Valsblaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 67
Valsblaðið 2013 67
Starfið er margt
gaman að fylgjast með þeim bæta sig
jafnt og þétt. Flokkurinn sendi sex lið til
leiks í Pollamótið sem var nú í fyrsta
sinn leikið í 5 manna bolta og af þessum
sex liðum komst helmingurinn áfram
upp úr sínum undanriðlum. Á Shell-
mótinu sem var hápunktur sumarsins
tóku fjögur lið galvaskra Valsmanna þátt.
Hópurinn stóð sig virkilega vel í Eyjum
og var algjörlega til fyrirmyndar, sem og
hinn stóri foreldrahópur sem fylgdi
strákunum sem margir voru að fara í sína
fyrstu alvöru keppnisferð. Lærdómsríkt
og skemmtilegt sumar hjá strákunum.
5. fl. stúlkna
Þjálfarar: Margrét Magnúsdóttir og Birk-
ir Örn Gylfason. Þeim til aðstoðar var
Selma Dögg Björgvinsdóttir. 5. flokkur-
inn þetta árið var mjög fámennur. Aðeins
15 stelpur voru að æfa en þær eiga mikið
hrós skilið fyrir framlag sitt til fótboltans
þetta árið. Stelpurnar æfðu nokkuð vel
og var stór kjarni af hópnum sem mætti
nokkra æfingaleiki, m.a. við Breiðablik,
HK og FH og alltaf sáust framfarir í
hópnum. Flokkurinn tók þátt í þremur
mótum: Vís móti Þróttar í maí, Síma-
mótinu í júlí og svo Pæjumótinu á Siglu-
firði í ágúst. Á Vís móti Þróttar vorum
við með 3 lið, 4 lið á Símamótinu og 3
lið á Pæjumótinu. Það var ótrúlega
skemmtilegt að horfa á stelpurnar spila
þessa leiki og sjá hvernig þær bættu sig
milli leikja og móta og hversu góðar vin-
konur þær voru. Á Símamótinu urðu þrjú
lið af fjórum í fyrsta sæti. Á Pæjumótinu
fóru tvö lið af fjórum í úrslitakeppni, og
eitt lið spilaði svo til úrslita í bikarkeppni
mótsins. Án foreldranna hefði þetta ekki
gengið. Hópurinn var heilt yfir ótrúlega
flottur og klárt mál að þessar stelpur
munu verða Val til sóma innan vallar
sem utan á komandi árum.
7. fl. drengja
Þjálfarar: Arnar Steinn Einarsson og Þór-
hallur Valur Benónýson. Þegar æfingar
hófust í 7. flokki í fyrra æfðu um 50
strákar. Þessi fjöldi hélst ágætlega út
tímabilið. Tekið var þátt í fjölmörgum
mótum og var frammistaðan ávallt góð
hjá strákunum. Helst ber að minnast á
Bónusmótið í Borgarnesi sem var mið-
punktur sumarsins. Strákarnir gistu þar
yfir helgi og stóðu sig frábærlega á
mótinu sjálfu. Í 7. flokki Vals líkt og öðr-
um yngstu flokkum Vals hefur orðið
mikil aukning á iðkendum og því er al-
gert lykilatriði að Knattspyrnufélagið
Valur sé tilbúið að mæta öllum þessum
hóp drengja sem eru lykillinn að öflugra
félagi.
6. fl. stúlkna
Þjálfarar: Margrét Magnúsdóttir og Birk-
ir Örn Gylfason. Þeim til aðsoðar var
Katla Rún Arnórsdóttir. 6. flokkur
kvenna var fremur fámennur í byrjun
tímabils en með rótækum aðgerðum við
að fjölga, svo sem með vinaæfingum, þá
bættust nokkrar stelpur við hópinn og
undir lok tímabilsins voru í kringum 25
stelpur að æfa. Eins og áður hjá 6. flokki
þá æfðu stelpurnar tvisvar úti á gervi-
grasi á allra handa veðrum og eina æf-
ingu inni. Æfingasókn var fremur góð og
létu stelpurnar veðrið ekki aftra för sinni
á æfingar. Stelpurnar fóru á nokkur mót
þetta árið. t.d. Goðamótið á Akureyri í
mars, Hnátumótið í júní, Símamótið í
Kópavogi í júlí og Pæjumótið á Siglu-
firði í ágúst. Auk þess kepptu stelpurnar
á nokkrum minni mótum og spiluðu æf-
ingaleiki. Miklar framfarir voru á hópn-
um eftir því sem leið á tímabilið og í lok
sumars voru stelpurnar farnar að spila
rosalega flottan fótbolta. Umfram allt þá
var tímabilið hjá stelpunum gríðarlega
skemmtilegt og foreldrastarfið öflugt.
Þar sem leikmenn, þjálfarar og foreldrar
náðu virkilega vel saman í félagslegum
viðburðum sem voru haldnir reglulega
yfir allt tímabilið. Stelpurnar í 6. flokki
sýna okkur það að það eru bjartir tímar
framundan í kvennastarfinu hjá Val.
6. fl. drengja
Þjálfarar: Andri Fannar Stefánsson,
Breki Bjarnason og Valdimar Árnason.
Æft var þrisvar í viku yfir vetrartímann,
tvívegis á gervigrasinu og einu sinni inn-
anhúss. Það voru u.þ.b. 40 strákar í
flokknum og voru þeir duglegir að mæta
yfir veturinn þrátt fyrir kulda og alls eng-
ar draumaaðstæður á gervigrasinu oft á
tíðum en þeir klæddu sig bara þeim mun
betur og höfðu gagn og gaman af. Fjöl-
margir æfingaleikir voru spilaðir og var
7. fl. kv. yngra ár. Ingunn Eyja Skúladóttir, Embla María Ingvaldsdóttir, Ingibjörg Ellý
Herbertsdóttir, Hrafnhildur Oddgeirsdóttir, Iðunn Gróa Sighvatsdóttir, Hafdís María
Einarsdóttir, Sólveig Þórmundsdóttir, Eldey Hrefna Helgadóttir og Saga Margrét
Davíðsdóttir.
5. flokkur karla, haustið 2013. Fjölmennur og efnilegur flokkur.