Valsblaðið - 01.05.2013, Page 51
Valsblaðið 2013 51
loft. Orra finnst t.d. skemmtilegri stemn-
ing núna á Hlíðarenda og heimilislegra,
t.d. eftir leiki. Orri vill aukin tengsl milli
leikmanna og stuðningsmanna, „mér
finnst skemmtileg hugmynd að fá stuðn-
ingsmenn eftir leik til að hitta leikmenn-
ina og spjalla við þá í rólegheitum í
Lolla stúkunni,“ segir Orri.
Ánægð með félagið sitt
Fjölskyldan er öll ánægð með félagið sitt
og uppbygginguna, aðstöðuna, þjálfun
og starfið í heild. Þau segja að Valur sé
stór hluti af þeirra lífi og þau hafa ekki
undan neinu að kvarta hjá Val. Einnig
nefna Elfur Sif og Gísli að þau myndu
vilja sjá fleiri stuðningsmenn mæta á
leikina og fleiri sjálfboðaliða innan
félagsins sem gætu skipt á milli sín störf-
um. Þau sjá ekki eftir þeim tíma sem far-
ið hefur í félagsstarfið hjá Val og sjá ekki
annað en að taka áfram þátt í því á full-
um krafti þótt áherslur breytist þegar
strákarnir eldast.
Valsblaðið þakkar þessari samhentu
Valsfjölskyldu fyrir að fá innsýn í þátt
töku þeirra í félagsstarfinu hjá Val, en
framlag þeirra til félagsins er ómetan
legt og til fyrirmyndar og fyrir það ber
að þakka af heilum hug.
Elfur Sif virk í Valkyrjum
Elfur Sif er í Valkyrjum sem er kvenna-
klúbbur í Val sem var stofnaður nýlega til
mótvægis við Fálkana. Hún segir að Val-
kyrjur hittist reglulega til að skemmta sér
saman, fá t.d. fyrirlesara á fundi og einnig
hafa Valkyrjur endurvakið kvennakvöld
sem haldið var í fyrsta sinn á þessu ári og
heppnaðist ljómandi vel og stefnt er að
því að halda því áfram. Valkyrjur aðstoða
einnig við heimaleiki í handboltanum.
Elfur Sif var áður í nokkur ár í barna- og
unglingaráði félagsins og fannst henni það
ánægjulegt og áhugavert að kynnast vel
skipulagi starfsins.
Metnaðarfullir bræður, „eitt sinn
Valsari ávallt Valsari“
Það kom aldrei neitt annað til greina hjá
bræðrunum en að verða Valsarar. For-
eldrar þeirra hvöttu þá til að mæta á æf-
ingar hjá Val, og styðja þá í áhugamálum
þeirra. Orri Freyr hefur t.d. leikið með
öllum yngri landsliðum í handbolta og
Ýmir Örn hefur verið í úrtakshópum í
handbolta og fótbolta og yngsti Tjörvi
Týr hefur þrjú ár í röð orðið Íslands-
meistari í handbolta. Strákarnir hafa allir
unnið til fjölda viðurkenninga og ótal
verðlaunapeningar eru varðveittir á
heimilinu.
Orri Freyr. Ég var ánægður í Dan-
mörku hjá Viborg, var þar í fyrra og Ósk-
ar Bjarni þjálfaði liðið, en ég var óhepp-
inn og liðið var lagt niður. Ég er með
mikinn mikinn metnað og ég sé ekki til-
ganginn í því að leggja svona mikið á
mig við æfingar nema að stefna að ár-
angri með liðinu sem ég spila með.
Ýmir Örn. Ýmir hefur alla tíð bæði
stundað fótbolta og handbolta en s.l. ár
hefur hann æft handbolta á veturnar og
fótbolta á sumrin og hentar það honum
mjög vel að dreifa álaginu.
Tjörvi Týr. Tjörvi hefur verið í mjög
sigursælum flokki í handbolta og hefur
t.d. orðið Íslandsmeistari þrjú ár í röð.
Tjörvi hefur gert það sama og Ýmir sl. ár
æft handbolta á veturna og fótbolta á
sumrin. Hann hefur líka verið virkur í
skátunum og er þar ólíkur bræðrum sín-
um, en þeir hafa ekki farið í slíkt tóm-
stundastarf fyrir utan hópíþróttir. Einnig
hefur hann teflt mikið.
Jákvæðar breytingar með
heimkomu Ólafs Stefánssonar
Fjölskyldan er afar ánægð með heim-
komu Ólafs Stefánssonar. „Óli er frábær,
ég skil hann vel,“ segir Orri og brosir,
„hann talar handboltamál og ég skil
handboltamál og æfingarnar eru frábærar
en maður er enn að læra inn á persónu-
leikann hans. Það er góð stemning í lið-
inu núna og ég er mjög bjartsýnn á gott
gengi í vetur, þótt það hafi gengið upp og
ofan í byrjun. Það er mikil jákvæðni í
hópnum, góð stemning og þótt við verð-
um kannski ekki í efsta sæti eftir deildar-
keppnina í vor, þá ætlum við að landa Ís-
landsmeistaratitlinum í vor,“ segir Orri
ákveðinn.
Þau segja að fjölgað hafi sjálfboðalið-
um í handboltanum með tilkomu Ólafs
Stefánssonar þó að í grunninn sé alltaf
sama fólkið að vinna sem sjálfboðaliðar.
Þeim finnst mikil breyting hafa orðið í
haust með heimkomu Óla, fleiri að vinna
á heimaleikjum og jákvæðara andrúms-
Fjölskyldan stundar mikið útivist saman.
Myndin til vinstri er tekin í skíðaferð til
Ítalíu árið 2006 en myndin til hægri er
frá hjólreiðaferð í Nauthólsvík árið
2008.