Valsblaðið - 01.05.2013, Page 86

Valsblaðið - 01.05.2013, Page 86
86 Valsblaðið 2013 Starfið er margt deildarliðinu Træff. Krummi Halldórsson var þá að þjálfa Træff og bráðvantaði markmann. Ég var 3 ár hjá Træff í 1. deildinni og gekk bara vel, fannst þetta mjög skemmtilegt en allt öðruvísi en hér heima. Ég tók svo eitt ár í 3. deildinni á meðan ég var að klára síðasta árið mitt í skólanum úti, en hætti svo ekki fyrr en ég var orðin ólett af mínu fyrsta barni. Ég gæti alveg hugsað mér að fara aftur út ef eitthvað rosalega flott og freistandi myndi dúkka upp, segir Jenný. Hvaða þýðingu hefur heimkoma Ólafs Stefánssonar á hand­ boltann hér á landi að þínu mati og þá sérstaklega hjá Val? „Það vekur að sjálfsögðu athygli að Óli komi heim og þjálfar í íslensku deildinni. Ég held að það sé mikilvægt fyrir íslenskan handbolta að þessar hetjur sem við eigum komi og vinni að upp- byggingu íþróttarinnar hér á landi, hvort sem það sé með þjálf- un eða með öðrum hætti. Fyrir mitt leyti hef ég fengið ákaflega góðar æfingar sem tengjast mér í markinu frá honum Claes Hal- gren, en það kemur einmitt til vegna Óla. Eins kemur Óli með Ragga með sér og hefur Raggi sett upp prógrammið fyrir allan líkamlega þáttinn fyrir kvennaliðið og eftir því sem ég hef heyrt hafa stelpuranr verið mjög ánægðar,“ segir Jenný. Hvernig gengur að samræma uppeldishlutverkið við hand­ boltaæfingar og keppni? „Það gengur iðulega alltaf vel. Ég er með frábæran stuðning frá minni fjölskyldu og maka. Samhliða því er aðstaðan góð í Valsheimilinu þegar maður hefur þurft að taka börnin með sér á æfingu. Það hefur verið boðið upp á pöss- un og það er auðvitað mjög mikilvægt fyrir þá iðkendur sem eiga börn að geta nýtt sér það,“ segir Jenný sem er tveggja barna móðir en margir leikmenn kvennaliðs Vals eru einnig í hennar sporum. Nú varstu kjörin íþróttamaður Vals 2012 og jafnframt besta haldboltakonan hér á landi sama ár. Hversu mikilvægar eru viðurkenningar af þessu tagi? „Það er rosalega gaman að fá svona viðurkenningar, sérstaklega í ljósi þess að það er mikið af flottum leikmönnum sem ættu líka skilið að hljóta þessar viður- kenningar,“ segir Jenný þakklát og auðmjúk. „Það eru margir sterkir einstaklingar innan hópsins í Valsliðinu en við höfum allar haft sömu sýn á það hvert við stefnum og því höfum við náð góðum árangri.“ Jenný fagnar innilega með Hrafnhildi Ósk Skúladóttur einum af fjölmörgum titlum í handbolta með Val. Konni kóngur hefur lyft fjölmörgum bikurum með Valsstelpunum í hand- bolta á undanförnum árum og hér lyftir hann sigurlaunum í bikarkeppninni 2013.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.