Valsblaðið - 01.05.2013, Síða 111
Valsblaðið 2013 111
Félagsstarf
Kakópása á
miðri æfingu
Fyrstu helgina í febrúar var snjór á gervigras-
velli okkar Valsara og mjög kalt í veðri. Hressir
strákar í 5. og 6. flokki karla léta það ekki á sig
fá og mættu galvaskir á æfingu – vel klæddir og
hressir á sunnudagsmorgni.
Á miðri æfingu birtist svo Jón Gunnar Bergs,
ötull áhugamaður um yngri flokka starf félagsins færandi hendi með marga lítra af heitu súkkulaði. Strákarnir drukku kakóið með
mikilli ánægju og myndaðist skemmtileg stemning í kuldanum.
Þeir gátu þó ekki eytt of miklum tíma í þessa kærkomnu «kaffipásu» því þeir voru óþreyjufullir að hefja leik aftur á snævi
þöktum vellinum og voru fljótir út á völl í sínar stöður eftir stutta myndatöku.
Golfmót Vals fór fram á Urriðavelli
með pompi og pragt föstudaginn 19.
júlí og tóku 100 manns þátt í mótinu.
Að venju var uppselt á mótið og færri
komust að en vildu og veðrið var með
besta móti þegar ræst var út um kl 13 á
Urriðavelli.
Úrslit voru eftirfarandi:
Kvennaflokkur.
1. sæti Guðrún Árnadóttir
Vel heppnað og
fjölmennt golfmót Vals
Sigurvegarar í golfmóti Vals 2013: Ingi
Rafn Jónsson, Haukur Ragnarsson,
Ragnar Davið Riordan, Guðrún
Árnadóttir, Karl Jónsson, Anna S. Karls-
dóttir, Ragnheiður Lárusdóttir, Pétur
Georg Guðmundsson.
2. sæti Anna Carlsdóttir
3. sæti Ragnheiður Lárusdóttir
Karlaflokkur.
1. sæti Ragnar Davið Riordan
2. sæti Haukur Ragnarsson
3. sæti Ingi Rafn Jónsson
Golfmeistari Vals 2013 er Ragnar
Davíð Riordan.
Frábært
Herrakvöld Vals
Herrakvöld Vals var ákaflega vel heppnað
í haust og Hörður Hilmarsson setti eftir-
farandi stöðuuppfærslu á facebook til að
lýsa stemningunni: Maður lét ekki veik
indi vikunnar aftra sér frá því að mæta á
árlegt Herrakvöld Vals í gærkvöldi. Þar
var margt um manninn að venju, mikið
einvalið gesta og dagskrá ekki af verri
endanum. Stórsöngvarinn Egill Ólafsson
fór á kostum, með himinskautum sögðu
sumir, Einar Kárason sagði sögur af
stakri snilld, Ari Eldjárn rúllaði salnum
upp og fékk rólegustu menn til að veina
úr hlátri. Samkomunni stýrði Valsmaður
inn og leikarinn Þorsteinn Bachmann,
sonur Bósa heitins (blessuð sé minning
þess yndislega manns) af ljúfmennsku og
léttleika. Punkturinn yfir iið var svo þeg
ar iðnjöfurinn íturvaxni, Halldór Einars
son, upphafsmaður herrakvöldanna og
prímusmótor í skipulagningu þeirra og
utanumhaldi steig á sviðið og tók gulu
rósirnar 18 með bravör, við mikinn fögn
uð viðstaddra og kippti síðan nokkrum
söngelskum félögum upp á sviðið og gaf
tóninn í Valsmenn léttir í lund. Þetta
herrakvöld verður lengi í minnum haft og
var félaginu til mikils sóma. TAKK DÓRI
og félagar í herrakvöldsnefnd Vals fyrir
frábært kvöld!
Henson og
Einar
Kárason
skemmtu sér
vel á herra
kvöldinu.