveg svo einfalt að mínu
mati því til eru fleiri sjónarmið á árangur
sem vert er að skoða nánar. Þegar þjálfari
er með lið í höndunum er alltaf ætlunin
að ná árangri. Árangurinn þarf ekki endi-
lega að vera að liðið ætli sér að vinna Ís-
landsmeistaratitilinn, heldur getur þessi
árangur verið að vinna stanslaust í því að
bæta ýmsa þætti sem leikmenn og liðið
þurfa að bæta og kenna leikmönnum
nýja taktíska hluti eða bæta leikmennina
í tæknilegum atriðum og ná þannig ár-
angri í formi framfara og bættri kennslu.
Að gera sitt besta
Þegar sigur næst í leik er ekkert endilega
allt rétt og flott hjá liðinu sjálfu og leik-
mönnum. Að sama skapi þegar lið tapar
þá er ekki alltaf allt ,,ömurlegt“ eða
,,rangt“ sem leikmenn eru að gera inni á
vellinum. Stundum þegar lið tapar þá
getur það verið að það hafi unnið samt
sem áður. Sigurinn getur falist í því að
leikmenn lögðu sig alla fram, gerðu allt
sem þjálfarinn lagði upp með og gerðu
allt sem þeir gátu en náðu samt ekki að
knýja fram sigur í leiknum eða á mótinu.
Að mínu mati þá er lið í yngri flokkum
sigurvegari sem leggur sig fram, hefur
gaman, lærir að vinna sem heild, liðs-
menn læra að vinna fyrir hvern annan og
hver og einn í liðinu reynir alltaf að bæta
sig, þó það takist kannski ekki alltaf. Ef
einhver lærdómur náðist af þeim leik
sem verður þess valdandi að liðið og/eða
einstaklingarnir bæta sig í næstu leikjum
á eftir þá er það ákveðinn sigur að mínu
mati. Lið sem gerir sitt besta og nær að
bæta sig í ákveðnum þáttum leiksins er
því alltaf sigurvegari í yngri flokkum.
Einstaklingar og lið sem sigrast á hvers
konar mótlæti er einnig sigurvegari.
Leikmenn meiðast, lið tapa mörgum
leikjum í röð o.s.frv. Þeir sem gefast ekki
upp og halda áfram að bæta sig þrátt fyr-
ir ýmiskonar mótlæti eru stærstu sigur-
vegararnir að mínu mati.
Farsæll þjálfari sem þjálfaði körfu-
bolta hja Duke í mörg ár og heitir Mike
Krzyzewski eða ,,Coach K“ lýsir þessu
svo vel.
Hvernig er árangur í yngri
flokka starfi metinn?
Rakel Logadóttir, MSc. í íþróttavísindum og þjálfun, EUFA B,
og yfirþjálfari yngri flokka knattspyrnudeildar Vals
Rakel Logadóttir