Valsblaðið - 01.05.2013, Side 94
94 Valsblaðið 2013
Starfið er margt
eitt lið í upphafi tímabils en eftir áramót
tóku tvö lið þátt. Lið 1 byrjaði heldur
treglega í 3. deild en vann sig hægt og
rólega upp í 2. deild. Þær enduðu í 13.
sæti af 35 liðum.
Það sem stendur upp úr eftir veturinn
eru ótrúlega flottar, skemmtilegar og
efnilegar handboltastelpur sem hafa
flestallar verið geysilega duglegar við að
mæta á æfingar og sýnt miklar framfarir.
Er óhætt að segja að þær hafi tekið sér
málsháttinn „æfingin skapar meistar-
ann“. Þá hafa þær verið duglega að fara á
leiki saman og skemmt sér vel í pizza-
kvöldum, keiluspili og í næturgistinu í
Valsheimilinu.
Leikmaður flokksins: Ísabella María
Eldra ár, mestar framfarir: Þórunn Jó-
hanna
Eldra ár, ástundun og áhugi: Harpa og
Hildur Jóhannsdætur
Yngra ár, mestar framfarir: Ásdís Þóra
Yngra ár, ástundun og áhugi: Ída Mar-
grét
6. flokkur karla
Veturinn hjá 6. flokki í vetur var frábær
að mörgu leyti, þrátt fyrir að engin gull
hafi unnist. Enda er það ekki það sem
og gerðu æfingarnar eins og vel og þeir
gátu. Enda tóku þeir miklum framförum
í vetur.
Strákarnir tóku þátt í þremur mótum
og það síðasta var haldið á Selfossi. Öll-
um liðunum gekk vel og drengirnir voru
Val til mikils sóma, bæði innan vallar og
utan. Þarna gætu leynst framtíðarleik-
menn Vals ef þeir halda áfram á þessari
braut.
6. flokkur kvenna
Þjálfarar: Sigríður Unnur Jónsdóttir og
Bryndís Einarsdóttir, aðstoðarþjálfari.
Hópurinn í vetur taldi tæplega 20 stelpur,
sem náðu einstaklega vel saman og
mynduðu frábæra liðsheild. Það var þó
heldur fámennur yngra árs-hópurinn í
upphafi því hann taldi einungis 4 stelpur,
svo að fenginn var liðsstyrkur frá nokk-
um galvöskum 7. flokks stelpum svo
hægt væri að halda úti liði í þessum ald-
ursflokki.
Yngra árið stóð sig vel, rokkaði á milli
1. og 2. deildar á milli túrneringa og end-
aði svo í 6. sæti af 26 liðum. Þær lifðu
sig allar vel inn í leikinn, tóku vel á því í
leikjum og voru félagi sínu til sóma utan
vallar sem innan. Eldra árið byrjaði með
7. flokkur með Lilju Ágústsdóttur í
fararbroddi tapaði einum eða tveim leikj-
um í allt í vetur.
8. flokks stelpurnar voru líka frábærar.
Sýndu ótrúlegar framfarir. Þessi kjarni af
stelpum á mikla framtíð fyrir sér, og lík-
legt að við eigum eftir að sjá þær vinna
stóra titla í framtíðinni.
Þó að þessi aldursmunur væri á stelp-
unum og þær kæmu úr sitthvorri áttinni
var góður andi á æfingum, samstilltar og
duglegar allar sem ein. Góð framkoma
og heiðarleiki einkennir þennan hóp.
8. flokkur karla
Í allt að æfðu u.þ.b. 20 strákar í þessum
flokki í vetur.
Margir byrjuðu alveg frá grunni, þann-
ig að mikill getumunur var á hópnum.
Flokkurinn keppti á þremur mótum.
Sýndi gríðarlegar framfarir. Þarna eru
margar kanónur framtíðarinnar en ekki
síst skemmtilegir karakterar, sem er ekki
síður mikilvægt í handbolta. Góður andi
einkenndi æfingar sem og hæfilegt
sprell. Ljóst er að þessir strákar eiga eftir
að leggja mark á vogarskálar Vals í fram-
tíðinni og verður gaman að fylgjast með
þeim.
7. flokkur karla
7. flokkur karla var fámennari í vetur en
síðustu ár. 16 strákar æfðu með flokkn-
um en þar voru samankomnir miklir
snillingar. Allir strákarnir voru geysilega
áhugasamir og lögðu sig fram á hverri
einustu æfingu, hlustuðu vel á þjálfarann
Strákar í 6. flokki í handbolta. Efri röð
frá vinstri: Ingvi yfirfararstjóri, Tryggvi
Garðar, Unnsteinn, Stefán Björn, Davíð,
Tómas Orri, Dagur Fannar og Óskar
Bjarni. Neðri röð frá vinstri: Guð
mundur, Stefán Árni, Dagur Máni,
Jökull, Ísak, Sindri og Arngrímur. Í
6.flokki eru 38 strákar að æfa og eru 6
lið að keppa á Íslandsmótinu og eldra og
yngra árið eru Reykjavíkurmeistarar.