Gerðir kirkjuþings - 2001, Page 6

Gerðir kirkjuþings - 2001, Page 6
Formáli Á 33. Kirkjuþingi, sem var haldið dagana 15.-24. október 2001, voru lögð fram 26 mál. Fjögur þeirra voru afgreidd með starfsreglum um breytingu á eldri starfsreglum. Þá var samþykkt tillaga að starfsreglum um brevtingu á mörkum vígslubiskupsumdæma, þannig að Múla- og Austíjarðaprófastsdæmi færast í umdæmi vígslubiskups á Hólum. Sú mikla breyting þarf síðan að koma til endanlegrar afgreiðslu á nýkjörnu Kirkjuþingi á næsta ári. Verði hún þá samþykkt þar óbreytt tekur hún gildi í ársbyijun 2003. Þrettán ályktanir voru samþykktar, ásamt tillögum um reglur um Strandarkirkju, en kirkjumálaráðuneytið hefur falið Kirkjuráði að annast málefni hennar, og skipulagsskrá fyrir kirkjumiðstöðina við Vestmannsvatn í Aðaldal. Emiffemur var samþykkt tillaga að reglugerð um ábyrgðir Jöfnunarsjóðs sókna, sem verður send kirkjumálaráðimeytinu til staðfestingar. Lagt var til í tillögu að frumvarpi til laga um brottfall laga um kirkjubyggingarsjóð, sem óskað var eftir að kirkjumálaráðherra flytji á Alþingi, að eignir sjóðsins renni til ábyrgðardeildarinnar, enda hefur ekkert fé verið veitt til hans á ijárlögum um árabil. Kirkjumálaráðherra lagði fyrir Kirkjuþing frumvarp til laga mn breytingu á lögum mn kirkjugarða, greftrun líka og líkbrennslu. Kirkjuþing mælti með samþykkt þess með nokkrum breytingum. Frumvarp til laga um breytingu á skipun presta var ekki enn talið tímabært og þremur öðrum málum var einnig vísað frá. en tveimur vísað til Kirkjuráðs. I Gerðum Kirkjuþings er hér á eftir birt endanleg afgreiðsla þeiiTa mála, sem þingið samþykkti. Öll málin frá Kirkjuráði og flest önnur voru afgreidd samhljóða. Á vef Kirkjuþings, sem var opnaður í byrjun þingsins, www.kirkjan.is/kirkjuthing, er hins vegar hægt að finna málin eins og þau vom lögð fram, ásamt umræðum, nefndarálitum og breytingartillögum, bæði þau sem voru samþykkt og vísað frá. Allmikið var rætt um undirbúning mála fyrir Kirkjuþing og voru allir sammála um, að mikilvægt sé að vanda hann eins og kostur er. Það skiptir miklu máli að geta kannað hvaða hljómgrunn þau mála eiga, sem lögð eru fyrir Kirkjuþing. Þar var meðal annars bent á héraðsfundi sem æskilegan vettvang til þess. Tillaga kom fram um að allsherjar-, fjárhags- og löggjafarnefndir Kirkjuþings starfi á milli þinga. Forseti lýsti því þá yfir að hann væri reiðubúinn að nýta heimild starfsreglna um að kalla þær saman í samráði við formenn nefndanna. Yrði það þá gert nokkrum vikum fyrir næsta þing til að fara yfir og koma fram með ábendingar við þau mál, sem leggja á fram á þinginu. Það er þá þörf á að þau hafi borist Kirkjuráði nokkru áður, svo að tóm gefist til að fara yfir þau og veita skýringar á þeim. Það er mikilvægt að reyna að meta þann árangur, sem Kirkjuþingi hefur tekist að ná með störfum sínum á þessu fyrsta kjörtímabili með hinni nýju skipan. Væntanlega mun Kirkjuráð taka það til athugunar, en æskilegt er að sem flestir taki þátt í því, starfsmenn kirkjunnar, sóknamefndir og héraðsfundir. Þá verði ekki eingöngu bent á það sem vel hefur tekist, heldur ekki síður það sem vantar og úrræði til að bæta úr því. Slíkt samstarf getur haft margfalt gildi. Jón Helgason, forseti Kirkjuþings 2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.