Valsblaðið - 01.05.2013, Side 79
Valsblaðið 2013 79
Starfið er margt
þetta væri líkt valnum, nafna þeirra,
sem í kvæði Jónasar „hnitar hringa
marga.“ Svo fór ég að hugsa um,
hvar rjúpan væri, og þóttist sjá, að
það væri knötturinn og hálf kenndi í
brjósti um hann að verða fyrir elt
ingu þessara 22ja pilta.7
Haukur og Haukar
Þess má að lokum geta að þriðja knatt-
spyrnufélagið leit einnig dagsins ljós inn-
an KFUM í Reykjavík nokkru síðar,
þ.e.a.s. í byrjun sumars 1912. Það var
nefnt Haukur og næsta víst að séra Friðrik
hefur haft hönd í bagga með nafngift á því
félagi, líkt og raunin varð árið 1931 þegar
Haukar í Hafnarfirði komu til sögunnar.
Þá komu hafnfirskir KFUM-piltar sér
ekki saman um nafn á fótboltafélagið sem
þeir höfðu nýverið stofnað og fengu því
séra Friðrik til að velja félaginu nafn, sem
hann og gerði. Líkt og Valur lifir það syst-
urfélag Valsmanna einnig góðu lífi í dag.
7 Valsblaðið afmælisútgáfa 1956, 8.
andi vallarframkvæmdum félagsins frá
22. júlí.5
Eftir framhaldsstofnfund Fótbolta-
félags KFUM í lok maí voru liðsfélagar
einungis 14 talsins, allir á aldrinum 16–
19 ára. Þegar leið á sumarið fjölgaði hins
vegar smám saman í hópnum og þegar
hann hafði nær tvöfaldað stærð sína um
eða eftir miðjan júlí var tekin sú ákvörð-
un að leyfa ekki fleirum að gerast fé-
lagar. Vildu menn með því tryggja
tvennt; í fyrsta lagi að ekki yrði of þröngt
um menn á vellinum og eins hitt, að
tryggt væri að ætíð væru nógu margir á
æfingum til að manna tvö fullskipuð lið.
Ekki fer fregnum af því hvort séra Frið-
rik var hafður með í ráðum þegar Fót-
boltafélag KFUM ákvað að skella í lás og
hleypa ekki fleirum að í bili. Það hefur að
líkindum komist til framkvæmda um líkt
leyti og skemmtiförin að Lágafelli var far-
in. Á hinn bóginn var fótboltamarkaður
KFUM engan veginn mettaður. Áhuginn
smitaði út frá sér og því brá séra Friðrik
skjótt á það ráð að stofna annað fótbolta-
félag innan KFUM fyrir þá sem ekki
komust í Fótboltafélag KFUM sökum
ungs aldurs eða fjöldakvótans sem settur
hafði verið. Hið nýja félag stofnaði séra
Friðrik laugardaginn 29. júlí og nefndi
það Hvat í höfðuðið á göngufélagi sem
Sigurbjörn Þorkelsson, síðar kaupmaður í
Vísi, stóð að ásamt þremur félögum sín-
um um miðjan fyrsta áratug aldarinnar.
Trúlega réð nokkru um nafnavalið að séra
Friðrik virðist hafa fengið Sigurbjörn til
að gerast fyrsti þjálfari Hvats.
5 Bréf Friðriks Friðrikssonar til Páls V. Guð-
mundssonar 11/8 1911, 4 og bréf Páls Ein-
arssonar borgarstjóra til Friðriks Friðriks-
sonar 22/7 1911 (Skjöl séra Friðriks 08:24).
Valsnafnið og eltingaleikur við
„rjúpu“
Líkur erninum að tign og fegurð er ís-
lenski fálkinn, – einnig nefndur valur eða
haukur í munni íslenskrar alþýðu. Hann
þykir bæði kraftmikill og hraðfleygur,
enda „konungsgersemi fyrr á öldum og
um tíma í skjaldarmerki Íslendinga“, eins
og segir í Íslenskum fuglavísi Jóhanns
Óla Hilmarssonar. En í íslenskum þjóð-
sögum er fálkinn jafnframt bróðir rjúp-
unnar, þótt hann – vegna illra álaga – sé
jafnframt skæðasti óvinur hennar.
Ætla má að sem nýtt nafn á „Knatt-
spyrnufjelagi K.F.U.M.“ hafi Vals-nafnið
trúlega komið fram um líkt leyti og
Hvatur var stofnaður, enda fyrst nauð-
synlegt að aðgreina fótboltafélög KFUM
með nafni þegar þau voru orðin tvö. Og
eftir því sem næst verður komist átti
hugmyndina að Valsnafninu einn af
frumstofnendum Fótboltafélags KFUM,
Filippus Guðmundsson, síðar múrara-
meistari. Segir sagan að hugmyndin að
nafninu hafa fæðst í kjölfar þess er fálki
sást á sveimi eitt síðkvöldið þegar unnið
var að vallarframkvæmdum vestur á
Melum. Var nafnið borið undir séra Frið-
rik og hlaut það þegar samþykki hans.6
Reyndar lætur Friðrik í það skína á gam-
als aldri að honum hafi sjálfum dottið
Valsnafnið í hug við fyrstu kynni sín af
boltaleik piltanna. En þar færir hann tals-
vert í stílinn og blandar rjúpunni í leikinn
á eftirminnilegan hátt:
Þeir voru byrjaðir á leik sínum í
stórri þyrpingu, og sá ég þar mikil
þot og hlaup fram og aftur, en botn
aði ekki í neinu. Mér datt í hug, að
6 Valsblaðið 19. tbl. 1961, 6.
Á forsíðu 50 ára afmælisrits Vals hefur
fálki (valur) klófest bolta („rjúpu“).
Lágafellskirkja eins og hún lítur í dag. Þangað fóru Valspiltar í eftirminnilega
skemmtiför í júlí 1911.
Vígalegur fálki á flugi í Ísafjarðardjúpi.