Valsblaðið - 01.05.2013, Page 75
Valsblaðið 2013 75
Starfið er margt
Skemmtilegustu leikir sumarsins
Fálkar sáu um skemmtilegustu leiki sum-
arsins að vanda en 4. og 3. flokkur karla
og kvenna léku á Vodafonevellinum með
fullri umgjörð. Fánaborgir, vallarþulur,
grillstemning og heiðursgestir. Þessi um-
gjörð vekur alltaf mikla athygli gesta-
liðsins og er skemmtilegt hve vel er talað
um Val þegar boðið er upp á svona leiki.
Er þetta öðrum liðum til eftirbreytni.
Í ágúst var blásið til fjölskyldu-
skemmtunar Fálka á Miklatúni. Fálkar,
makar, börn og hundar mættu í mikla
grillveislu og skemmtu sér og sínum. Í
september komu svo Fálkar saman á ný
til fundahalda og var farið yfir grillmálin
eftir sumarið og formaður styrktarsjóðs
Fálka gerði grein fyrir umsóknum og
styrkveitingum. Hæst bar umræður og
samþykkt þess að Fálkar taki, að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum, þátt í upp-
byggingu á leikvelli að Hlíðarenda í
minningu Hermanns Gunnarssonar sem
var verndari Fálka.
Októberfundurinn var með hefðbundnu
sniði en þar mætti formaður Vals, Hörður
Gunnarsson og sagði frá skipulagsmálum
að Hlíðarenda og framtíðaruppbyggingu.
Er óhætt að segja að menn fylltust bjart-
sýni við þann boðskap. Á fundinum var
einnig samþykkt að styðja meistaraflokk
kvenna við að grilla á heimaleikjum í
handboltanum í vetur. Var ákveðið að
Fálkar hefðu umsjón með því en ágóðinn
rynni til stelpnanna.
Eins og undanfarin ár er ekki haldinn
hefðbundinn fundur í nóvember heldur
fylkja Fálkar liði á herrakvöld Vals. Að
þessu sinni fylltu Fálkar 3 borð en áður
höfðu menn mætt til veislu hjá einum
Fálkanum og æft þjóðsönginn eins og
hefð er komin á.
Á desemberfundi þann sjötta héldu
Fálkar upp á 4 ára afmæli félagsins með
pompi og prakt. Góðir gestir mættu á af-
mælisfundinn og var farið yfir viðburð-
arríkt ár sem nú er að baki.
Mikilvægur stuðningur Fálka við
barna- og unglingastarfið í Val
Fálkar hafa á sinni stuttu starfsævi skilað
u.þ.b 3 milljónum í beinhörðum pening-
um til barna- og unglingastarfs Vals fyrir
utan annað eins eða nær 4 milljónir sem
dósasafnanir skipulagðar af Fálkum hafa
skilað. Þá eru handtökin sem félagarnir
hafa lagt fram fyrir klúbbinn farin að
teljast í þúsundum.
Fálkar vilja vekja athygli á því að fé-
lagið er opið öllum karlmönnum 20 ára
og eldri sem vilja veg barna- og ung-
lingastarfsins sem mestan og bestan.
Að lokum óska Fálkar öllum Völsur-
um gleðilegra jóla og farsæls komandi
árs, um leið og við minnum á að fljótlega
eftir áramót koma glaðbeittir Valskrakkar
að safna dósum og trjám og biðjum við
ykkur um að taka vel á móti þeim.
f.h. Fálka Benóný Valur Jakobsson for
maður og Sigþór Sigurðsson ritari
Sigþór Sigurðsson ritari Fálkanna stendur
vaktina sem sjálfboðaliði á heimaleikjum
félagins og gengur í þau störf sem þarf að
vinna. Ómenlegt að eiga slíkt fólk að til að
halda starfinu gangandi.
Úr skemmtilegasta leik vetrarins í 4. flokki
karla í handbolta.
Fálkar standa vaktina á grillinu á
óteljandi viðburðum á Hlíðarenda og
rennur ágóðinn af sölunni til barna- og
unglingastarfs félagsins.
Á hverju sumri sjá Fálkarnir um að skapa
flotta umgjörð um einn heimaleik í 3. og 4 fl.
karla og kvenna í fótbolta og ganga þeir leikir
undir nafninu, skemmtilegustu leikir sum-
arsins og vekur þetta framtak mikla athygli.
Sigurður Ásbjörnsson annast tímavörslu
á mörgum heimaleikja og einnig skrifar
hann reglulega skemmtilega pistla á
valur.is og í Valsblaðið um handbolta.