Valsblaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 88
88 Valsblaðið 2013
eftir Ragnildi Skúladóttur
um er að einstaklingar á sama aldri taka út
þroska á mismunandi tímum og það er
ekki endilega sá sem er tæknilega bestur
sem skarar fram úr á ákveðnum aldri,
heldur sá sem er stærstur og sterkastur. Sá
sem er lítill hættir mögulega snemma
vegna lítilla líkamsburða og lítillar viður-
kenningar, en hann hefur mögulega bestar
líkamlegar og vitsmunalegar forsendur til
að verða bestur þegar hann hefur náð full-
um þroska. Með þessari nálgun, að veita
öllum jafna viðurkenningu ættu allir að fá
það á tilfinninguna að þeir skipti máli, að
þeir tilheyri hópi og liðsheild og fái
hvatningu um að halda áfram.
Hvort að þetta er sú leið sem hentar í
öllum íþróttagreinum eða í öllum fé-
lögum er alls óvíst en það er öllum fé-
lögum hollt að staldra aðeins við og velta
því fyrir sér af hverju hlutirnir eru gerðir
á þennan máta eða hinn og hvort hægt
væri að gera þá einhvern veginn öðruvísi
starfinu til bóta.
Íþróttahreyfingin hefur fengið á sig
gagnrýni fyrir að vera of afreksmiðuð og
sýna þeim sem ekki hafa áhuga eða getu
til að skara fram úr lítinn áhuga. Í íþrótt-
um þarf að vera pláss fyrir alla, það
verða ekki allir meistaraflokksleikmenn
hvað þá heldur landsliðs- eða atvinnu-
menn. En íþróttahreyfingin hefur alltaf
þörf fyrir góða leiðtoga, dómara og þjálf-
ara, sjálfboðaliða og stuðningsmenn.
Gefum öllum tækifæri og reynum að
halda þeim sem lengst í íþróttum á þeirra
eigin forsendum. Við gerum það með því
að láta alla finna að þeir skipta máli.
Ragnhildur Skúladóttir
Það vakti þó nokkra
athygli að á uppskeruhátið
knatt spyrnu deildar Breiðabliks
í haust voru ekki veitt
einstaklings verðlaun í yngri
flokkum heldur voru eldra árs
iðkendur útskrifaðir upp úr
flokkunum. Í þessum pistli er
velt upp kostum og göllum þess
að veita einstaklingsverðlaun
í yngri flokkum
Það er takmark margra barna og ung-
linga sem stunda íþróttir að vinna til
verðlauna. Því fylgir jafnan mikil gleði
og ánægja, en að sama skapi geta von-
brigðin orðið mikil við ósigur. Því yngri
sem börnin eru því erfiðara eiga þau með
að sætta sig við að fá ekki verðlaun eins
og hinir. Börn og unglingar mæta á æf-
ingar til að hitta vini sína og af því að
það er skemmtilegt, en einnig til þess að
auka hæfni sína og til að standa sig betur
í næstu keppni. Þrátt fyrir að keppni sé
ekki aðalatriðið í íþróttaiðkun barna og
unglinga þá er hún órjúfanlegur hluti
keppnisíþrótta enda hefur keppni fylgt
íþróttaiðkun frá örófi alda. Í hópíþróttum
er talað um að liðið geti aldrei orðið
sterkara en veikasti hlekkurinn og því
bera allir liðsmenn ábyrgð á að liðið
standi sig vel. Það getur enginn einn
leikmaður í flokkaíþrótt unnið leik upp á
eigin spýtur heldur er það samanlagt
vinnuframlag allra sem skiptir máli.
Í stefnu Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands (ÍSÍ) um barna- og unglingaíþrótt-
ir kemur fram að ekki eigi að veita börn-
um yngri en 10 ára einstaklingsverðlaun
heldur eigi allir þátttakendur að fá jafna
viðurkenningu. Þessi stefna tók gildi árið
1997 og það tók tíma að aðlaga stefnuna
að þeim hefðum sem höfðu skapast t.d.
með því að hætta að kjósa markmann
móts eða að veita markahæsta leikmanni
sérstök verðlaun eins og tíðkaðist í yngstu
flokkunum. Nú finnst flestum sjálfsagt að
yngstu þátttakendunum sé hampað jafnt.
Á uppskeruhátíðum félaga hefur það
tíðkast að velja besta leikmanninn, þann
efnilegasta og þann sem hefur tekið mest-
um framförum en þó ekki fyrr en á 11. ári
sem samræmist stefnu ÍSÍ. Nú hafa Blikar
(Breiðablik) sem reka fjölmennustu knatt-
spyrnudeild landsins, fallið frá því að
verðlauna einstaklinga á uppskeruhátíð
knattspyrnudeildar, en þess í stað útskrifa
þeir eldra árið upp úr flokknum og veita
öllum viðurkenningarskjal. Þessa breyt-
ingu rökstyðja þeir með því að ómögulegt
sé að taka einn einstakling út úr stórum
hópi og segja „þú ert best(ur)“ eða „þú ert
efnilegust/efnilegastur“. Með viðurkenn-
ingarskjalinu útskrifar félagið einstakling-
inn upp úr flokknum með þeim skila-
boðum að það sem skipti höfuðmáli sé að
halda áfram, leggja sig fram og gera ætíð
sitt besta. Þessi breyting mæltist mjög vel
fyrir hjá stjórn deildarinnar, foreldrum og
ekki síst þjálfurum sem höfðu fram að
þessu kviðið því að þurfa að velja einn
einstakling úr stórum hópi iðkenda og
jafningja. Breytingin náði til einstaklinga
upp í 3. flokk en leikmenn í 2. flokki og
meistaraflokki fengu áfram einstaklings-
verðlaun. Knattspyrnudeild Breiðabliks
hefur áhuga á að halda verkefninu áfram
og útfæra hugmyndina áfram.
Það sem mælir með þessum breyting-
Það skipta allir máli