Valsblaðið - 01.05.2013, Side 60

Valsblaðið - 01.05.2013, Side 60
60 Valsblaðið 2013 Starfið er margt knattspyrnudeildar, samningsmálum og tekjuöflun. Árið 2011 var mikið tap á rekstri knattspyrnudeildar vegna óhag- stæðra skuldbindinga sem félagið átti í miklum erfiðleikum með að standa við. Eins var tekjuöflun ábótavant á þeim tíma og því ákveðið að hafa að leiðar- ljósi jákvætt viðhorf, bjartsýni og lausna- miðaða hugsun í því mikla starfi sem beið okkar. Einnig gerðum við okkur grein fyrir því að til að ná árangri hvort sem er í rekstri eða í keppni þyrftum við undan- tekningarlaust að geta tekist á við mikið mótlæti sem raunin varð á. Skoðanir manna eru misjafnar og ólíkar eins og mannfólkið er misjafnt og ólíkt. Það er því ekki raunhæft að ætlast til þess að allir kunni að meta starf stjórnar eða sýni því starfi skilning eða virðingu. Stjórnin lét þetta ekki trufla starfið heldur héldum við áfram á þeirri vegferð sem við vorum á og árangurinn talar sínu máli. Leyfðum ekki öðrum að draga úr okkur kjark og Að Hlíðarenda á öllum að líða vel hvort sem um er að ræða iðkendur, foreldra, stjórnarmenn, þjálfara, stuðningsmenn eða gesti félagsins. Markmiðið er ekki eingöngu að ala upp metnaðargjarna og vel agaða íþróttamenn, heldur fyrst og síðast sterka einstaklinga. Agi og ánægja eru lykilorð í velgengni og andrúmsloftið að Hlíðarenda á að vera með þeim hætti að menn vilji leggja sig alla fram til að ná áragngri. Það á að vera eftirsóknar­ vert að vera Valsmaður. Stjórn knattspyrnudeildar Vals E. Börkur Edvardsson, formaður Sigurður Gunnarsson, varaformaður Jón Höskuldsson, formaður heimaleikja- ráðs Sigurður Pálsson, formaður fjárhags- og markaðsráðs Jón Gretar Jónsson, formaður meistara- flokksráðs karla Benóný Valur Jakobsson, formaður meistaraflokksráðs kvenna Þorsteinn Guðbjörnsson, stjórnarmaður Guðjón Ólafur Jónsson, varamaður Í stuttu máli Árangur meistaraflokka Vals í sumar var ásættanlegur, meistaraflokkur karla var með mikinn viðsnúning frá árinu áður og skoraði fleiri mörk en Valur hefur áður gert í efstu deild. Meistaraflokkur kvenna endaði í öðru sæti Pepsideildar. Árangur 2. flokks karla var góður á árinu A-liðið sigraði sinn riðil og B-liðið end- aði þriðja til fjórða sæti í sínum. Nokkrir leikmenn 2. flokks karla eru nú þegar á samningi og fengu sín fyrstu tækifæri með meistaraflokki í sumar. Árangur 2. flokks kvenna var viðunandi en telft var fram sameiginglegu liði með ÍR. Við- snúningur var á rekstri knattspyrnudeild- ar og búið að taka niður tap frá árinu 2011. Vetraraðstæður til knattspyrnuiðk- unar er ábótavant á Hlíðarenda og ljóst að félagið er á eftir öðrum félögum í Reykjavík. Rúnar Már Sigurjónsson var seldur til Sundsvall í sumar og stjórn knattspyrnudeildar gerði vel að vinna úr því máli þar sem leikmaður var að renna út á samningi. Nýir þjálfarar voru hjá báðum meistaraflokkum í sumar og ánægja er með þeirra störf. Þjálfari 2. flokks karla gerði stórkostlega hluti með liðin sín. Starf stjórnar Lagt var upp með að skila knattspyrnu- deildinni með hagnaði starfsárið 2013, sú vegferð sem við hófum árið 2012 hafði það að markmiði að taka til í rekstri Viðsnúningur í fjármálum og árangur ásættanlegur Skýrsla knattspyrnudeildar Vals afrekssvið árið 2013 Haukur Páll Sigurðsson í baráttu við boltann á einum af heimaleikjum sum­ arsins að Hlíðarenda. Haukur Páll stóð sig mjög vel á tímabilinu og átti marga stórleiki og var á uppskeruhátíðinni kjörinn besti leikmaður liðsins að mati samherja. Ljósm. Eva Björk Ægisdóttir.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.