Valsblaðið - 01.05.2013, Qupperneq 50
50 Valsblaðið 2013
boltamótin standa upp úr í minningunni,
ekki síst vegna þess að þar gekk okkur
mun betur, við vorum alltaf að berjast
um titla. Mér fannst gaman að fara sam-
an með stráknun á þessi mót í yngri
flokkunum og ég held að þetta sé mjög
mikilvægt til að styrkja liðsandann og
félagsþroskann,“ segir Orri.
Gísla fannst fyrsta Partille Cup mótið
sérstaklega eftirminnilegt. „Skemmtileg-
asta mótið sem ég man eftir var Partille
Cup í Svíþjóð þegar Orri var 15 ára. Ég
fór einn með strákunum og Freyr Brynj-
ars var þjálfari. Hópurinn var mjög lítill,
bara einn skiptimaður og þetta var alveg
ljómandi gaman. Þetta var 10 daga mót,
ekkert vesen á strákunum og við féllum
naumlega út í 8 liða úrslitum. Ógleyman-
legt mót,“ segir Gísli. Ýmir hefur líka
farið á tvö mót erlendis, bæði í fótbolta
og handbolta og honum finnst þau mót
standa upp úr hingað til.
Orri Freyr vekur sérstaklega athygli á
hvatningu á leikjum: „Pabbi var grimmur
að hvetja fyrr á árum og var duglegur að
hrópa hvatningarorð en á síðari árum
hefur hann róast, hann mætti alveg taka
upp gömlu taktana aftur, mér finnst hann
mætti alveg láta heyra meira í sér“, segir
Orri. „Maður þroskast með árunum,“
segir Gísli kíminn. Hvatning og stuðn-
ingur foreldranna á leikjum og mótum
gefur oft þennan auka kraft sem þarf til
að klára leikina“, segir Orri Freyr hinn
kátasti.
Gísli virkur með Fálkunum
Gísli hefur tekið virkan þátt í starfi Fálk-
anna sem voru stofnaðir fyrir nokkrum
árum af feðrum í Val með það að mark-
miði að styðja við bakið á barna- og ung-
lingastarfinu í félaginu og rækta um leið
tengslin við félagana. Fálkarnir eru að
stofni til feður sem ákváðu að halda
áfram að hittast þegar börnin voru hætt
að fara á mót úti á landi, þeir hittast einu
sinni í mánuði til að skemmta sér saman,
en Fálkarnir taka einnig að sér alls konar
verkefni til að afla fjár fyrir barnastarfið,
t.d. að sjá um grillið á heimaleikjum í fót-
bolta og handbolta. „Maður hættir aldrei í
Fálkunum, eitt sinn Fálki ávallt Fálki“,
segir Gísli ákveðinn. Fálkarnir sjá um
dósa-, flösku- og jólatrjáasöfnun í hverf-
inu sem er unnin með öllum yngri flokk-
um félagsins. Einnig hefur Gísli í nokkur
ár verið í stjórn handknattleiksdeildar og í
herrakvöldsnefnd þannig að hann kemur
víða við í félagsstarfinu. Gísli segir að
Fálkarnir fari t.d. saman á herrakvöldin.
telur fjölskyldan að Heimir Ríkarðsson
og fleiri í handboltanum séu góðir þjálf-
arar og í fótboltaum vilja þau nefna Agn-
ar Kristinsson sem þjálfaði yngri strák-
ana báða í 4 ár og náði að kenna þeim
mikið í fótbolta. „Við kunnum vel við
Agnar“, segja þau einum rómi.
Virk þátttaka fjölskyldunnar í
foreldrastarfinu hjá Val
Gísli og Elfur Sif eru afskaplega ánægð
með foreldrahópinn hjá öllum strákunum
og segjast hafa kynnst fullt af skemmti-
legu fólki í tengslum við foreldrastarfið
og segjast ekki sjá eftir þeim tíma sem
farið hafi í að styðja við íþróttaiðkun
drengjanna. Þetta hafi skapað margar
gæðastundir með börnunum og foreldr-
um í hverfinu. Þau eru sammála því að
ekki sé erfitt að virkja foreldra í foreldra-
starfi, sérstaklega til að vinna afmörkuð
verkefni, t.d. í tengslum við mót og fjár-
aflanir. Þau hafa bæði verið virk í for-
eldrastarfinu með strákunum þremur, en
á síðari árum hafi þau minna verið í for-
eldraráðunum. Orri Freyr hefur þetta um
þátttöku foreldra sinna að segja: „For-
eldrar mínir hafa mikið stutt mig í íþrótt-
um í gegnum tíðina án þess að beita
þrýstingi, þau mæta mikið á leiki, fóru á
mótin í yngri flokkunum og einnig eru
þau dugleg að fara yfir leikina eftir að
heim er komið, það er mjög mikilvægt“.
Elfur minnist sérstaklega á mótin í
yngri flokkunum: „Við erum búin að fara
á 18 mót í fótboltanum með stákunum,
við höfum alltaf farið á öll mótin, byrj-
uðum að fara á Akranesmótið í 7. flokki,
síðan á Shellmótin í Vestmannaeyjum í
6. flokki og til Akureyrar í 5. flokki. Við
misstum bara af einu móti þegar Ýmir
Örn var að fara að fæðast segir Elfur og
brosir. En Gísli hefur einnig verið dug-
legur að fara á handboltamótin út á land
með yngri drengjunum á veturna og þá
sem fararstjóri. Gísli segir að á fyrstu
mótin fyrir tæplega 20 árum þá hafi ekki
margir foreldrar mætt á mótin, „en núna
mæta nánast allir foreldrar á þessi mót
og það myndast mikil stemning í for-
eldrahópnum á þessum mótum úti á
landi, þannig að þetta er mikil breyting á
frekar stuttum tíma“, segir Gísli. Orri
segir að það hafi verið skemmtilegt að
fara á mótin úti á landi. Honum fannst
gaman að fara á fótboltamótin en „hand-
Bræðurnir bíta í skjaldarrendur. Myndin er tekin þegar Ýmir Örn fermdist árið 2011.
Ljósm. Ljósmyndastofa Erlings.