Valsblaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 112

Valsblaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 112
112 Valsblaðið 2013 Minningar við hvað þú varst hláturmildur að maður tali nú ekki um að þú ert búinn að fá samferðafólk þitt til að hlæja með þér alla ævina þá hefðir þú átt að ná að verða a.m.k. hundrað ára. Þú sagðir stundum að miðað við þyngd mína ætti ég að vera 225 cm á hæð og kallaðir mig þúsund- fætlu sem hafði með hlaupastílinn að gera, sagðir að ég hefði hermt eftir Mike England sem lék með Tottenham í gamla daga. Ég benti þér nú á að þið Maradona hefðuð báðir verið flinkir leikmenn en Maradona átti það til að gefa boltann. Endalaust varst þú upplagður að tryggja léttleikann í kringum þig sem við vinir þínir nutum góðs af alla tíð. Smá stríðni og at í okkur og öðrum samferðamönn- um í hárbeittum húmör sem sumir hefðu jafnvel kallað einelti kallaði ég alltaf að þú keyrðir á hugtakinu sókn er besta vörnin. En þú áttir einnig þá hlið sem var alvörugefinn og hugsandi. Sú hlið á þér hugleiddi kjör og stöðu fólks sem ekki fæddist í þennan heim með skilyrði til þess að njóta lífsins til fullnustu. Fjöl- margt af þessu fólki fann í þér banda- mann, mann sem hafði tíma til að gefa af sér og sem gat með brosinu og fallegu orði glatt svo mikið. Fjöldi fólks sem tókst á við margvíslega erfiðleika leitaði til þín eftir leiðbeinandi hvatningu og fór af fundi eða lauk símtali upplitsdjarfara og bjartsýnna á að vinna mætti bug á vandamálinu. þú gafst svo mörgum tíma til að ræða við um lífsins refilstigu og hvernig í ósköpunum þræða mætti hinn gullna meðalveg. Þú gafst svo mikið og uppskarst einnig mikið í myndarlegum barnahópi sem þú sem betur fer fórst að kynnast betur nú á síðustu árum. En eins og þú varst nú flínkur í boltanum og áttir auðvelt með að snúa af þér andstæð- ingana þá tókst þér aldrei fullkomlega að snúa af þér þá nöturlegu félaga Bakkus og Nico. Ég fagnaði því ætíð þegar þú sagðir frá fyrirhugaðri ferð vestur í Haukadal til samvista við Unni, fóstru þinni og þess góða fólks sem þú hittir þar og með sama hætti var ég alltaf aðeins sorgmæddur þegar þú tilkynntir ferð til útlanda sem þú reyndar ræddir minna um. Þegar þú sast löngum stundum í sæt- inu hennar Beggu hérna á skrifstofunni og ekkert var heimilið lengur og engin var vinnan, sjóðir þurrausnir, þá sagði ég við þig. Það hefur enginn tekið þína stöðu í íslenskum fjölmiðlum og ef þú heldur þér edrú þá kemur þetta allt til baka. Ég hef svo sannarlega ekki alltaf rétt fyrir mér en hafði það í þessu tilfelli. Þú varst enginn businessmaður og sóttist Hermann Gunnarsson fæddur 9. desember 1947 dáinn 4. júní 2013 Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Val Í byrjun júní barst okkur sú harmafregn að einn af okkar bestu drengjum, Her- mann Gunnarsson væri látinn. Fréttin var óvænt og okkur setti hljóða. Hermann lék frá unga aldri knattspyrnu og síðar handknattleik með Val í öllum flokkum og náði einstökum árangri. Hann lék auk þess landsleiki í báðum þessum greinum og varð þriðji Íslendingurinn sem náði þeim frábæra árangri. Auk þessa lék Her- mann um tíma með meistaraflokki Vals í körfuknattleik. Þessi árangur og fjöl- hæfni sýnir