Valsblaðið - 01.05.2013, Qupperneq 56
56 Valsblaðið 2013
Ungir Valsarar
Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú
fengið frá foreldrum þínum í sam-
bandi við fótboltann? „Pabbi og
mamma eru alveg frábær að styðja mig.
Pabbi kemur með uppbyggjandi gagn-
rýni og það er alltaf gott að tala við hann
og fá ráð. Stuðningur foreldra er mjög
mikilvægur. Foreldrar geta reynst manni
sem eins konar ráðgjafar og eru í raun
aðal stuðningsmenn okkar. Án þeirra þá
væri allt okkar starf ekki hægt.“
Hvað finnst þér mikilvægtast að gera
hjá Val til að efla starfið í yngri flokk-
um félagsins? „Mér finnst starfið ganga
svo sem ágætlega. Flott þjálfarateymi og
góður metnaður.“
Hvað finnst þér mikilvægast að gera
til að bæta aðstöðuna á Hlíðarenda?
„Aðstaðan er góð á sumrin en það sem
mér finnst hræðilegt er að við höfum
ekki innanhússgrasvöll eða upphitað gras
fyrir veturinn. Með þessu móti þá miss-
um í u.þ.b. 4–5 mánuði úr æfingum
vegna ófærðar og kulda sem er varla
bjóðandi. Þegar við æfum í snjó eru mun
meiri líkur á meiðslum vegna þess að
leikmenn eru kaldir og auðvelt er að mis-
stíga sig í snjónum. Einnig fær maður
bara yfir höfuð minna út úr æfingunum í
þessum aðstæðum og æfingarnar verða
að mínu mati leiðinlegri vegna kulda og
ófærðar. Ég vona að veturinn verði mild-
ur og við flestar sleppum við meiðsli.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra
Friðrik Friðriksson þann 11. maí 1911.“
Hver eru þín einkunnarorð? ,,Live the
life you love. Love the life you live.‘‘ Að
sætta sig við lífið og sjá það jákvæða
þrátt fyrir mótlæti. Auk þess eru ein-
kunnarorð séra Friðriks góð ,,látið aldrei
kappið bera fegurðina ofurliði.‘‘
Sigrún Björk er 16 ára og hefur æft fót-
bolta síðan hún var 7 ára eða í 9 ár og
Valur er hverfisfélagið hennar.
Hvernig var tilfinningin að fá Lolla-
bikarinn í haust? „Frábær tilfinning og
ég var alls ekki að búast við þessu. Mig
hefur dreymt um að fá Lollabikarinn síð-
an ég var í 6. flokki og því mætti segja
að þetta sé draumur að rætast.“
Hvers vegna fótbolti? „Líklegast vegna
þess að bróðir minn æfði fótbolta og ég
var alltaf með honum úti að leika. Ég hef
líka æft klassískan ballet og jazz ballet.“
Hvernig gekk ykkur í sumar? „Okkur
gekk ekkert sérlega vel á Íslandsmótinu
en við tókum þátt í Rey-Cup og sigruð-
um nokkuð örugglega. Hópurinn er mjög
náinn og við erum allar mjög góðar vin-
konur og liðsandinn er til fyrirmyndar.“
Hvernig eru þjálfarar þínir? „Rakel
Loga var frábær þjálfri. Hún kann mikið,
hefur mikla reynslu og veit því alveg
hvað hún er að segja. Hún er einnig
fyndin og mikill sprelligosi og því var
oftast frábær stemning og gleði á æfing-
um. Þór nýi þjálfarinn okkar er einnig
mjög góður. Hann segir hlutina eins og
þeir eru. Hann er strangur og hvetjandi
og fær okkur til að vinna meira og ná ár-
angri. Það sem einkennir góðan þjálfara
að mínu mati er að hann komi með upp-
byggjandi gagnrýni og segi hlutina eins
og þeir eru. Hann þarf að vera ákveðinn,
strangur en húmorinn má ekki vera of
langt undan. Hann þarf einnig að vera
skipulagður og ábyrgur.“
Segðu frá skemmtilegum atvikum úr
boltanum. „Þegar Magga henti Lobbu,
sem var í öllum fötunum, út í sundlaug á
Goðamótinu og þegar Arngunnur labbaði
á glerhurðina í Valsheimilinu.“
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í fót-
boltanum? „Ég leit alltaf upp til stelpn-
anna í eldri flokkunum, t.d. Hildar, Ing-
unnar og Elínar Mettu. Þeim gekk alltaf
svo vel og ég vildi verða eins og þær.
Þegar ég var yngri vildi ég spila eins og
Ronaldinho og Beckham.“
Hvað þarf til að ná langt í fótbolta eða
íþróttum almennt? „Að hafa áhuga á
því sem maður er að gera og njóta þesss
að spila skiptir meginmáli. Að vita hvað
maður vill og setja sér markmið er einnig
mikilvægt. Kunna að taka gagnrýni,
gagnrýna sjálfan sig og vita hvað maður
þarf að bæta. Sjálfstraustið mitt hefði
mátt vera betra þegar ég hugsa til baka.
Jákvætt hugarfar og trú á eigin getu
skiptir miklu máli. Ég finn núna að ég
hef þroskast og er að verða ákveðnari
karakter. Ég þarf einnig að bæta skot af
löngu færi, fá en meiri styrk og þol.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar í
fótbolta og lífinu almennt? „Framtíðar-
draumurinn er að spila fótbolta eins lengi
og ég get. Það væri frábært að komast í
meistaraflokk en ég er svo sem ekkert að
flýta mér þangað því ég veit að minn
tími mun koma. Ég á enn eftir að styrkja
mig og bæta margt þar til ég get spilað
með meistaraflokki. Að komast í lands-
liðið væri frábært en ég veit að ég þarf
að bæta mig í mörgu bæði andlega og
líkamlega til þess að geta átt möguleika
þar. En það sem ég er aðallega að hugsa
um núna er að halda mér frá meiðslum
og njóta þess að að spila fótbolta og gera
það sem ég elska. Ég stefni á nám eftir
framhaldsskóla, vonandi erlendis, en
maður veit aldrei hvað gerist. Eftir 10 ár
sé ég mig í háskólanámi, vonandi erlend-
is og spilandi fótbolta.“
Mig hefur dreymt
að fá Lollabikarinn
síðan í 6. flokki
Sigrún Björk Sigurðardóttir er 16 ára
og leikur fótbolta með 2. flokki og fékk
Lollabikarinn eftirsótta í haust
Sigrún Björk og Rakel
Logadóttir, þjálfari.