Valsblaðið - 01.05.2013, Side 113
Valsblaðið 2013 113
Ólafur E. Rafnsson
fæddur 7. apríl 1963
dáinn 19. júní 2013
Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Val
Íþróttahreyfingin á Íslandi horfir nú á
bak öflugum forystumanni. Við sem
störfum innan íþróttahreyfingarinnar vit-
um vel hvað það skiptir miklu máli að
þeir sem leiða hreyfinguna njóti trausts
og virðingar. Þessir eiginleikar ein-
kenndu framkomu og störf Ólafs, en
hann hafði einstaklega góða nærveru og
hann náði vel eyrum og athygli íþrótta-
hreyfingarinnar og þjóðarinnar allrar.
Ólafur E. Rafnsson hefur um árabil verið
í fararbroddi þróttmikils íþróttastarfs,
bæði hér innanlands og einnig utan land-
steinanna. Það skiptir allt starf íþrótta-
hreyfingarinnar miklu máli að eiga og fá
að njóta krafta manns eins og Ólafs sem
bjó yfir miklum leiðtogahæfileikum,
hafði framtíðarsýn fyrir hönd hreyfingar-
innar og var ávallt tilbúinn að leggja allt
sitt af mörkum til að efla íþróttalífið í
landinu. Á alþjóðavettvangi var sóst eftir
starfskröftum og hæfileikum Ólafs sem
er mikil viðurkenning og hvatning fyrir
hann og allt starf innan hreyfingarinnar
hérlendis. Því stöndum við í þakkarskuld
við Ólaf fyrir framsýni og alla þá vinnu
sem hann lagði á sig í starfi sínu fyrir
hreyfinguna. Ég vil fyrir hönd Knatt-
syrnufélagsins Vals þakka Ólafi E. Raf-
nssyni fyrir allt hans óeigingjarna starf
fyrir íþróttahreyfinguna á Íslandi. Við
sendum fjölskyldu hans innilegar samúð-
arkveðjur frá okkur Valsmönnum –
minning þessa góða drengs lifir á meðal
okkar.
Hörður Gunnarsson
Formaður Knattspyrnufélagsins Vals
aldrei eftir veraldlegum auði, vildir bara
standa í skilum með þínar skuldbinding-
ar, allt á hreinu, þannig vildir þú hafa
það. Þú varst sannarlega hrifinn af Vest-
fjörðum þar sem þú naust kyrrðar og
næðis í ægifagurri íslenskri náttúru og
vináttu sem var hrein og bein. Sönn vin-
átta er fjársjóður og nýlegur póstur frá
þér var svo falleg lesning að ég hreinlega
táraðist við lesturinn og eins og góðum
vini sæmir þá lét ég þig vita af því. Við
erum báðir trúaðir svo það er auðvelt að
sjá ykkur fyrir sér, þú og Beggi að gant-
ast með okkur og Bósi að galdra, þannig
að þið skiljið ekki upp né niður, ekki
amalegur félagsskapur. Það mun taka
langan tíma að meðtaka það að þú mætir
ekki á Humarhúsið í hádeginu, að Litla
Skráin hringi ekki lengur en endalausar
minningar munu gera sitt besta að fylla
upp í það stóra skarð sem orðið er. Ótal
margir hafa misst svo mikið en orðspor
þitt og minningin mun lifa um langan
tíma.
Vertu sæll kæri vinur og takk fyrir allt.
Halldór Einarsson
Stefán
Halldórsson
fæddur 16. mars 1959
dáinn 12. október 2013
Kveðja frá Gunnari Kristjánssyni
„Ég á eftir að mala þig í dag.“ Þetta var
alltaf fyrsta setningin hans Stebba vinar
míns þegar við vöknuðum á morgnana í
frægri golfferð um árið. Það var ekki
leiðinlegt hjá okkur í þessari ferð, spilað
golf allan daginn, drukkið og etið mikið.
Jú og hann malaði mig alla ferðina, pínu
mikið betri en ég í golfi. Ég kynntist
Stebba fyrst þegar hann spilaði hand-
bolta með HK, hann var einn af stofn-
endum og burðarás. Síðan gekk hann í
raðir okkar Valsmanna. Stefán var frábær
handknattleiksmaður. Spilaði yfir 60
landsleiki og að auki marga leiki með
yngri landsliðum. Á HM 21 árs og yngri
1979 þar sem meðal annars voru menn
eins og Alfreð Gíslason og Kristán Ara í
liðinu varð Stebbi næstmarkhæstur í
mótinu aðeins Rússinn Karshakevich var
markhærri en hann varð síðar meir besti
handknattleiksmaður heims. Stefán
komst í úrslitaleikinn í meistaradeild
Evrópu með Val árið 1980 eftir að hafa
unnið Atletico Madrid í undanúrslitum.
Afrek sem aldrei hefur verið leikið eftir.
Í undanúrslitaleiknum í Madríd fóru
Stebbi og Brynjar Harðarson að leika sér
í fótbolta í upphituninni fyrir framan
troðfulla höll af trylltum Spánverjum,
báðir með góða boltatækni. Við héldum
að þakið myndi rifna af höllinni en allir
Spánverjarnir stóðu upp og klöppuðu
fyrir þeim, slíkir voru taktarnir. Í hófi
eftir leikinn sagði Jesus Gilz forseti Atle-
tico Madrid „I want to buy these 2 hand-
ballplayers for my footballclub“.
Á tímabilinu 1990–2000 eyddum við
töluverðum tíma saman og sérstaklega
kringum golfið. Þegar golfmót Vals var
haldið þá sá Stebbi alltaf um grillið eftir
mót. Ekkert mál að grilla fyrir 100
manns. Stefán var mjög bóngóður, eitt
skiptið þegar tími var komin að mála
litla húsið mitt þá sagði Stebbi „Ekkert
mál, ég kem um helgina og við klárum
þetta, hafðu bara nóg af bjór til“. Síðan
kynnist hann Hjördísi sinni, ég hitti
Stebba stuttu eftir þeirra kynni og Stefán
ljómaði. Hann var ástfangin upp fyrir
haus og hann var kominn á góðan stað.
Það gladdi mig. Stefán þurfti akkeri eins
og Hjördísi inn í sitt líf.
Ég hitti Stebba síðast fyrir einhverjum
mánuðum síðan á bensínstöð þar sem ég
beið afgreiðslu og þá er kallað hátt og
snjallt „Gunni Valsari“ ég leit við og sá
engan, aftur var kallað „Gunni Valsari“
auðvitað var minn maður mættur að kalla
og fela sig bak við hillurnar. Hann var
alltaf að stríða manni. Stefán Halldórs-
son var bara einstaklega skemmtilegur
maður. Ég sendi mínar dýpstu samúðar-
kveðjur til Hjördísar, allra barna Stefáns
og móður. Ég endurtek orð Stefáns í fer-
tugsafmæli mínu þar sem hann sagði
„takk fyrir að vera vinur“.
Minn kæri Stefán „sömuleiðis“.
Gunnar Kristjánsson
Minningar