Valsblaðið - 01.05.2013, Síða 81
Valsblaðið 2013 81
Meistarar
Faxafeni 11, Reykjavík, s. 534 0534,
Amaróhúsinu, Akureyri, s. 534 0535
www.partybudin.is partybudin@partybudin.is
Velkomnir
Valsarar!
leikjunum sínum og endaði mótið því
þannig að þeir töpuðu ekki leik, sigruðu
fjóra af leikjum sínum en gerðu eitt
jafntefli. Það dugði til að sigra deildina
og tryggja titilinn á Hlíðarenda. Það var
því þriðja árið í röð sem þessir piltar
vinna sér inn Íslandsmeistaratitilinn.
Það er því nokkuð ljóst að framtíðin er
björt hjá Val og þarf að halda vel utan
um yngriflokkastarfið líkt og hefur verið
gert undanfarin ár vegna þess að upp eru
að koma þvílíkir snillingar og frábærir
handboltamenn allir sem einn. Þetta er
framtíðin sem mun vinna inn titla fyrir
meistaraflokk Vals áður en við vitum af.
Við viljum því þakka fyrir að hafa ver-
ið með þessa stráka í vetur, það eru for-
réttindi að þjálfa svona meistara hjá
svona flottum klúbbi sem Valur er.
Áður birt á valur.is
Valur hélt norður til Akureyrar föstudag-
inn 12. apríl síðastliðinn til þess að
keppa á fjölliðamóti í handbolta. Til leiks
voru send þrjú lið frá 5. flokki karla
(drengir fæddir 2000). Þetta var fimmta
og jafnframt síðasta mót vetrarins hjá
þessum árgangi og hafði verið háð mikil
barátta yfir veturinn þar sem Valsarar
höfðu sigrað tvö mót fram að þessu og
Fjölnir hafði sigrað tvö. Það var því um
hreint úrslitamót að ræða hvort liðið
mundi hampa titlinum árið 2013.
Það var lagt af stað frá Vodafonehöll-
inni snemma á föstudagsmorgun þar sem
liðin áttu að spila seinnipart föstudags-
ins. Ferðin norður gekk mjög vel og voru
allir krakkarnir mjög stilltir og prúðir.
Leikið var á föstudag, laugardag og
sunnudag. Strákarnir tefldu fram, eins og
kom fram hér að ofan, þremur liðum og
voru því 14 leikir yfir helgina svo það
var í miklu að snúast hjá þjálfurum
flokksins.
Valur 3 lék í 3. deild B-riðli og kepptu
þeir fjóra leiki yfir helgina. Þeir sigruðu
tvo leiki og töpuðu tveimur leikjum, þar
sem þeir spiluðu við gríðarlega öflug lið.
Sigrarnir þeirra voru hins vegar gríðar-
lega sterkir og spiluðu þeir mjög vel og
enduðu í 3. sæti í deildinni
Valur 2 lék í 3. deild A-riðli og kepptu
þeir fimm leiki yfir helgina. Þeir sýndu
oftar en ekki gríðarlega flotta spila-
mennsku og sigruðu þrjá af leikjum sín-
um en töpuðu tveimur. Niðurstaðan var
því 3. sæti í deildinni.
Valur 1 lék í 1. deild og keppti líka
fimm leiki yfir helgina. Þeir gátu tryggt
sér titilinn með sigri á mótinu og ákváðu
þeir að spila frábærlega í nánast öllum
Valur Íslandsmeistari í
5. flokki karla í handbolta