meira en margt annað hversu miklum hæfileikum Hermann var búinn til keppni í íþróttum. En þess má geta að hann á að baki 43 titla með Val. Her- mann var í hópi marksæknustu knatt- spyrnumanna Íslands frá upphafi og skoraði alls 95 mörk á ferli sínum í efstu deild og var sá leikmaður sem oftast hef- ur skorað þrennu í leik eða alls níu sinn- um. Hermann byrjaði að æfa með Val ellefu ára gamall og hóf sextán ára að leika með meistaraflokki félagsins í knattspyrnu. Hann varð þrisvar sinnum markakóngur Íslandsmótsins, tvisvar sem leikmaður Vals og einu sinni með ÍBA. Hermann varð fimm sinnum Ís- landsmeistari með Val í knattspyrnu og þrisvar sinnum bikarmeistari í knatt- spyrnu með félaginu. Alls lék hann 144 leiki í efstu deild með meistaraflokki félagsins í knattspyrnu og varð auk þess Íslands- og bikarmeistari í handknattleik með Val. Sína fyrstu landsleiki í knatt- spyrnu og handbolta lék Hermann árið 1966, aðeins nítján ára gamall. Hann lék 23 landsleiki í knattspyrnu og skoraði í þeim sex mörk og fimmtán landsleiki í handbolta og skoraði 41 mark. Hermann átti um tíma heimsmet í markaskorun í handbolta eða sautján mörk sem hann skoraði í leik gegn Bandaríkjunum 1966. Hermann var einn þeirra leikmanna sem stóð uppúr bæði utan vallar sem innan. Það er hverju félagi mikill styrkur að hafa innan sinna raða leikmann sem býr yfir þeim fjölbreyttu hæfileikum sem Hermann bjó yfir. Það er mikilvægt fyrir íþróttahreyfinguna í heild sinni að hafa einstaklinga sem skapa gleði með leik sínum og eru öðrum hvatning. Með sanni má segja að Hermann Gunnarsson sé löngu orðinn goðsögn í heimi íþrótta á Íslandi. Hermann var sæmdur heiðurs- orðu Vals á 100 ára afmæli félagsins 2011. Þá heiðursnafnbót hljóta aðeins þeir einstaklingar sem lengi hafa stuðlað að og stutt við framgang Knattspyrnu- félagsins Vals með ómetanlegu og óeig- ingjörnu starfi, en það var það sem Her- mann gerði nær daglega frá barnsaldri. Hann hélt nafni félagsins á lofti hvenær sem hann gat því við komið og lét sér mjög annt um allt það starf sem fram fer á Hlíðarenda. Hermann var ætíð reiðu- búinn að leggja sitt af mörkum hvenær sem eftir því var óskað. Í hvert sinn sem Hermann mætti meðal Valsmanna ein- kenndi ætíð nærveru hans léttleiki, hlátur og sögur. Hermann Gunnarsson mun ætíð skipa sérstakan sess í sögu félagsins og hugum allra þeirra sem félaginu tengjast. Knattspyrnufélagið Valur þakk- ar Hermanni af miklum hlýhug fyrir allt hans ómetanlega starf. Valsmenn eru þakklátir fyrir að hafa átt samleið með Hermanni Gunnarssyni þeim hjartahlýja og góða dreng. Valur sendir innilegar samúðarkveðjur til barna Hermanns, systkina hans og ættingja vestur í Dýra- firði. Góður Valsmaður og mannvinur er genginn langt um aldur fram. Blessuð sé minning Hermanns Gunnarssonar en hún mun lifa meðal Valsmanna á Hliðarenda. Hörður Gunnarsson Formaður Knattspyrnufélagsins Vals. Hermann Gunnarsson minningarorð Þetta var nokkuð sem ég hafði vonað að ekki kæmi til, ég að skrifa þér hinstu kveðju. Við munum sem sagt ekki sitja í ruggustólunum og rifja upp enn einu sinni ævintýri liðinna ára. Það er stund- um sagt að hláturinn lengi lífið og miðað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.