Valsblaðið - 01.05.2013, Síða 55
Valsblaðið 2013 55
Félagsstarf
Gönguhópur fulltrúaráðsins
Nýjasta uppátæki fulltrúaráðsins eru
gönguferðir frá Valsheimilinu á laugar-
dagsmorgnum. Lagt er af stað kl.10.30
og gengið út í Nauthólsvík og til baka og
tekur gangan um eina klukkustund. Það
er að myndast kjarni í þessa mjög svo já-
kvæðu göngu sem endar í getrauna-
kaffinu og allir hvattir til að slást í hóp-
inn. Þessi ganga er eins óformleg eins og
hugsast getur, engin tilkynningaskylda
aðeins að vera með þegar hentar.
f.h. fulltrúaráðsins
Halldór Einarsson formaður
Starf fulltrúaráðsins þetta árið hefur ver-
ið með svipuðum hætti og undanfarin.
Fundir eru haldnir af og til yfir veturinn
og undantekningarlaust hafa þeir sem
flutt hafa fundinum fræðslu eða
skemmtiefni staðið sig afar vel. Mæting
á þessa fundi hefur ávallt verið ágæt en
huga mætti að því að fjölga í ráðinu.
Skák og bridge mótin hafa alla burði til
að festast í sessi og þurfa að verða eins
sjálfsögð eins og golfmót Vals er orðið.
Vel heppnuð ferð til Ólafsvíkur
Ferðin sem farin var í Ólafsvík var ekki
fjölmenn en afar vel lukkuð og móttök-
urnar sem biðu okkar hjá vinafólki hans
Þorgríms Þráinssonar þeim Gunnari
Gunnarssyni og konu hans Ester Gunn-
arsdóttur voru engu líkar. Það var hífandi
rok og rigning en frammistaða Valsliðs-
ins í þessum síðasta leik sumarsins var
mjög góð og þeir unnu sannfærandi sig-
ur. Það verður klárlega farið saman á ut-
anbæjarleik næsta sumar en þá fyrr á
sumrinu.
Hálfleikskaffi fyrir ársmiðahafa í
fótbolta
Þeir félagarnir Lárus Loftsson og Gunnar
Kristjánsson stóðu sig feykilega vel í
sumar þegar þeir tóku að sér að setja upp
kaffihlaðborð fyrir alla heimaleiki meist-
araflokks karla og þeim til dyggilegrar
aðstoðar var Ásgerður Karlsdóttir. Þetta
er mikil framför frá því sem áður hefur
verið og er mjög mikilvægt að þetta starf
verði á sínum stað á næsta ári.
Fulltrúaráð Vals 2013
Hópur Valsmanna fór á Oval Grounds í Belfast á leik Glentoran og Coleraine í írsku
úrvalsdeildinni. Valur lék einmitt við Glentoran í Evrópukeppninni árið 1977. Frá
vinstri Philip Stevenson, Sigurður Guðjónsson, Þórarinn G. Valgeirsson, Halldór
Einarsson, Ronnie Hoy, Jóhann Guðjónsson, Bjarni Bjarnason, Nikulás Úlfar Másson,
Hjördís Hilmarsdóttir, Hörður Hilmarsson og Þorsteinn Ólafs.
Oval Grounds í Belfast fyrir Glentoran og Coleraine í írsku úrvalsdeildinni. Frá
vinstri Bjarni Bjarnason, Ronnie Hoy, Þorsteinn Ólafs og Hörður Hilmarsson.
Halldór Einarsson flytur erindi að
loknum tónleikum Valskórsins í Belfast í
apríl sl. Mynd Þorsteinn Ólafs.